Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 35
hver stendur fyrir; t.d. kvikmyndavél fyrir þá sem gert
hafa garðinn frægan í kvikmyndum, hátalari fyrir út-
varpsfólk, hljómplata fyrir tónlistarfólk o.s.frv. Þótt flest-
ar stjörnurnar séu til heiðurs þeim, sem tengjast skemmt-
anabransanum á einhvern hátt, eru örfáar
undantekningar og táknin í samræmi við frama þeirra á
sínu sviði. Stjarna heiðursborgarstjóra Hollywood, Jo-
hnny Grant, sem lést fyrr á þessu ári, er til að mynda með
merki borgarinnar og nöfn geimáhafnar Apollo XI eru
greypt í fjögur tungl.
Þess voru dæmi í byrjun
að þeir sem þóttu skara
fram úr á mörgum sviðum;
í kvikmyndaleik, söng og
leikstjórn svo eitthvað sé
nefnt, fengu fleiri en eina
stjörnu. Enginn hefur þó
fengið fleiri stjörnur en
Gene Autry, sem fékk
fimm. Þessi háttur er nú að
mestu aflagður.
Tilnefningar nafna í
stjörnurnar eru árlega
kunngjörðar 31. maí og sér-
stök nefnd kemur saman í
júní til að velja heiðurshafa
næsta árs. Þegar nýtt nafn
er afhjúpað mætir eigandi
þess á stéttina og baðar sig um leið í sviðsljósinu og vænt-
anlega aðdáun almennings, sem ekki er skilinn útundan á
svo merkilegum tímamótum í lífi hans.
Bíræfnir þjófar
Margir hafa ágirnst stjörnurnar á áranna rás og eru
þjófar þar ekki undanskildir. Fjórum stjörnum hefur ver-
ið stolið. Fyrst þeirra James Stewarts og Kirks Douglas,
þegar verið var að gera endurbætur á gangstéttinni.
Verktakinn var síðar gómaður með báðar í heldur bág-
bornu ásigkomulagi. Framkvæmdir stóðu líka yfir þegar
uppgötvaðist að eina af stjörnum Autrys vantaði. Aftur
reyndist verktaki sökudólgurinn, en upp á stjörnunni
hafðist löngu síðar í Iowa. Og í nóvember 2005 gerðu þjóf-
ar sér lítið fyrir og söguðu stjörnu Gregory Pecks úr
gangstéttinni. Þjófarnir hafa aldrei fundist en Peck fékk
samt nýja stjörnu. Nú er búið að koma fyrir eftirlits-
myndavélum svo að stjörnurnar geti verið óáreittar.
Eigin stjarna fæst ekki fyrirhafnarlaust, því sá sem fær
nafn sitt í eina slíka verður að samþykkja að mæta á kynn-
ingarsamkomu innan fimm ára auk þess sem hann þarf að
reiða fram 25 þúsund dollara þóknun til Sögusjóðs Holly-
wood, sem fer í öryggisgæslu og því um líkt. Sjónvarps-
fréttastöðin FOX upplýsti fyrir nokkrum árum að oft
borguðu kvikmyndaver og hljómplötufyrirtæki brúsann
því nafn stjörnu í stjörnu hefði gríðarlegt auglýsingagildi.
vjon@mbl.is
stjörnum
Í HNOTSKURN
»Árið 2002 var sú undantekning gerð á regl-unni að stjarna Muhammad
Alis var hengd upp á vegg
vegna þess að hann vildi
ekki láta yfir sig ganga.
Staðið á stjörnu Leikkonan Holly Hunter stendur
traustum fótum á sinni nýfengnu stjörnu í maí 2008.
‘‘„VIRÐINGARVOTT-UR VIÐ ÞÁ, SEMLAGT HAFA HÖNDÁ PLÓG TIL AÐ
GERA HOLLYWOOD
AÐ „LANDI
DRAUMANNA“
Þáttastjórnandi Jay Leno, sjónvarpsþáttastjórnandinn
vinsæli, fagnar stjörnugjöf árið 2000.
Reuters
Fyrsta stjarnan Leikkonan Joanne Woodward
fékk fyrstu stjörnuna 9. febrúar 1960.
»Diana Ross er ein fárra sem á tvær stjörnurfyrir sama svið, eina fyrir feril sinn með The
Supremes og hina fyrir sólóferil.
»Árið 2004 voru tvíburasysturnar Mary Kateog Ashley Olsen yngstar til að fá stjörnu, að-
eins 18 ára.
»Kólumbíska söngkonan og lagahöfundurinnShakira hefur verið tilnefnd stjörnuhafi árið
2009, fyrst landa sinna.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
Virðing
Réttlæti
Minnum á
desemberuppbótina
Desemberuppbót á að greiða ekki
seinna en 15. desember.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS