Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 17

Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 17
SIGURBJÖRN BISKUP ævi og starf Sigurbjörn Einarsson biskup átti að baki sér fjölþættan og með köflum svipvindasaman lífsferil sem er vel lagaður fyrir fróðleg og tilþrifamikla ævilýsingu. Þessi bók bregður upp fjölda eftirminnilegra mynda úr langri og litríkri lífssögu, allt frá dauða móður hans og kröppum kjörum bernskuáranna í Meðallandi, til erfiðra námsára í Reykjavík og Uppsölum, prestskaparára á Skógarströnd og í Reykjavík, kennsluára við Háskóla Íslands og langs embættisferils á biskupsstóli. Inn í þá fjölskrúðugu sögu fléttast þættir úr þjóðvarnarbaráttunni á 5. áratug aldarinnar og baráttunni fyrir endurreisn Skálholts á 6. áratugnum. Hann kvæntist Magneu Þorkelsdóttur árið 1933 en hún lést árið 2006. Eignuðust þau átta börn og eru sex á lífi. Sigurbjörn lést 28. ágúst 2008. Hann er einn dáðasti Íslendingur síðustu aldar. Sigurður A. Magnússon rithöfundur hafði náin kynni af Sigurbirni allt frá unglingsárum og fylgdist með honum gegnum tíðina. Þessa bók samdi hann eftir samtölum við Sigurbjörn og jafnframt eftir prentuðum heimildum. Dregur hann upp ákaflega ljósa og blæbrigðaríka mynd af Sigurbirni í þeim margvíslegu hlutverkum sem hann gegndi og bregður um leið birtu yfir marga málsmetandi samferðamenn hans. Bókin er 400 blaðsíður og prýða hana á annað hundrað ljósmyndir. Hafa sumar fjölskyldumyndir aldrei birst áður. Sigurbjörn biskup var andlegur fjallgöngumaður, gnæfði yfir aðra kristna kennimenn á Íslandi. Hann var virtasti og elskaðasti trúarleið- togi sem Íslendingar hafa átt um langan aldur. Lífsstarf hans varð svo sannarlega náðargjöf handa Íslendingum og þjóðkirkju þeirra. Leiðari í Morgunblaðinu 29. ágúst 2008

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.