Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 30

Morgunblaðið - 23.11.2008, Page 30
30 Ferðaþjónusta MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 Fix Töframassinn Hreinsar, fægir og verndar samtímis Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Tengi - Melabúðin - Verkfæralagerinn - Eyjatölvur Miðstöðin Vestmannaeyjum - Pottar og prik Akureyri - Rafsjá Sauðárkróki - Áfangar Keflavík Skipavík Stykkishólmi - Nesbakki Neskaupsstað - Vélaleiga Húsavíkur - Verslanir Rönning Litabúðin Ólafsvík - Tengi - Byggt og búið - SR byggingavörur Siglufirði - Núpur Ísafirði Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf. Hentar vel til þrifa á blöndunartækjum, vöskum, ryðfríu stáli, áli, kopar, messing, gleri, plasti, lökkuðum flötum, kristal, keramiki, postulíni o.fl. Svampur fylgir með - Fitu- og kýsilleysandi - Húðvænt - Náttúrulegt - Mjög drjúgt „Við reynum að láta sköpunargleðina, umhyggju- semina og ástina ráða ríkjum í eldhúsinu okkar enda erum við í þessum bransa af lífi og sál. Upp- skriftirnar verða allar til í tilraunaeldhúsinu okkar heima og markmiðið er svo auðvitað það að við- skiptavinirnir skynji hollan heimamat í fram- leiðsluvörum Móður náttúru. Þetta er okkar mót- vægi við óholla skyndibitann, sem alltof oft ratar í munn og maga stórra sem smárra,“ segja hjónin og matgæðingarnir Valentína Björnsdóttir og Karl Eiríksson, sem reka fyrirtækið Móður náttúru og útbjuggu hollan íslenskan „brunch“ fyrir banda- rísku blaðamennina í galleríinu hjá Tolla innan um myndverk og músík þeirra bræðra. Hollustan er í hávegum höfð í hverjum rétti hjá þeim hjónum sem trúa því staðfastlega að hollur mati hafi mikið forvarnargildi. Ekki veiti af að sporna gegn allri óhollustunni, sem nú tröllríði hinum vestræna heimi. Í matargerð geti Íslend- ingar svo sannarlega verið til eftirbreytni með ferskt og flott hráefni allt um kring. Þó sjálf séu þau Valentína og Karl ekki algjörar grænmetisætur sérhæfa þau sig í gerð næring- arríkra og hollra grænmetisrétta undir merkjum Móður Náttúru, sem er afsprengi átaksins Auður í krafti kvenna og stofnað var í desember árið 2003. Fyrirtækið hefur, að sögn eigenda, fengið einkar góðar og sívaxandi viðtökur. Þrettán starfs- menn starfa nú hjá fyrirtækinu, sem er með að- stöðu í Grafarvogi og selur vörur sínar í flestar matvöruverslanir og mörg mötuneyti. Auk þess er fyrirtækið nú að hefja þjónustu með heitan mat til fyrirtækja í hádeginu. „Í okkar huga er hollustan spurning um lífsstíl og val. Það er vel hægt að temja sér holla lífs- hætti ef skynsemin fær að ráða för,“ segir Valent- ína, sem segir fyrirtækisreksturinn tvinna saman áhuga sinn annars vegar á mat og hinsvegar á hollustu og heilbrigði. Sjálf er Valentína svæð- anuddari að mennt en eiginmaðurinn er mat- reiðslumeistarinn á heimilinu. „Grænmetisréttir eru auðveldir í matreiðslu og fara einkar vel í maga. Auk þess geta baunaréttir verið holl og góð búbót nú þegar heimilin þurfa að spara,“ segir Valentína í spjalli við blaðamann á meðan banda- rísku gestirnir gæddu sér á veitingunum og gerðu góðan róm að. Í nesti fékk blaðamaður svo upp- skrift að Smalaböku, uppfullri af hollustu, en fleiri uppskriftir má finna á vef Móður náttúru, www.modirnattura.is Mótvægi við skyndibitann Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur R eykelsisilmur liggur í loft- inu á vinnustofu mynd- listarmannsins Tolla í Reykjavík þar sem sam- an er kominn sjö manna hópur bandarískra fjölmiðlunga í sunnudagshádegi ásamt nokkrum Íslendingum, sem skipulögðu fjög- urra daga ferðalag þeirra til Íslands. Tolli gengur um á milli gestanna og svarar spurningum um list og land á meðan bróðir hans Bubbi lemur gít- arinn og kyrjar nokkur af flottustu lögunum sínum. Einhver útlenski blaðamaðurinn undrar sig á að þess- ir tveir hæfileikaríku listamenn skuli tengdir bræðraböndum, en bætir svo við að það sé kannski ekkert svo ýkja skrýtið í ljósi þess að Íslend- ingar hefðu þrátt fyrir fámenni og margt annað margsannað mátt sinn og megin. Auk eyrna- og augnkon- fekts fá bragðlaukarnir líka sitt því búið er að dekka upp borð með „brunch“ að hætti Móður náttúru. Allt er gert til að freista þess að fanga athygli erlendu blaðamannana enda eru viðskipti í húfi og það jafn- vel mikil, ef vel tekst til. Ekki veitir af mitt í allri kreppunni! „Ó, ég elska Ísland. Hér er allt svo „kúl“ og maturinn hreint frábær. Það kom mér verulega á óvart. Ég kem örugglega aftur. Við erum búin að upplifa svo margt skemmtilegt á fjórum dögum. Þetta er búið að vera stanslaust partí út í gegn allan tím- ann,“ segir blaðakonan Christina Tynan Wood brosandi út að eyrum skömmu áður en hópurinn kvaddi Ísland, reynslunni ríkari og með já- kvæða upplifun í farteskinu sem rat- ar vonandi beinustu leið í bandaríska prent- og ljósvakamiðla. Matur og menning Í Íslandsheimsókninni var lögð sérstök áhersla á að kynna jarð- varma og orkunýtingu í bland við lífsstíl, mat og menningu. „Útlendingar heillast mjög af því hversu stoltir Íslendingar eru af landinu sínu og það smitar vissulega út frá sér á heillandi og jákvæðan hátt. Persónuleg tengsl við fólk er okkar langbesta landkynning. Við eigum við að einblína á að selja okk- ur út á við sem þjóð og nota til þess mannlegar tengingar,“ segir Þor- varður Goði Valdimarsson, mark- aðsstjóri Iceland Travel, sem er stærsti ferðaheildsalinn hér á landi. Iceland Travel, sem er dótturfélag Icelandair, hefur yfir þrjátíu ára reynslu í móttöku erlendra ferða- manna. Starfsmenn fyrirtækisins eru um sjötíu og starfa á þremur markaðssvæðum: í fyrsta lagi Norð- ur-Evrópu, í öðru lagi Suður-Evrópu og í þriðja lagi teljast Ameríka, Kan- ada, Ástralía og Asía til eins mark- aðssvæðis. Að auki rekur fyrirtækið hvataferðadeild, ráðstefnudeild og skemmtiferðaskipadeild. Helsti vaxtarbroddurinn í mark- aðssetningu íslenskrar ferðaþjón- ustu erlendis er nú í Norður- Ameríku, að sögn Þorvarðar, ekki síst fyrir tilstuðlan landkynning- arverkefnisins Iceland Naturally, sem hófst þar árið 2000 og vinnur Ferðamálastofa, að sögn Þorvarðar, mjög gott starf í þágu landkynn- ingar. Verkefnið felur í sér samstarf stjórnvalda og íslenskra fyrirtækja með starfsemi á þessu markaðs- svæði. Á vegum verkefnisins hefur m.a. verið unnið að skipulagningu og þátttöku íslenskra aðila í viðburðum fyrir almenning, sem hafa það mark- mið að vekja athygli á Íslandi sem spennandi ferðamannastað og styrkja ímynd landsins með áherslu á hreina náttúru og blómstrandi menningu. „Við eigum fyrst og fremst að leggja áherslu á að fá til landsins ferðamenn, sem hafa efni á því að ferðast um Ísland. Miklu betra er að fá fáa og dýra ferðamenn en marga og ódýra. Í heiminum er til margt ríkt fólk, sem vill sækja út í náttúr- una, en búa á hótelum,“ segir Ólafur William Hand, athafnamaður og fyrrverandi markaðsstjóri Ferða- málaráðs í New York. „Ferðabrans- inn hefur staðið af sér mikið öldurót í gegnum tíðina, en með öllum þeim frábæru afþreyingarmöguleikum, sem hér hafa verið að byggjast upp, trúi ég því að lúxusferðir til Íslands verði hátt skrifaðar hjá hinum vel borgandi ferðamönnum. Við eigum ekki að keppa við Mallorka eða þýskar ferðaskrifstofur, sem smala fólki upp í rútur eins og um réttir væri að ræða og gefa svo öllum sama matinn á garðann. Við eigum miklu fremur að skapa okkur sérstöðu með því að gera út á lúxus og háklassa í öllum aðbúnaði. Við eigum að stefna að því að markaðssetja Ísland sem lúxusland. Það er engin spurning í mínum huga,“ segir Ólafur. Lífsháski og listamenn En hvernig er árangursrík land- kynningarferð í raun og veru, að mati markaðsmanna? „Það á að hóa saman hæfilega mörgum erlendum Lúxus í litlu landi Íslendingar eiga að einbeita sér að vel borgandi ferðamönnum, stefna að því að markaðssetja litla Ísland sem lúxusland og nota til þess ríkan mannauð og þjóðmenningu sem afl á erfiðum tímum. Ferðamálastofa hyggstbeita sér af krafti og halda á lofti jákvæðri umfjöllun um Ísland í erlendum fjölmiðlum, meðal annars með blaðamannaferðum til Íslands og almannatengslastarfi.                     !    " "# $ Ánægð Hjónin Dan Tynan og Christina Tynan Wood starfa bæði sem blaða- menn í Bandaríkjunum. Þau voru hæstánægð með Íslandsdvölina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.