Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 8
8 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008  Nicolas Anelka vakti fyrst at- hygli með yngri landsliðum Frakka en hlaut eldskírn sína með aðalliðinu vorið 1998. Hann var þó ekki í hópnum sem varð heimsmeistari um sumarið. Anelka var á hinn bóginn lyk- ilmaður í liðinu sem varð Evr- ópumeistari í Belgíu og Hollandi árið 2000. Síðan hefur ferill hans með landsliðinu verið bugðóttur. Hann hefur ekki alltaf hlotið náð fyrir augum landsliðs- þjálfaranna og um tíma leit út fyrir að hann hefði leikið sinn síðasta landsleik. Í fyrra rof- aði þó til og um þessar mund- ir á Anelka fast sæti í hópi hins umdeilda Raymonds Domenechs, keppir við Karim Benzema, miðherja Lyon, um sæti í byrjunarliðinu við hlið Thierrys Henrys. Anelka hefur leikið 54 lands- leiki og gert í þeim tólf mörk. Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Þ egar aumingja Nicolas Anelka sner- ist á hæli á vítapunktinum þessa ör- lagaríku nótt í Moskvu hefur hann ugglaust átt þá ósk heitasta að jörð- in gleypti hann. Hans biðu ekki að- eins eyðilagðir samherjarnir heldur ruddu upp- litsdjarfir andstæðingarnir honum hér um bil um koll á leið sinni að markverðinum og hetju leiks- ins, Edwin van der Sar. Þeir Fergusynir voru geggjaðir af gleði. Það er þungur kross að bera að hafa misnotað síðustu vítaspyrnuna í úrslitaleik Meist- aradeildar Evrópu enda þótt Anelka geti huggað sig við það að í minningunni verður það alltaf John Terry sem skriplaði á skötu. Afleikur hans var að líkindum afdrifaríkari. Og myndrænni. Á þessu augnabliki hugsuðu áhangendur Chelsea Anelka þegjandi þörf- ina. Hann hafði komið til félagsins fyrir stórfé í janúar en brugð- ist illilega. Aum tvö mörk var afraksturinn í öllum keppnum. Og nú þetta! Margur blástakk- urinn hefur eflaust óskað þess að hann sæi þennan áhugalausa málaliða aldrei aftur. Ekki var á það bætandi. Enginn efast um hæfi- leikana en oft hefur dómgreind Anelkas og metn- aður verið dreginn í efa og hann rekist illa í hópi. Það er engin tilviljun að hann hafi um langt árabil verið uppnefndur „Le Sulk“, ellegar „Stúri“. Frá Moskvu lá leið Anelka með franska lands- liðinu á Evrópumótið í Austurríki og Sviss. Hafi hann haldið að hremmingum sínum lyki þar var það mikill misskilningur, Frakkar guldu afhroð og Anelka var í besta falli skugginn af sjálfum sér. Hvað var eiginlega á seyði? Var þessi mik- ilhæfi sparkandi kominn að fótum fram, aðeins 29 ára að aldri? Skellti Glámi Í ljósi þessa mótlætis kann að koma á óvart að Anelka skyldi yfirleitt mæta til starfa í haust. En það gerði hann og hefur nú, þremur mánuðum síðar, tekið gagnrýnendur sína sömu tökum og Grettir drauginn Glám forðum. Anelka halda engin bönd og hefur hann gert tólf mörk í þrettán deildarleikjum með Chelsea, sem situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, og eitt að auki í meist- aradeildinni. Manni sem var kengboginn í vor svellur nú sjálfstraust. „Nicolas Anelka leikur á als oddi vegna þess að hann hefur endurheimt sjálfstraustið,“ sagði hinn skeleggi knattspyrnustjóri Chelsea, Luiz Felipe Scolari, eftir að miðherjinn skoraði í tvígang í sigrinum á WBA um liðna helgi. „Áhorfendur og samherjar hans hafa nú fulla trú á honum og fyr- ir vikið veður hann í færum. Anelka er frábær leikmaður, teknískur, góður driplari og afbragðs skytta. Hann skorar eitt og tvö mörk í hverjum leik sem kemur sér hreint prýðilega fyrir okkur.“ John Terry, fyrirliði Chelsea tekur í sama streng. „Anelka hefur aldrei leikið betur á ferl- inum. Þegar hann kom til liðs við okkur vottaði ég Guði almáttugum virðingu mína enda er skelfilegt að spila á móti honum. Hann gefur varnarmönnum aldrei frið og kann að nýta færin sín líka. Hann er í frábæru formi og raðar inn mörkum. Anelka er nú markahæst- ur í úrvalsdeildinni og megi hann sem lengst halda uppteknum hætti.“ Mest hefur Anelka gert 25 mörk á einni leiktíð, þegar hann var hjá Manchester City 2003-04, og hefur hug á að slá það met í vetur. „Það er freistandi að bæta um betur en aðal- atriðið er ekki ég og fjöldi markanna sem ég skora, heldur að Chelsea vinni titla á tímabilinu.“ Merkileg orð af vörum manns sem margoft hefur verið vændur um að hugsa bara um sjálfan sig. Dýrasti leikmaður sögunnar Nicolas Anelka hefur leikið með átta liðum á ellefu árum, þar af í tvígang fyrir eitt þeirra. Alls hefur kappinn verið seldur milli félaga fyrir 85 milljónir sterlingspunda sem gerir hann að dýrasta sparkanda sögunnar – sam- anlagt. Anelka hóf ferilinn hjá Paris Saint-Germain í heimalandi sínu en gekk sem frægt er til liðs við Arsenal, aðeins sautján ára að aldri. Vegna ungs aldurs var hann ekki samningsbundinn PSG og fauk hressilega í Frakkana þegar Ars- enal „stal“ honum fyrir framan nefið á þeim. Lá við milliríkjadeilu enda þótt ekki væri grip- ið til hryðjuverkalöggjafarinnar. Lauk málinu með því að enska félagið greiddi því franska sárabætur, 500 þúsund sterlingspund. Hjá Arsenal komst Anelka fljótt til metorða, vann deild og bikar með liðinu 1998 og fékk það ábyrgðarhlutverk að leysa goðsögnina Ian Wright af hólmi. Sumarið 1999 greip hann þó óyndi sem lauk ekki fyrr en Arsenal hafði selt hann fyrir metfé til Real Madrid. Það var í fyrsta en alls ekki í síðasta sinn sem hinir alræmdu bræður hans, Claude og Didier, komu að málum. Þeir hafa lifað kóngalífi gegnum tíðina sem umboðs- menn kappans. Anelka entist aðeins eitt ár í Madríd. Lenti snemma upp á kant við Vicente del Bosque þjálfara og var m.a. settur í 45 daga bann fyrir að neita að æfa með liðinu. Eitthvað hresstist hann þó undir vorið og var í liði Madr- ídinga sem lagði Valencia í úrslitaleik meistaradeildarinnar. Frá Madríd lá leið Anelka aftur til Parísar, þar sem hann lék hálft ann- að ár með PSG. Liverpool fékk hann að láni vorið 2002 og þótti kappinn finna fjölina sína á bítlaslóð. Gérard Houllier ákvað þó að semja ekki við hann um vorið heldur veðja á El Hadji Diouf. Er nema von að maðurinn hafi misst starfið skömmu síðar? Manchester City greip þá gæsina og þar lék Anelka við góðan orðstír í hvorki meira né minna en tvö og hálft ár. Náði heilum 89 leikj- um og gerði í þeim 38 mörk. Þess má til gam- ans geta að Anelka skoraði sigurmark City gegn Chelsea í eina tapleik liðsins veturinn 2003-04. Gekk Allah á hönd Eftir þá eilífð tók hann – og þeir bræður all- ir – að ókyrrast á ný og nú stefndi hann skón- um öllum á óvart til Tyrklands. Fenerbahçe fékk að njóta krafta hans og vorið 2005 varð hann deildarmeistari þar syðra. Enda þótt Anelka hefði þegar hér er komið sögu gengið Allah á hönd og tekið sér nafnið Abdul- Salam Bilal leiddist honum þófið í Tyrk- landi og linnti ekki látum fyrr en hann var aftur kominn til Englands. Nú var það Bolton sem tók hann upp á sína arma. Þar sló hann fljótt í gegn og stuðn- ingsmennirnir báru hann á höndum sér. Það var því hátíð í bæ þegar Anelka framlengdi samning sinn við Bolton í ágúst í fyrra til ársins 2011. Fjórum mánuðum síðar var hann genginn í rað- ir Chelsea. Hefur Nicol- as Anelka nú loksins fundið félag sem honum er samboðið? Frami Anelka varð Evrópumeistari með Real Madrid árið 2000. Í HNOTSKURN »Nicolas Anelka fæddist í Versöl-um 14. mars 1979 en foreldrar hans eru frá eyjunni Martinique. »Eiginkona Anelkas, BarbaraTausia, er söngkona ítölsku dans- hljómsveitarinnar Eu4ya. »Anelka fagnar mörkum sínummeð afgerandi hætti, krossleggur hendur á brjóstinu og myndar fiðrildi. Á þessu mun vera einföld skýring, fiðrildi eru eftirlætis skordýr dóttur hans. Stökkbreyting Stúra Nicolas Anelka gefur mótlætinu langt nef og raðar inn mörkum fyrir Chelsea í Englandi Sjóðheitur Nicolas Anelka fagnar marki gegn WBA um síðustu helgi. Hann þykir aldrei hafa leikið betur og er nú markahæstur í ensku úrvalsdeildinni. Reuters Getur leikið með Drogba Félagi Didier Drogba hefur verið til hlés í haust.  Eins dauði er annars brauð og hefði aðalmiðherji Chelsea und- anfarin ár, Didier Drogba, ekki verið meira og minna frá í haust vegna meiðsla hefði Anelka ef til vill aldrei fengið tækifærið. Chelsea hefur tilhneigingu til að tefla aðeins fram einum miðherja og mátti Anelka fyrir vikið dúsa talsvert úti á kanti á síðasta tímabili þegar hann var yfirhöfuð inná. Þar fann hann sig ekki. Í haust hefur hann hins vegar leikið sem fremsti maður, dyggilega studdur af út- herjunum Joe Cole, Florent Mal- ouda og Salomon Kalou, og hrein- lega farið á kostum. Nú hefur Drogba loks náð heilsu. Hann fer þó beint í leikbann vegna skelmisbragða í leik gegn Burnley í deildabikarnum um daginn. Margir velta fyrir sér hvað gerist þegar Fílbeiningurinn snýr loksins aftur. Verður Anelka þá settur út í kuld- ann eða mun Scolari breyta leik- skipulaginu? „Drogba og Anelka geta hæglega spilað í sama liðinu, sérstaklega þegar þeir eru báðir í toppformi,“ svaraði stjórinn eftir WBA-leikinn. Sjálfur fagnar Anelka end- urkomu Drogbas. „Ég kom hingað til að spila með honum og það gæti hæglega gengið. En hér eru margir leikmenn og mörg leikkerfi. Það er hlutverk stjórans að finna út úr því,“ sagði hann við heimasíðu Chelsea á dögunum. Það örlaði á brosi. Frakki Anelka á ferð með landsliðinu ásamt vini sínum Thierry Henry. Bugðóttur ferill með landsliðinu VIKUSPEGILL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.