Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 25
DAGSKRÁ UMFERÐARÞINGS
8.30 SKRÁNING OG AFHENDING ÞINGGAGNA
9.00 ÞINGSETNING
Karl V. Matthíasson, formaður Umferðarráðs
ÁVARP
Kristján L. Möller, samgönguráðherra
AFHENDING UMFERÐARLJÓSSINS
Verðlaunagripur Umferðarráðs veittur í áttunda sinn þeim aðila,
einstaklingi, samtökum eða stofnun, sem unnið hefur sérstaklega
árangursríkt og/eða eftirtektarvert starf á sviði umferðaröryggismála
STUTT HLÉ
10.00 UMFERÐARÖRYGGISÁÆTLUN TIL ÁRSINS 2016
Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu og
formaður umferðaröryggisráðs
10.15 GETTING ORGANIZED TOWARDS ZERO ROAD DEATHS?
John Dawson, Chairman of EuroRAP and iRAP,
Director of FIA Foundation for Automobile and Society
11.15 UMFERÐARÖRYGGI SVEITARFÉLAGA
Lárus Ágústsson, Cowi, Danmörku
11.30 EuroRAP Á ÍSLANDI
HVAÐA EINKUNN FÆR ÍSLENSKA VEGAKERFIÐ?
Ólafur Kr. Guðmundsson, varaformaður FÍB og
verkefnastjóri EuroRap á Íslandi
11.45 FYRIRSPURNIR OG UMRÆÐUR
12.00 MATARHLÉ
13.00 ENDURSKOÐUN UMFERÐARLAGA
Róbert R. Spanó, prófessor í lagadeild við Háskóla Íslands og
formaður nefndar um endurskoðun umferðarlaga
13.15 Á AÐ TAKA UPP HLUTLÆGA ÁBYRGÐ EIGENDA?
Kolbrún Sævarsdóttir, lögfræðingur hjá Ríkissaksóknara
13.30 AKSTUR UNDIR ÁHRIFUM
Valgerður Rúnarsdóttir, fíknsjúkdómalæknir hjá SÁÁ
13.45 Á AÐ LÆKKA LEYFILEG MÖRK ÁFENGISMAGNS Í BLÓÐI?
Ágúst Mogensen, forstöðumaður Rannsóknarnefndar umferðarslysa
14.00 HVAÐA KRÖFUR Á AÐ GERA TIL ELDRI BORGARA
VARÐANDI AKSTUR?
Hallgrímur Magnússon, doktor í öldrunargeðlækningum
14.15 FYRIRSPURNIR OG UMRÆÐUR
14.30 KAFFIHLÉ
ÖRUGGARI ÖKUMENN – UNGIR ÖKUMENN
15.00 EFLING UMFERÐARFRÆÐSLU Í SKÓLUM – MARKMIÐ OG LEIÐIR
Birna Hreiðarsdóttir, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu og
formaður starfshóps um útfærslu og tilhögun umferðarfræðslu
í skólum landsins
15.15 „STELPUR Í BLEIKU – STRÁKAR Í BLÁU“
HVAÐ MÓTAR HUGMYNDIR KYNJANNA UM BÍLA OG UMFERÐ?
Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarnarfulltrúi VÍS
15.30 AKSTURSBANN UNGRA ÖKUMANNA OG ÁRANGUR AF ÞVÍ
Holger Torp, verkefnastjóri ökunáms hjá Umferðarstofu
15.45 ENDURSKOÐUN ÖKUNÁMS, NIÐURSTÖÐUR STARFSHÓPS
Arnaldur Árnason, formaður starfshóps
16.00 ER RÉTT AÐ HÆKKA ÖKULEYFISALDURINN Í 18 ÁR?
Sigrún Hlín Sigurðardóttir, háskólanemi mælir með
hækkun ökuleyfisaldurs.
Sveinn Guðberg Sveinsson, framhaldsskólanemi mælir
gegn hækkun ökuleyfisaldurs
16.30 FYRIRSPURNIR, UMRÆÐUR OG ÁLYKTANIR
17.00 ÞINGSLIT
Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu
FUNDARSTJÓRAR:
Óli H. Þórðarson, fyrrverandi formaður Umferðarráðs
Auður Þóra Árnadóttir, forstöðumaður umferðardeildar Vegagerðarinnar
UMFERÐARÞING
2008
GRAND HÓTEL REYKJAVÍK
26. NÓVEMBER 2008
Umferðarþing er öllum opið. Þátttökugjald er 6.900 kr. Innifalið er
jólahlaðborð í hádeginu og kaffiveitingar. Skráning er á heimasíðu
Umferðarstofu, www.us.is, til 24. nóvember. Þar er að finna nánari
upplýsingar um þingið. Einnig í síma 580 2000.
Morgunblaðið/Ómar
Tengsl 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
Ingveldur Ýr „Fyrstu minningarnar
með Helgu eru þegar ég var 6 ára og
bjó eitt ár á Akranesi. Ég hafði þá
verið á nokkrum flækingi, búið á
ýmsum stöðum á landinu og leiðir
okkar lágu sjaldan saman. En á
Akranesi urðu samskiptin meiri. Og
þegar pabbi eignaðist aftur heimili í
Reykjavík, þá hittumst við Helga
reglulega, þegar hún kom í bæinn.
Ég á líka góðar minningar frá Hellis-
sandi, þar sem við voru oft saman á
sumrin. Það var ofsalega skemmti-
legur tími. Við bjuggum við öruggt
umhverfi hjá ömmu og gátum notið
okkar sem systur. Við lékum okkur
mikið úti í hrauni, við höfum verið tíu,
tólf ára. Það var lítið svið í sjó-
mannagarðinum og þar fluttum við
heilu leiksýningarnar. Það var á
Hellissandi sem ég híaði á Helgu fyr-
ir framan frændur okkar: Sjáiði
bara! Helga er komin á gelgjuskeið-
ið! Henni var nú ekki skemmt þá!
Sem barn og unglingur hugsa ég að
ég hafi verið stjórnsamari, en hún
frekari. Ég leit upp til hennar,hún
var mér ákveðin fyrirmynd. Mér
fannst Helga alltaf vera fyrirmynd-
arbarn. Það var aftur meira vesen
með mig.
Ég man einu sinni þegar við vorum
eitthvað að ræða málin, þá æpti hún á
mig: Rökstyddu þetta, já svona rök-
styddu þetta! Þá var ég kjaftstopp.
Hún hafði ýmsa yfirburði sem ég réði
ekkert við. Ég var hins vegar með of-
urmikla ábyrgðarkennd og var
snemma farin að segja henni til.
Helga var sem barn og unglingur
bindindismanneskja, meðan ég var
óforbetranlegur djammari frá fyrstu
tíð, drakk og reykti. Hún var snyrti-
pinni en ég var draslari. Dóttir mín
lýsti þessu yndislega þegar hún sagði
einu sinni að Helga frænka væri svo
"pen". Ég spurði: En ég, er ég ekki
pen? Nei þú ert bara "smá pen".. Þeg-
ar við lékum okkur, voru aðallega
leikrit og hlutverkaleikir í gangi. Við
héldum leikpartý með stjúpsystur
okkar, Jódísi, og höfðum svo hátt í
einu slíku að nágrannarnir hringdu á
lögregluna.
Ég fór ung til Austurríkis og þá
höfðum við Helga samband í gegnum
spólur, það gengu heilu sögurnar á
milli okkar og þannig gátum við
fylgzt með lífi hvorrar annarrar.
Þegar ég kom heim aftur, tók
djammtímabil þrítugsaldursins við.
Við espuðum hvor aðra upp í því,
hleyptum öllu upp og vorum þekktar
sem dramatísku systurnar. En svo
róuðumst við og vorum hættar að
vera klikkaðar saman, þegar fertugs-
aldurinn kom yfir okkur. Þá fyrst
fórum við að kynnast hvor annarri og
eiga raunverulegt samband. Við er-
um mjög samrýmdar núna, höfum
bæði ferðast mikið saman og búið
saman.
Helga á til mjög djúpa vizku. Hún
sér inn í fólk miklu betur en margur.
Hún notar kannski grínið sem ákveð-
ið yfirvarp, það er hennar stíll og hef-
ur verið frá því hún var krakki. Hún
er mjög skemmtileg, ekki bara fynd-
in, heldur er gaman að vera í fé-
lagsskap hennar. Við hlæjum stund-
um saman þangað til okkur verður
illt. Hún er mín bezta trún-
aðarvinkona og veit allt um mig. Hún
er líka laus við dómhörku. Ef þú villt
fá sannleikann þá spyrðu Helgu, hún
kann nefnilega ekki að ljúga! Og svo
á hún til auðmýkt sem fólki getur yf-
irsézt í fari hennar, kannski vegna
leikarastarfsins. Það hefur alltaf ver-
ið mikil ást og umhyggja okkar á
milli og við höfum getað verið til stað-
ar fyrir hvor aðra
Kæk? Hún er alltaf að raða, alltaf
að taka til. Þegar hún kemur til mín,
passar hún að allt sé í lagi í kringum
hana, að það sé einsog það á að vera,
hún raðar púðunum og svoleiðis.
Ég hugsa að öll skilnaðarbörn og
kannski öll systkini kannist við sam-
keppnina um athyglina. Hjá okkur
Helgu snérist þetta um útlitið, karrí-
erinn og það hvor væri betri dóttir
pabba. Ef önnur sagði frá ein hverju,
kom hin með ennþá stórkostlegri frá-
sögn. Nú er þetta breytt. Við berum
meiri virðingu hvor fyrir annarri og
fylgjumst vel með starfi hinnar. Ég
er afar stolt af henni. Ég held ég hafi
séð nær allar hennar sýningar og
hún kemur alltaf á tónleika hjá mér
þegar hún getur. Ég man einu sinni
eftir því að við rifumst alveg heift-
arlega. Helga er þannig að hún er
fljót að hleypa hlutunum út, en ég
safna í sarpinn og spring svo með lát-
um. Það gerði ég þarna og setti alla
hluti sem hún hafði gefið mér um æv-
ina í svartan plastpoka og henti í
hana. Í stað þess að rjúka á dyr, eins-
og ég átti von á, settist hún bara nið-
ur sallaróleg og fór að skoða í pok-
ann. Á endanum fór ég að skoða með
henni og pokinn fór aldrei út af heim-
ilinu. Það hafa orðið nokkur uppgjör
okkar í milli, en sáttin er þeim mun
betri fyrir það.
Við erum mjög líkar að svo mörgu
leiti og þurftum að sættast við sjálfa
okkur til að geta orðið sáttar við hvor
aðra. En þeir sem þekkja okkur ekki,
sjá það alls ekki að við séum líkar og
það kemur fólki oft í opna skjöldu að
við séum systur. “
Hún á til mjög djúpa vizku
‘‘HELGA ER ÞANNIG AÐHÚN ER FLJÓT AÐHLEYPA HLUTUNUM ÚT,EN ÉG SAFNA Í SARPINN
OG SPRING SVO MEÐ
LÁTUM.
Hún fæddist 26. júlí 1966 í
Reykjavík. Foreldrar hennar eru
Guðleif Guðlaugsdóttir og Jón
Hjartarson. Hún lauk stúdents-
prófi frá MH 1985, BM-prófi í
söng, leiklist og söngleikjum
frá Konservatorium der Stadt
Wien í Vínarborg 1988 og mast-
ersprófi frá Manhattan School
of Music í New York 1991. Nám
við Listdansskóla Þjóðleikhúss-
ins og Söngskólann í Reykjavík.
Hún var fastráðin söngkona
við Óperuna í Lyon og söng
einnig við Bastilluóperuna í
París. Hér heima hefur hún
sungið ýmis hlutverk við Ís-
lensku óperuna og haldið fjölda
tónleika hér og erlendis. Hún
rekur eigið söngstúdíó í Reykja-
vík og starfrækir námskeið og
kennslu fyrir börn og fullorðna.
Hún er gift Kristjáni Guðna-
syni og eiga þau eitt barn; Jas-
mín, f. 1999.
INGVELDUR ÝR
JÓNSDÓTTIR