Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 27
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is I nga Bachmann var að opna skartgripaverslun á Laugavegi 20b í Reykjavík og fagnaði því með formlegri opnun í gær. Skartgripaverslunin ber nafn- ið Hringa og er verslunin nefnd eftir henni sjálfri auk þess sem hringa get- ur til að mynda þýtt að draga hring á fingur einhvers. Hún fékk þessa hug- mynd í ágúst og ákvað að fram- kvæma hana, þrátt fyrir kreppu- ástandið, sem hefur heltekið þjóðfélagið. „Ég var búin að kaupa mér ýmis tæki í verkstæði, öll þessi helstu sem þarf að hafa. Ég sagði við sjálfa mig, annaðhvort geri ég þetta núna eða ekki.“ Einvörðungu eigin hönnun Inga, sem er 28 ára gömul, útskrif- aðist frá Escola Massana í Barcelona á Spáni árið 2005 og hefur síðan hún kom heim unnið hjá Guðbjörgu Krist- ínu Ingvarsdóttur í Aurum við Bankastræti. „Ég fékk pláss hjá Guð- björgu í Aurum og er búin að sitja þar og smíða. Það var góð reynsla og það var gott að vinna hjá henni. Við erum líka báðar menntaðar gullsmiðir og skartgripahönnuðir,“ útskýrir Inga. Einskær áhugi á hönnuninni sjálfri og því sem tilheyrir er á meðal þess sem hvatti Ingu til að opna verslun. „Þrátt fyrir að ég væri með marga sölustaði um allan bæ, hefði ég ekki náð að setja fram allt það sem ég er að gera. Það var ekkert mál fyrir mig að fylla þessa búð þegar ég opnaði!“ Í búðinni býður hún einvörðungu upp á eigin hönnun. Hún er með alla þessa hefðbundnu kvenskartgripi eins og armbönd, eyrnalokka og háls- men auk þess að vera með gott úrval af ermahnöppum og bindisnælum fyrir karlmenn. Flest það sem hún gerir er úr silfri. Hún er með eitthvað af gullskart- gripum en tekur líka að sér að sér- smíða úr gulli fyrir viðskiptavini. Einnig tekur hún að sér viðhald og hreinsun á skartgripum. Sjór, sveit og borg En hvernig myndi Inga lýsa stíl sínum? „Ég er lærð í Suður-Evrópu þannig að norræna naumhyggjan er ekki alveg ég. Skartgripirnir mínir eru meira fígúratívir. Ég geri flugur, fólk og bíla,“ segir Inga, sem fær inn- blástur víða að en segir að hönnun sinni megi skipta í þrjá flokka: Sjó, sveit og borg. „Sjórinn er til dæmis þarinn og skeljarnar, sveitin er nátt- úruleg form og dýr og borgin er múr- steinamunstur, bílar og byssubardag- ar,“ segir hún sem dæmi. En hvað er erfiðast við starfið? „Maður þarf að vera mjög þol- inmóður. Stundum þarf að leggja frá sér hlutinn og koma að honum seinna ef erfiðlega gengur, annaðhvort með hönnunina eða tæknilega útfærslu á henni.“ Þar sem Inga er bæði gullsmiður og skartgripahönnuður vaknar sú spurning hvort sé nú skemmtilegra. „Ég verð að segja að hvorttveggja er jafn skemmtilegt. Stundum hanna ég bara með því að teikna en í önnur skipti hanna ég beint í efnið. Það get- ur verið nauðsynlegt fyrir mig að vera stundum bara að smíða, ég sest niður með silfrið og einhver hugmynd kemur til mín. Um daginn var ég að vinna með silfurkúlu og vann nýtt stykki úr henni án þess að vera búin að teikna það. Ég teikna mikið en maður er hins vegar svo lengi að gera allar teikningarnar.“ Ingu finnst hönnunarvitund Ís- lendinga vera að vaxa. „Þetta hefur verið að breytast til hins betra að undanförnu. Eitt merki um það er að Guðbjörg í Aurum fékk Sjónlist- arverðlaunin núna síðast. Fólk er að vakna til vitundar. Það er ekki bara efnið sem skiptir máli, þetta er líka hönnun.“ Engin norræn naumhyggja Gullsmiðurinn og skartgripahönnuðurinn Inga Bachmann var að opna skartgripaverslun á Lauga- veginum og lætur kreppuna ekki stoppa sig. Morgunblaðið/Kristinn Á verkstæðinu Inga Bachmann á verkstæðinu í nýju versluninni sinni sem er að Laugavegi 20b, við Klapparstíg. Hún bæði hannar og smíðar. Morgunblaðið/Kristinn Hús Hringur með múr- steina- munstri og húsaeyrna- lokkar eftir Ingu. Borgarlíf Fyrirmyndirnar eru teknar úr borginni, fólk á bekk og byssubardagi. Dýralíf Það er ábyggi- lega gott að vera með uglu um hálsinn. Hönnun 27 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.