Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 6
6 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
G
rimmir en litríkir sjóræningjar í anda
Króks skipstjóra og hrottalegir
söngvar hafa reynst þrautseigt yrk-
isefni en það á rætur að rekja til gull-
aldar-sjóræningjanna frá upphafi 18.
aldar. „15 menn uppi á dauðs manns kistu, hæ hó
og rommflaskan með,“ var sönglað skrækum rómi
í Gulleyjunni, hinni frægu sögu Roberts Louis
Stevensons.
Sjórán hafa verið stunduð á flestum höfum jarð-
ar allt frá því að verslunarmenn hófu að nota sjó-
leiðina til vöruflutninga. Hægt er að finna skráðar
heimildir um sjórán allt frá 13. öld f. Kr. þegar sjó-
ræningjar herjuðu í Miðjarðarhafi. Sjóræningjar
nútímans eru ekki síður skæðir en forverar þeirra
þótt harkalegar aðgerðir gegn þeim eins og op-
inber réttarhöld og aftökur tíðkist ekki lengur.
Svipaðar starfsaðferðir og áður
„Sjómenn drógu þær ályktanir af meðferðinni á
sjóræningjum að slík starfsemi borgaði sig ekki.
Yfirvöld á okkar tímum eiga í vandræðum vegna
alþjóðalaga. Skipaeigendur geta gripið til ráða
eins og að hafa háþrýstidælur tiltækar eða raf-
magnsgirðingar, en allt vinnur sjóræningjunum í
hag,“ hefur BBC eftir dr. David Cordingly, sagn-
og sjóræningjafræðingi.
Cordingly segir starfsaðferðir sjóræningja ekki
hafa breyst svo ýkja mikið í gegnum aldirnar. Að-
almunurinn sé fólginn í því hvað þeir gera eftir að
skipin hafa verið yfirbuguð. „Áður fyrr tóku þeir
með sér verðmæti og yfirgáfu eða drápu áhöfnina.
Sjóræningjarnir í Karíbahafinu fóru ekki fram á
lausnargjald fyrir skipin. Það gera hins vegar sjó-
ræningjar nútímans og þ.á m. við Sómalíu,“ segir
Cordingly. Meðallausnargjald sem sómalískir sjó-
ræningjar fara fram á fyrir skip og áhafnir eru
tvær milljónir Bandaríkjadala. En gjaldið hefur
farið hækkandi að undanförnu og fer eftir verð-
mæti skipa og farms.
Mest hætta stafar af sjóræningjum við strendur
Sómalíu, Nígeríu og Indónesíu. Aukning sjórána
er fyrst og fremst rakin til aukinnar tíðni þeirra í
Adenflóa norðan við Sómalíu og í Indlandshafi við
Sómalíu austanverða. En þriðjungur allra sjórána
það sem af er ári átti sér stað á þessu svæði.
Flestir sjóræningjanna úti fyrir ströndum Sóm-
alíu styðjast við móðurskip og gera minni skip út
frá þeim til árása. Þeir nálgast skipin aftan frá á
nokkrum hraðbátum og skjóta svo akkerum að
skipunum sem við eru bundnir stigar og svo er
klifrað um borð. Nýjustu dæmi sýna að risaskip á
við olíuflutningaskipið Sirius Star, sem rænt var
um síðustu helgi og er á stærð við þrjá fótbolta-
velli, reynast sjóræningjum nokkuð auðveld bráð.
Búist við aukningu á næsta ári
Samkvæmt spá skrifstofu alþjóðlegra siglinga-
mála (IMB), sem gefur út vikulegar skýrslur um
sjórán á heimsvísu, er búist við mikilli aukningu
sjórána á næsta ári.
Á þessu ári hafa verið tilkynntar yfir 120 árásir
úti fyrir Sómalíu. Yfir 35 skipum hefur verið rænt
og um 600 skipsmenn verið teknir í gíslingu. Áber-
andi aukning varð á ránum á seinni hluta þessa
árs og þykir það benda til vaxandi vanda.
Þrátt fyrir aukinn viðbúnað alþjóðlegra flota við
Sómalíu gæti orðið erfitt að hindra sjóránin að
mati sérfræðinga. Indlandshaf er stórt hafsvæði
og auk þess að vera vel vopnum búnir hafa sjó-
ræningjarnir burði til að starfa langt á hafi úti.
Þeir eru því eins og nálar í heystakki.
Hæ hó og rommflaskan með!
Ríkisstjórn Sómalíu hefur verið
óstarfhæf allt frá því árið 1991
þegar herskáir ættbálkaleiðtogar
komu einræðisherranum Siad
Barre frá völdum og hófu svo
stríð hver á hendur öðrum. Nú-
verandi stjórn var mynduð af SÞ
árið 2004 en hefur ekki tekist að
vinna á fátækt og átökum í land-
inu.
Sómalía er eitt fátækasta land
heims og er meirihluti lands-
manna háður matvælaaðstoð,
heilbrigðisþjónusta er í lágmarki
og ólæsi mikið. Freistingin fyrir
unga menn til að ganga til liðs
við sjóræningja sem bera vel úr
býtum er því mikil. Ræningjarnir
skipta lausnarfénu á milli sín en
skipafélögin greiða iðulega
lausafé. Utanríkisráðherra Kenía
segir sómalska sjóræningja hafa
náð inn yfir 150 milljónum
Bandaríkjadala í lausnargjöld á
þessu ári. jmv@mbl.is
Fátækt gerir
sjóránin freistandi
WALESBÚ-
INN Sir Henry
Morgan var
uppi á 17. öld.
Hann stundaði
„lögmæt sjó-
rán“, þ.e. hafði
leyfi frá stjórn-
inni í London til
að ræna kaup-
skip óvina
Breta. J. Pierpont Morgan, auð-
kýfingur í Bandaríkjunum um
1900, frægur fyrir risastórt
klumbunef og ósvífni í peninga-
málum, sagðist vera afkomandi
sjóræningjans sem hefði lagt
grunn að auðæfum ættarinnar.
kjon@mbl.is
Lögmæt sjórán
og J. P. Morgan
J. P. Morgan
LÍF liðsmanna
Morgans og Blá-
skeggs var ekk-
ert sældar-
brauð,
grimmdin í garð
samherja og
fanga ægileg.
Menn urðu að
„ganga plank-
ann“, þ. e. steypa sér í sjóinn ef
grunur vaknaði um svik, aðrir
fengu að „sofa hjá dóttur kapt-
einsins“, þ.e. voru húðstrýktir
með gaddasvipu, enn aðrir
hengdir í reiðanum. Margir höfn-
uðu um borð í fangaskipi eftir
tap í orrustu og börðust þar við
rottur, lýs og kóleru. kjon@mbl.is
Engin sæla undir
hauskúpuflagginu
EITT af öflugustu skipa-
félögum heims, danska A. P.
Møller-Mærsk, hefur ákveðið að
láta sum af 50 tankskipum sínum
fara suður fyrir Góðrarvonar-
höfða í stað þess að nota Súes-
skurðinn. Ástæðan er vaxandi
hætta á sjóránum út af strönd
Sómalíu og við mynni Rauðahafs.
Frontline-skipafélagið í Noregi,
sem annast flutninga á miklum
hluta af olíu Mið-Austurlanda á
heimsmarkaðina, íhugar að feta í
fótspor Dananna.
Siglingaleiðin suður fyrir Afr-
íku er mun lengri en um skurð-
inn og ljóst að það gæti hækkað
verð á olíufatinu á mörkuðum ef
ekki tekst að stemma stigu við
sjóránunum. kjon@mbl.is
Dýrari olía vegna
sjóránanna?
ÍSLENSK skipafélög gera út allmörg fragtskip auk
þess sem þau leigja erlend skip til tímabundinna
verkefna. Eyþór Ólafsson, öryggisstjóri Eimskips,
segir afar sjaldgæft að skip á vegum félagsins sigli
um þekktar sjóræningaslóðir, megnið af flutn-
ingum þess sé á norðanverðu Atlantshafi.
„Okkar skip eru með vottað öryggiskerfi, það
byggist á svokölluðum ISPS-kóða sem Alþjóðasigl-
ingastofnunin gefur út. Við fáum alltaf upplýsingar
frá ríkislögreglustjóra um ástandið með aðstoð
þessa alþjóðakerfis, fáum að vita ef hætta er talin
hafa aukist. Þegar við sendum skip inn á hafsvæði
þar sem hættan er talin meiri en annars staðar
metum við hana og grípum til viðeigandi ráðstaf-
ana. Um borð er alltaf ákveðinn grunnviðbúnaður
en svo er notast við hækkuð viðbúnaðarstig.
Þarna á ég við vöktun af ýmsu tagi. En skip sem
sigla mikið um þessi svæði eru jafnvel með raf-
magnsgirðingar utan á skipinu og geta sett þær út.
Það er til margs konar búnaður af þessu tagi en við
höfum ekki séð ástæðu til að fara út í þannig við-
brögð. Fylgt er kerfi sem sett var á 2004, í fram-
haldi af árásunum 11. september 2001. Þar er notað
þetta áhættumat sem ég nefndi, grunnráðstafanir
og svo auknar ráðstafanir ef ástæða þykir til.“
– Oft er sagt frá bíræfnum sjóránum við hafnir í
Nígeríu, eruð þið stundum með skip þar?
„Ekki með eigin skip, það væru þá leiguskip eða
þá að við kaupum okkur „slot“ eða pláss í stórum
skipum aðila eins og Mærsk eða Hapag-Lloyd. Okk-
ar eigin skip eru öll skráð á Antigua og Barbuda.
Áhafnir á okkar helstu skipum, Fossunum, eru ís-
lenskar. En önnur skip eru líka að hluta mönnuð Ís-
lendingum og við erum oft með okkar íslensku full-
trúa, jafnvel upp í þrjá, á leiguskipunum.“
kjon@mbl.is
Sjaldan á sjóræningjaslóð
Reuters
Sjórán Sómalískur sjóræningi um borð í úkra-
ínska skipinu Faina sem var rænt í september.
Sjóræningjar hafa stundað iðju sína um heimsins höf svo öldum skiptir
Sjórán eru arðbær í Indlandshafi þar sem alþjóðleg flutningaskip eru auðveld bráð