Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
Útlán Glitnis
FL Group
Áhættu- Vextir Álag Fjármagns- Fastir v./ Útborgunar- Loka- Upphæð
flokkur kostnaður breytilegir dagur gjalddagi
05 7,5% 2,75% 0,45% Breytilegir 15.11.2007 15.05.2008 4,8 milljarðar
05 7,3% 2,75% 0,45% Breytilegir 20.11.2007 15.05.2008 6 milljarðar
05 7,5% 2,75% 1,0% Breytilegir 27.12.2007 27.12.2010 15,9 milljarðar
Samtals: 26,7 milljarðar
08 17,2% 2,95% 1,0% Breytilegir 16.11.2007 16.11.2008 19,6 milljarðar
05 16,1% 1,65% 0,45% Breytilegir 17.04.2007 15.04.2009 13,1 milljarður
05 16,1% 1,65% 0,45% Breytilegir 26.04.2007 15.04.2009 1,0 milljarður
05 16,1% 1,65% 0,45% Breytilegir 08.05.2007 15.04.2009 1,2 milljarðar
05 7,6% 1,85% 0,35% Breytilegir 09.08.2007 10.08.2010 3,1 milljarður
05 16,2% 1,85% 0,45% Breytilegir 14.01.2008 01.12.2008 0,3 milljarðar
Samtals: 18,7 milljarðar
Samtals: 65 milljarðar
Stím ehf.
Gnúpur
fjárfestingafélag
15stærstu skuldarar fyrirtækjasviðs Glitnis
Áhættu- Viðskiptastjóri Lánastjóri Upphæð
flokkur
FL Group hf. 05 Bjarni Jóhannesson Guðný Sigurðardóttir 26,6 milljarðar
Exista hf. 04 Halldór Halldórsson -Enginn- 22,8 milljarðar
Stím ehf. 08 -Enginn- -Enginn- 19,5 milljarðar
Gnúpur fjárfestingafélag ehf. 05 Halldór Halldórsson -Enginn- 18,8 milljarðar
Fons hf. 06 -Enginn- -Enginn- 15,3 milljarðar
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. 04 Eiríkur Benónýson Rósa J. Steinþórsdóttir 14,6 milljarðar
Baugur Group hf. 06 Bjarni Jóhannesson Runólfur G. Benediktsson 14,5 milljarðar
Milestone ehf. 04 Halldór Halldórsson Guðný Sigurðardóttir 14,0 milljarðar
Katla Seafood ehf. 04 -Enginn- Sólveig Ágústsdóttir 12,8 milljarðar
Landic Property hf. 05 Eiríkur Benónýson Guðný Sigurðardóttir 12,7 milljarðar
Kjalar Invest B.V. 06 -Enginn- -Enginn- 10,6 milljarðar
Fjárfestingafélagið Máttur ehf. 05 Halldór Halldórsson -Enginn- 8,8 milljarðar
Milton ehf. 07 -Enginn- -Enginn- 8,4 milljarðar
Þorbjörn hf. 04 Ragnar Guðjónsson Guðmundur S. Ragnarsson 7,5 milljarðar
Salt Investments ehf. 06 -Enginn- -Enginn- 7,5 milljarðar
upp á tæpa 23 milljarða króna, en það
fjárfestingarfélag kemur að öðru
leyti ekki við sögu í þessari umfjöllun.
Í þriðja sæti á lista yfir skuldara
bankans hinn 31. janúar sl. situr svo
leynifélagið sem upphaflega hét FS37
ehf. en þegar það dúkkar upp í lána-
bók Glitnis í janúar heitir það Stím
ehf. Þetta leynifélag skuldaði Glitni
31. janúar sl. hvorki meira né minna
en rúma 19,5 milljarða króna. Við
þessa lánveitingu er hvorki skráður
viðskiptastjóri né lánastjóri. Hvers
vegna skyldi það nú vera?!
Stím fékk lánaða hjá Glitni hinn
16.11. 2007, fyrir réttu ári, þessa 19,5
milljarða króna. Samtals var lánið,
sem var kúlulán til eins árs, með rúm-
lega 21% vöxtum en þá eru lagðir
saman vextirnir upp á 17,2%, vaxtaá-
lagið upp á 2,95% og fjármagnskostn-
aður upp á 1%. Lánið var ekki verð-
tryggt, en kunnugir telja að
vaxtaálagið, 2,5% hafi verið óeðlilega
lágt, raunar allt of lágt miðað við
áhættuna og að engar tryggingar
voru lagðar fram á móti láninu. Láns-
númerið á 19,5 milljarða króna láninu
til FS37 (Stíms) er samkvæmt lána-
bók Glitnis 310989. Lánið var veitt í
íslenskum krónum.
Þetta er því sérkennilegra eftir því
sem nánar er rýnt í lánayfirlitið úr
Glitni. Ekkert áhættumat lá til
grundvallar lánveitingunni, sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem aflað
hefur verið og enginn er skráður
ábyrgur fyrir lánveitingunni, hvorki
viðskiptastjóri né lánastjóri.
Engar tryggingar
Það var ekki fyrr en í janúarlok á
þessu ári sem Stím var tekið fyrir á
áhættumatsfundi í Glitni og var þá
flokkað í áhættuflokkinn 8, rúmum
tveimur mánuðum eftir að lánið var
veitt. Áhættuflokkur 8 þýðir mjög
mikil áhætta því ef lánað er sam-
kvæmt áhættuflokki 10 er beinlínis
verið að lána til gjaldþrota fyrirtækis.
Gnúpur fjárfestingafélag var í
fjórða sæti á lista yfir stærstu skuld-
ara fyrirtækjasviðs Glitnis hinn 31.
janúar sl. og skuldaði samtals 18,8
milljarða króna.
Basel-nefndin innan Bank of Int-
ernational Settlements (BIS – Al-
þjóðagreiðslubankinn) gefur út regl-
ur um stjórnun og eftirlit með
greiðsluhæfisáhættu (Principles for
Sound Liquidity Risk Management
and Supervision). Basel-reglurnar
kveða m.a. á um það að lántakendur
þurfa að fara í gegnum áhættumat.
Samkvæmt þeim eru lántakendur
flokkaðir niður í áhættuflokka, eftir
því hversu mikil áhætta fylgir lánveit-
ingunni og þarf sá sem flokkaður er í
áhættuflokk 8 að binda mun meiri
tryggingar á móti láninu en t.d. lán-
takandi sem flokkaður er í áhættu-
flokk 4 eða 5.
Ekki lá fyrir í janúar, samkvæmt
upplýsingum sem aflað hefur verið,
að nokkrar tryggingar hafi verið sett-
ar fram af hálfu Stíms ehf. fyrir þess-
ari tæplega 20 milljarða króna lán-
töku.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins ætti ákvörðun um lánveit-
ingar eins og þær sem veittar voru til
Stíms ehf. hinn 16. nóvember 2007 og
FL Group í desemberlok í fyrra að
fara bæði fyrir lánanefnd bankans og
áhættuvarnanefnd en það gerðist
ekki í ofangreindum tilfellum, sam-
kvæmt upplýsingum sem aflað hefur
verið.
Í þessum efnum er einnig athygli-
vert að lánið til FL Group var í
áhættuflokki 5, lánið til Stíms ehf. var
í áhættuflokki 8, 15,3 milljarða lán til
Fons eignarhaldsfélags í eigu þeirra
Pálma Haraldssonar og Jóhannesar
Kristinssonar var í áhættuflokki 6.
Athygli vekur að lánveitingin til Fons
er veitt á sama hátt og lánveitingin til
Stíms, og skráð í lánabók án þess að
nöfn viðskiptastjóra og lánastjóra
væru færð til bókar sem ábyrgð-
armenn viðskiptanna. Lánin til
Gnúps, samtals að upphæð 18,8 millj-
arðar króna, voru í áhættuflokki 5.
Samtals eru því þessir fjórir við-
skiptavinir Glitnis, FL Group, stærsti
hluthafinn í Glitni, Gnúpur, Stím og
Fons, þrír stórir hluthafar í FL, í
rúmlega 80 milljarða króna skuld við
Glitni í janúarlok á þessu ári.
Þegar litið er til þess að Baugur
Group hf. skuldaði á fyrirtækjasviði
Glitnis hinn 31. janúar sl. 14,5 millj-
arða króna, Katla Seafood ehf. (í eigu
Samherja, útgerðarfélags Þorsteins
Más Baldvinssonar, fyrrverandi
stjórnarformanns Glitnis o.fl.) 12,8
milljarða króna og Landic Property
hf. (í eigu FL Group, 40%, ISP ehf.,
eignarhaldsfélags í eigu Ingibjargar
Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar,16,38%, Glitnis banka
5% o.fl.) skuldaði 12,7 milljarða
króna, bætast aðrir 40 milljarðar
króna við skuldir þessa tengda við-
skiptamannahóps í Glitni og skuld
þeirra við bankann fyrir rúmum níu
mánuðum stóð þannig í rúmum 120
milljörðum króna.
Loks ber að geta skuldar Milton
ehf. við Glitni, en það er eignarhalds-
félag í eigu Baugs. Félagið skuldaði
Glitni hinn 31. janúar sl. 8,4 milljarða
króna og enn kemur á daginn, þegar
lánabókin góða er skoðuð, að hvorki
viðskiptastjóri né lánastjóri er skráð-
ur sem ábyrgðarmaður viðskiptanna.
Og þá eru skuldir tengdra aðila við
fyrirtækjasvið Glitnis þar með farnar
að nálgast 130 milljarða króna miðað
við stöðuna í byrjun þessa árs. Á
þessari stundu er útilokað að segja til
um það hversu miklir fjármunir af
þessum lánum eru bankanum tapaðir
en þó óhætt að fullyrða að hér ræðir
um marga tugi milljarða króna.
Ef Stím hefði staðið í skilum og
greitt lánið upp hinn 16. nóvember í
ár, hefðu tekjur lánveitingarinnar
fyrir Glitni verið um 4,15 milljarðar
króna. Ekki liggur fyrir hversu miklu
Glitnir hefur tapað á ofangreindri
lánveitingu, en Stím mun hafa greitt
inn á lánið, að minnsta kosti á fyrsta
fjórðungi þessa árs.
Þegar reynt er að afla upplýsinga
um FS37 ehf. og sömuleiðis Stím ehf.
fyrir utan þær upplýsingar sem eru
fyrir hendi í lánabók Glitnis kemur
fátt á daginn.
Að vísu virðist ekkert vera til í
lánabókum Glitnis um FS37 enda er
félagið ekki til á skrá fyrirtækjaskrár
hjá Ríkisskattstjóra. En hjá fyr-
irtækjaskrá liggja fyrir örlitlar upp-
lýsingar um Stím ehf. Þær eru þess-
ar: Félagið var stofnað 26. október
2007. Lögheimili þess er í Hafn-
arstræti 53 á Akureyri. Stjórn félags-
ins skipar, samkvæmt fundi hinn 16.
nóvember 2007 (sama dagsetning og
er á tæplega 20 milljarða lánveitingu
frá Glitni til félagsins í fyrra – innskot
blaðamanns) Jakob Valgeir Flosason
til heimilis að Línakri 1 í Garðabæ.
Hann er skráður stjórnarformaður.
Enginn er skráður í framkvæmda-
stjórn, enginn er skráður með pró-
kúruumboð en KPMG hf., Borg-
artúni 27 er skráð sem
endurskoðandi. Firmað ritar stjórn-
arformaður og það eru hömlur á með-
ferð hlutabréfa en ekki lausnarskylda
á hlutum.
„Tilgangur félagsins er eignarhald,
umsýsla, kaup og sala verðbréfa
ásamt lánastarfsemi og öðrum tengd-
um rekstri,“ segir orðrétt í vottorði
fyrirtækjaskrár.
Eins og áður segir var Gnúpur
fjárfestingafélag í fjórða sæti á lista
skuldara í Glitni hinn 31. janúar sl..
Glitnir tók Gnúp reyndar yfir vegna
gjaldþrots félagsins hinn 8. janúar sl.
Bankinn tók félagið yfir án þess að
það væri gert upp og það var því
áfram skráð á sömu eigendur og áð-
ur, en samkvæmt mínum upplýs-
ingum gat Glitnir hvenær sem stjórn-
endur bankans kærðu sig um, tekið
félagið formlega yfir fyrir EINA
KRÓNU!
Eftir að Glitnir hafði tekið Gnúp yf-
ir og stjórn þess félags án þess að
gera það nokkurn tíma opinbert, þá
var gengið í það að hafa skipti á bréf-
um við Fons ehf. þannig að FL Group
bréf Gnúps voru flutt til Fons og í
staðinn fékk Gnúpur bréf Fons í
Landic Property, félagi sem var einn-
ig komið í bullandi vandræði í janúar.
Út frá bankalegum forsendum eru
þessar tilfærslur óskiljanlegar því
sennilega hefði verið vitinu nær að
selja bréf Gnúps í FL Group og fá
þannig greiðslur, a.m.k. upp í 18,8
milljarða króna skuldir Gnúps við
Glitni. Varla getur verið að forsvars-
menn Glitnis hafi gert sér í hug-
arlund, að bréfin í Landic Property
væru svo arðsöm fjárfesting að arð-
urinn af þeim stæði undir afborg-
unum og vöxtum af hinum háu lánum
Gnúps, sem voru á yfir 21% vöxtum.
Nei, enn eina ferðina var verið að
nota Glitni, almenningshlutafélag í
eigu um 11 þúsund hluthafa til þess
að taka þátt í hlutabréfaleik helstu
eigenda FL Group og bankinn og eig-
endur hans tóku á sig kostnaðinn,
sumir meðvitað, flestir án þess að
hafa hugmynd þar um og stjórnendur
Glitnis léku með.
Í spilaborg FL Group
Þetta var hin raunverulega skýring
á því að Fons varð skyndilega svo
stór hluthafi í FL Group. Bent er á að
í stað þess að ganga í það að selja bréf
Gnúps í FL Group og fá þannig
greiðslur upp í tæplega 19 milljarða
króna skuldir Gnúps við Glitni hafi
forráðamenn bankans einfaldlega
haldið áfram að spila með í spilaborg
FL Group og stærstu hluthafa félags-
ins án þess nokkurn tíma að setja
hagsmuni bankans, viðskiptavina og
annarra hluthafa í forgang.
Í janúar sl. lækkaði Moody’s láns-
hæfiseinkunn Glitnis vegna aukn-
ingar bankans á lánum til tengdra að-
ila. Augljóslega hafa þessar
lánveitingar til FL Group, Gnúps,
Fons, Stíms, Landic Property, Mil-
tons og Baugs (allt tengdir aðilar)
haft mestu áhrifin á þá niðurstöðu
Moodýs og þannig skipt máli að
Glitnir þurfti að sætta sig við verri
lánskjör þegar í upphafi þessa árs-
sem vitanlega bitnaði á öllum við-
skiptavinum og hluthöfum Glitnis.
Þ að voru nokkrir „stórlaxar“ úr hópi stærstu hlut-hafa í FL Group, þeir Jón Ásgeir Jóhannesson fyrirBaug, Hannes Smárason fyrir Oddaflug og einn
eða tveir aðrir, sem ákváðu á leynifundi í október í fyrra-
haust, að nú þyrftu þeir að taka höndum saman, stofna
félag, kaupa upp þau fáu bréf í FL sem voru raunveru-
lega á markaði og ná þannig að halda uppi gengi bréfa
FL sem hafði ekki gert neitt annað en hríðfalla.
Það voru ekki nema örfá prósent af bréfum í FL sem
raunverulega voru á markaði þegar þetta var, en alltaf
þegar viðskipti áttu sér stað, gerðist sami hluturinn.
Gengi bréfanna féll frá síðustu viðskiptum og þetta var
farið að pirra stórlaxana fyrrverandi allverulega. Þeir
voru að vísu raunverulegir stórlaxar, þegar þeir lögðu á
ráðin um slíkan björgunarleiðangur, að minnsta kosti að
nafninu til, en ekki lengur. Það er önnur saga.
FS 37 ehf var stofnað „í samvinnu við“ Jakob Valgeir
Flosason. Glitnir lánaði tæpa 20 milljarða til félagsins,
sem notaði rúma 8 milljarða til þess að kaupa upp hið
litla bréfamagn í FL sem var í umferð og um leið var
keyptur hluti í Glitni, í sama tilgangi, þ.e. að halda uppi
gengi á fallandi bréfum í Glitni.
Við þessa afgreiðslu Glitnis á láni til leynifélagsins
FS37 ehf., sem skömmu síðar var breytt í Stím ehf., fór
allt á fleygiferð meðal starfsmanna Glitnis, sem höfðu
einhverjar hugmyndir um lánveitinguna. Það átti jafnt
við um yfirmenn sem almenna starfsmenn. Þeir telja al-
veg ljóst að aldrei hafi nokkrar ábyrgðir verið lagðar
fram vegna þessarar lánveitingar, ekkert áhættumat
hafi farið fram og í lánabókum bankans sé ekki að finna
nokkurt nafn sem sé ábyrgt fyrir lánveitingunni.
Einhverjir starfsmenn reyndu að kynna sér hvað
þarna væri á ferðinni og komust að raun um að fyrir fé-
laginu Stím ehf. var einn maður skráður, Jakob Valgeir
Flosason, útgerðarmaður í Bolungarvík. Engar frekari
upplýsingar fengust.
Hvað veldur því að ungur útgerðarmaður vestan af
fjörðum tekur lán fyrir ári upp á tæpa 20 milljarða
króna, til þess að kaupa hlutabréf í félagi sem er í
frjálsu falli? Auðvitað olli því ekkert annað en það, að
Jakob Valgeir lánaði nafn sitt eða leigði, á leynifélag
þeirra FL-félaganna, sem stærstan áttu hlut í félaginu.
Hvort hann fékk þóknun fyrir vikið og hver hún var fyrir
nafnalánið eða leigu, skal hér látið liggja á milli hluta.
FS37 – Stím
10stærstu hluthafar FL Group
15.11.2007 22.11.2007
Röð Nafn Hlutfall
1 Oddaflug B.V. 20,5%
2 Gnúpur fjárfestingafélag hf. 17,2%
3 BG Capital ehf. 15,9%
4 Materia Invest ehf. 9,2%
5 GLB Hedge 5,7%
6 Sund ehf 4,8%
7 Glitnir banki hf. 3,6%
8 Kristinn ehf. 2,0%
9 LI-Hedge 2,0%
10 Icebank hf. 1,5%
Röð Nafn Hlutfall
1 Oddaflug B.V. 20,5%
2 Gnúpur fjárfestingafélag hf. 17,3%
3 BG Capital ehf. 15,9%
4 Materia Invest ehf. 9,2%
5 GLB Hedge 4,8%
6 Sund ehf 4,8%
7 FS37 ehf. 4,1%
8 Kristinn ehf. 2,0%
9 LI-Hedge 1,9%
10 Icebank hf. 1,6%