Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 59
Minningar 59 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 ✝ Sveinn Sveins-son fæddist í Stardal á Stokks- eyri hinn 21. mars árið 1925. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut hinn 8. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar Sveins voru Sveinn Pét- ursson, f. 9.4. 1893, d. 21.8. 1962, og Guðfinna Finns- dóttir, f. 20.5. 1888, d. 13.4. 1945, bæði frá Stokkseyri. Systkini Sveins sammæðra eru Guðlaugur Krist- jón, Pálmar Guðni, Sigurfinnur og Ágústa Unnur Guðnabörn. Systkini Sveins samfeðra eru Vil- borg, Ingibjörg, Margrét og Ámundi Sveinsbörn. Eiginkona Sveins er Þóra Björnsdóttir, f. 14.12. 1926 frá Syðra- Laugalandi í Eyjafirði, foreldrar hennar voru Björn Jó- hannsson frá Garðsá, Eyjafirði, f. 11.4. 1893, d. 23.4. 1980 og Emma Elíasdóttir frá Helgárseli í Eyja- firði, f. 8.10. 1906, d. 11.3. 1994. Þau voru alla tíð með búskap að Syðra-Laugalandi í Eyjafirði. Sveinn og Þóra ( Lóa ) giftust 25. desember 1946 og eignuðust þau 5 börn sem eru: Svala, f. 11.3. 1947. Eiginmaður hennar er Hilmar Hafsteinsson, f. 7.9. 1946, og eiga þau saman 5 börn, 9 barnabörn og lang- ömmubarn. Anna Þórunn, f. 13.11. 1951, eign- maður hennar er Albert Guðmunds- son, f. 9.5. 1952, og eiga þau saman 2 dætur. Björn, f. 15.8. 1953, fyrri eig- inkona hans var Kristín Ingva- dóttir, f. 16.10. 1953, d. 31.8. 1994, seinni eiginkona hans er Guð- munda Benediktsdóttir, f. 15.2. 1954, og eiga þau saman 6 börn og 3 barnabörn. Sveinn Finnur, f. 19. júlí 1957, eiginkona hans er Jónína Þóra Sigurjónsdóttir, f. 21. apríl 1960, og eiga þau saman 6 börn og 3 barnabörn. Guðfinna Emma, f. 31.7. 1960, eiginmaður hennar var Þorvaldur Árnason, f. 4.7. 1958, d.10.12. 2003, og eiga þau 2 syni. Sveinn starfaði sem bifreiða- stjóra á BSR og síðar hjá Borg- arbóksafni Reykjavíkur þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Lífshlaup okkar allra hefur sitt upphaf og endi og nú eru komin leiðarlok í lífi Sveins, tengdaföður míns. Þessi rúmlega 40 ára kynni sannrar og ljúfrar vináttu liðin sem örskotsstund. Margt var ólíkt með okkur, annar fljóthugi, hinn hæg- fara, öndverðir í mörgu, en truflaði sjaldnast neitt. Hann var í eðli sínu mikið náttúrubarn, á árum áður veiddi hann bæði fisk á stöng og gekk til rjúpna, sem þarfnast víst talsverðrar þolinmæði, eitthvað sem ekki er mikið af í minni orða- bók. Uppeldisáranna á Stokkseyri, minntist hann oft með blik í augum og gleði í sinni, rétt eins og gerst hefði í gær. Þá reru tugir árabáta á vertíðum þar og til urðu vísur um formenn allra bátanna og þær mundi minn maður flestar, ef ekki allar, enda minnið með ólíkindum „harði diskurinn“ óskaddaður til síðasta dags. Hann var mikill ástríðumaður í flestu og til margra ára, var það kvikmyndatökuvélin, sem átti hug hans allan en að mörgu var að hyggja ef vel átti að takast til og mikillar nákvæmni var þörf og skal viðurkennt að stundum sauð á keipum og þolinmæði sumra á suðumarki við myndatökurnar og þá var ekki ónýtt að hafa hana Þóru eða Lóu eins við köllum hana sér við hlið, en framleiðandi mynd- anna var býsna kröfuharður. Í dag eru þessar myndir varanlegur fjár- sjóður fjölskyldna okkar, ekki síst þeirra yngri, við getum ornað okk- ur við eld minninganna þegar tregi eða söknuður sækir að eða til að gleðjast á góðri stund. Allt sem við- kemur öldum ljósvakans vakti áhuga Sveins frá fyrstu tíð. Í stof- unni heima var hann t.d. með út- búnað, sem mér sýndist að hæg- lega dygði lítilli héraðsfréttastöð enda fátt sem hann vildi missa af, hvort sem var af heimaslóð eða úr fjarlægum heimshornum. Ég minnist yndislegra síðkvölda okkar saman á Spánarströndum, himinhvolfið baðað tunglskini og stjörnufansi og ferðafélaginn rúll- aði upp kvæðum flestra þjóðskáld- anna, að ógleymdu uppáhaldinu Einari Ben, allt saman rétt sisvona, blaðalaust. Þetta verður nú ekki endurtekið fyrr en hinum megin, en þar vorum við nú ekki alveg sammála, ég sanntrúaður á líf að loknu þessu, en hann hálf efins, en það verður nú að gerast upp síðar. Þau Svenni og Lóa bjuggu lengst af í Reykjavík, en fyrir nokkrum árum tóku þau upp tjaldhælana og fluttu í hús eldri borgara í Njarðvík og hafa unað hag sínum vel þar. Lóa mín sér nú á bak traustum og ljúfum lífsförunaut, en ég er þess fullviss, að hún stendur það af sér rétt eins og annað mótlæti, æðrast aldrei hvað sem á dynur, í versta falli kreppir hún hnefana í hljóði. Ég bið nú Guð og góðar vættir að styrkja hana. Þau hjónin geta sannarlega litið með velþóknun yfir farinn veg, þeirra arfleifð í börnum og barna- börnum er eitthvað sem þau mega vera hreykin af. Að lokum þakka ég Sveini sam- fylgdina og allt það, sem hann hef- ur reynst mér og mínum í gegnum tíðina. Far þú í friði, kæri vinur, og friður Guðs þig blessi. Hilmar Hafsteinsson. Meira: www.mbl.is/minningar Okkur langar að minnast látins félaga, Sveins Sveinssonar, með nokkrum orðum. Húsfélagið að Vallarbraut 6 í Reykjanesbæ sem er 22 íbúða fjöleignarhús í eigu eldri borgara var stofnað árið 1997. Það hefur smám saman þróast í að verða eins og ein stór fjölskylda. Fyrir nokkrum árum fluttu hjón- in Þóra Björnsdóttir og Sveinn Sveinsson í íbúð sína á fyrstu hæð í húsinu. Jákvæðni þeirra og ljúft viðmót gerði þau fljótt að kær- komnum félögum í okkar litla sam- félagi. Fljótlega létu þau glerja svalirnar hjá sér og útbjuggu þar yndislega blómastofu. Oft þegar maður var á heilsubótargöngu í kringum húsið, staldraði maður við þar, til að ræða málefni líðandi stundar og þáðum þá rausnarlegar veitingar hjá þeim. Maður kemur til með að sakna þessara stunda. Góður og mætur maður er genginn. Við vitum og tölum fyrir hönd ann- arra í húsfélaginu þegar við þökk- um fyrir samfylgdina og vottum Þóru, börnum þeirra og öðrum að- standendum okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Sveins Sveins- sonar. Elísabet Vigfúsdóttir og Guðmundur Jóhannsson. Sveinn Sveinsson Elsku Valgerður mín. Hér sit ég og reyni að koma hugsunum mínum á blað. Ótal minningar koma upp í hugann þegar ég læt hugann reika, svo sem árlegu jólaboðin hjá þér og Jóni, en í hvert og eitt lagðir þú einstaka natni, enda var matseldin ásamt hannyrðum helsta áhugamál þitt. Mér er minnisstætt hversu jákvæð þú hefur ávallt verið og hversu vel þú studdir mig í mínum veikindum. Þín verður minnst sem yndislegrar manneskju sem neitaði að láta erfið Valgerður Jónsdóttir ✝ Valgerður Jóns-dóttir fæddist í Hafnarfirði 24. júlí 1935. Hún lést á Landspítalanum 25. október síðastliðinn. Útför Valgerðar fór fram frá Frí- kirkjunni í Hafn- arfirði 4. nóvember sl. veikindi buga sig. Þú hef- ur kennt mér þann mik- ilvæga lærdóm að takast skal á við erfiðleika með jákvæðu hugarfari og að aldrei skuli segja skilið við góða skapið. Þótt erf- itt sé að sætta sig við að þú sért farin úr lífi okkar þá er huggun í því að vita til þess að þú sért komin á betri stað. Megi guð geyma þig. Laufey. Elsku amma mín. Það er erfitt að trúa því að þú sért farin frá okkur og í raun erfiðara en orð fá lýst. Ég mun minnast þín sem persónu sem horfði jákvæðum augum á lífið þrátt fyrir erfið veikindi. Ég mun alltaf muna þann mikla hlýhug sem þú sýndir mér og konu minni. Ég mun muna eftir hangikjöti með kart- öflumús og grænum baunum sem þín- um sérrétti. Ég mun muna eftir þér. Benedikt. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og mágur, INGIMUNDUR GUÐMUNDSSON bifreiðastjóri, Fannborg 7, áður Kársnesbraut 72, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn 19. nóvember. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 28. nóvember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna s. 588-7555 eða hjúkrunarheimilið Sóltún s. 590-6000. Kristrún Daníelsdóttir, Ragnheiður Ingimundardóttir, Sigurður Gunnar Sveinsson, Guðmunda Ingimundardóttir, Þórarinn Björn Guðmundsson, Daníel Gunnar Ingimundarson, María Antonía Jónasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn, Elsa Drageide, Halldór Örn Svansson. ✝ Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ELSKU RÚRÝAR OKKAR. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á gjörgæsludeild Borgarspítalans og deild 6-b, deild 11-e Landspítala, blóðskilunardeild og gjör- gæsludeild Landspítala. Ennfremur kærar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hana af góðvild og mikilli umönnun á Grensásdeild og allra þeirra sem hafa gefið okkur styrk í veikindum hennar. Hildur Imma Gunnarsdóttir, Anna María Ingadóttir, Hildur Ágústsdóttir, Skarphéðinn Valdimarsson, Ragna Dúfa Skarphéðinsdóttir, Guðmundur Kjalar Jónsson, Ágúst Skarphéðinsson, Jóhann Þröstur Skarphéðinsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HELGA BJÖRNSDÓTTIR ÁRDAL frá Karlskála við Reyðarfjörð, lést föstudaginn 14. nóvember. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 25. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Barnaspítala Hringsins, sími 543 3700. Guðný Árdal, Björn Árdal, Gísli Alfreðsson, Kolbrún Sæmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elsku litli drengurinn okkar, ÓMAR INGI OLSEN ÓMARSSON, Sunnuvegi 10, Hafnarfirði, sem andaðist á heimili sínu laugardaginn 15. nóvember, verður jarðsunginn frá Hafnar- fjarðarkirkju mánudaginn 24. nóvember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á vökudeild Landspítalans við Hringbraut. Hanna Lovísa Olsen, Ómar Þór Júliusson, Jóhan Alexander, Sigurður Þór, Ingibjörg Olsen, Absalon Olsen, Sigurlaug Kristjansdóttir. ✝ Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, ODDNÝ JÓNSDÓTTIR frá Lunansholti, lést föstudaginn 21. nóvember á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Guðrún Jónsdóttir, Þuríður Jónsdóttir, Björgvin Kjartansson og frændfólk. Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919 ✝ Frændi okkar og bróðir, JÓN Þ. EINARSSON, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 27. nóvember kl. 15.00. Aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.