Morgunblaðið - 23.11.2008, Side 48

Morgunblaðið - 23.11.2008, Side 48
48 Bækur MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 1. Hvaða þjóðlegu gildi eru þér mik- ilvægust? Íslenski fáninn eftir að herinn fór og náttúrlega svið, hákarl og hangi- ket að ógleymdum súrum hrúts- pungum. 2. Af hverju ert þú stoltastur á starfsferlinum? Að hafa ekki gerst viðhlæjandi yf- irvalda hverju sinni og reynt að beita upp í vindinn sem fréttamað- ur. 3. Ef þú ættir kost á að gefa ráða- mönnum þjóðarinnar eitt ráð, hvað myndir þú ráðleggja þeim? Að þeir geri sér grein fyrir að það búa manneskjur í þessu landi með vonir og þrár og að þotuliðið er ekki sá klettur sem framtíð okkar veltur á. 4. Hvaða manneskju lífs eða liðinni dáist þú mest að – og hvers vegna? Ég hef aldrei verið snokinn fyrir persónudýrkun, en ég get ekki neit- að því, að ég hef haft Steinólf bónda í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd til nokkurrar fyrirmyndar í andlegum og verklegum efnum. 5. Á Ríkisútvarpið að fara af aug- lýsingamarkaði? Já, ef tekjutapið verður bætt stofnuninni, sem aldrei yrði gert og því er svarið nei. Tilgangurinn með öðrum ljósvakamiðlum hefur verið að hrifsa út úr þeim fé, en ekki menningarauki fyrir fólkið í landinu. 6. Nefndu tvo helstu galla þína og tvo helstu kosti. Mér er sagt á heimilinu að ég fari frjálslega með neftóbakið. Svo er ég skratti langrækinn. Eðli sveitamannsins er kostur, að trúa því að baslið skili sér í hverju verki, hvort sem það eru bíla- viðgerðir eða sjónvarpsvinna. 7. Hvenær komst þú mest í hann krappan? Þegar ég þurfti að standa frétta- vaktina sólarhringum saman í snjó- flóðunum á Vestfjörðum 1995. Þá gránaði hár mitt, ég sé það á ljós- myndum, fyrir og eftir eins og Jó- hannes Birkiland fyrir og eftir Kleppsvist sína. 8. Hver eru meinlegustu mistökin, sem hafa hent þig í útvarpi eða sjónvarpi? Ósofinn eftir sveitarstjórnarkosn- ingar, þegar ég talaði um spillingu í Bolungarvík. Freud tók völdin og undirsjálfið tók ekki tillit til þess, að míkrófónn var á svæðinu. 9. Hver og hvar ertu í þínum villt- ustu draumum? Ég er náttúrlega bóndi í fögrum dal með lagðprúðar ær og sællega nautgripi. 10. Finnst þér fjölmiðlum hafa láðst að spyrja lykilspurninga/r í umfjöllun um fjármálakreppuna á Íslandi? Mér finnst það eiginlega ekki, svarið liggur svo í augum uppi. 11. Eru Vestfirðingar að einhverju leyti ólíkir löndum sínum annars staðar á landinu? Vestfirðingar eru lang-barðasti þjóðflokkurinn á Íslandi ásamt þeim á norðausturhorninu, en samt kyssa þeir alltaf á vöndinn samanber af- stöðu þeirra til kvótaflokkanna, sem þeir kjósa alltaf yfir sig, hvað sem á gengur og þótt flæði stöðugt undan þeim. 12. Þú skrifar um afa þinn í nýju bókinni þinni, Í húsi afa, er eitthvað líkt í þínu húsi í Hnífsdal og hans húsi? Já, já, það er margt originalt í báðum þessum húsum, en Hnífs- dalshúsið er miklu betur viðað eins og Tryggvi vinur minn Guðmunds- son, lögfræðingur og fasteignasali, orðaði það, þegar hann reyndi að selja mér húsið fyrir 26 árum. Síðan hef ég betrumbætt kofann á hverju ári og verið eitt helsta skemmtiefnið á þorrablótum Kvenfélagsins í Hnífsdal. Á hvaða hringferð er still- ansinn núna um húsið? 13. Hvað ertu að sýsla þessa dag- ana? Ég er náttúrlega að fylgja eftir þessari síðustu bók, Í húsi afa míns. Þetta er eins og grásleppuvertíð, þú fiskar lítið, ef þú leggur ekki trossur í sjó. vjon@mbl.is Maður eins og ég | Finnbogi Hermannsson, rithöfundur Trúi því að baslið skili sér í hverju verki Morgunblaðið/RAX  Finnbogi Hermannsson rit- höfundur fæddist 20. sept- ember 1945.  Hann ólst upp hjá foreldrum sínum, Guðrúnu Valborgu Finn- bogadóttur húsmóður, sem enn lifir, og Hermanni Guðlaugs- syni, húsgagnasmið í Reykjavík.  Hann og kona hans, Hansína Guðrún Garðarsdóttir hús- móðir, búa í Hnífsdal. Þau eiga samtals fjögur börn og sjö barnabörn. Finnbogi á eina dóttur af fyrra hjónabandi og Hansína son úr fyrri sambúð.  Finnbogi er MA-stúdent, en brautskráðist frá KHÍ árið 1980. Hafði löngum framfæri sitt af því að undirvísa börn í krist- indómi og ögn í reikningi eins og Ólafur Kárason.  Dagskrárgerðarmaður við út- varp 1980 og fastráðinn frétta- og dagskrárgerðarmaður 1986. Forstöðumaður Svæðisútvarps Vestfjarða 1986-2007. Hann var jafnframt fréttamaður Útvarps og Sjónvarps.  Finnbogi hefur samtals skrif- að þrjár bækur, Huldu og Ein- ræður Steinólfs bónda í Ytri- Fagradal. Bókin Í húsi afa míns er nýkomin út og fjallar um líf reykvískrar fjölskyldu á eft- irstríðsárunum. LÍFSHLAUP FINNBOGA Opinn fundur!! Opinn fundur um efnahags- og heilbrigðismál verður með Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi við Austurberg mánudaginn 24. nóvember kl. 20:00. Allir velkomnir! Sjálfstæðisfélögin í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi og Hóla- og Fellahverfi Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Hvenær er maður dauður og hvenær er maður ekki dauður? Er hægt að vera hvorttveggja?“ spyr Helgi Guð- mundsson rithöfundur í nýjustu bók sinni Til baka sem hann skilgreinir sem sannsögulega skáldsögu. Þetta eru ekki heimspekilegar pælingar út í bláinn heldur lá höf- undurinn um tíma bókstaflega milli heims og helju eftir misheppnaða aðgerð á sjúkrahúsi. „Eins og ástatt er fyrir mér hef ég enga hugmynd um hvort ég er dauð- ur eða lifandi,“ heldur Helgi áfram í bókinni. „Ég skynja ekkert og líf- færin starfa ekki að eigin frum- kvæði. Ef líffærin starfa ekki upp á eigin spýtur og ég hef enga skynjun af nokkru tagi, er þá fráleitt að álíta mig dauðan?“ Bókin byggist á reynslu sem Helgi varð fyrir árið 2001. Erindi hans á spítalann var að láta gera við vélindabakflæði. Aðgerðin er ekki talin neitt þrekvirki lengur og sjúk- lingurinn á að vera kominn til vinnu eftir viku. Það gerðist ekki í tilviki Helga, vitundin skilaði sér ekki aft- ur, vegna mistaka læknis. Algjör hryllingur „Frásögnina byggi ég á minni reynslu, auk þess sem ég hafði skjöl spítalans í höndunum. Þetta var al- gjör hryllingur fyrir mig og fjöl- skylduna,“ segir Helgi í samtali við Morgunblaðið en hann var 55 daga á spítalanum, þar af mjög lengi milli heims og helju í öndunarvél. „Mér fannst ástæða til að koma þessari sögu til skila enda gríðarleg reynsla að dansa á hárfínni línu milli lífs og dauða. Margir spurðu mig í kjölfarið hvort ég hefði í raun og veru dáið og séð yfir um.“ Og hverju svaraðir þú? „Ég svaraði því til að maður í þessu ástandi hljóti tæknilega séð að vera dauður. Ég sá allskonar sýnir en gerði mér ekki grein fyrir því hvort það var vitund af einhverju tagi. Ég sá meðal annars fjöldann allan af erlendu fólki, m.a. Víetnama og indíána, og starfsfólk spítalans gekk í gegnum þetta fólk. Þegar ég var kominn með sæmilega vitund spurði ég hvort þetta fólk starfaði á spítalanum en það reyndist ekki vera. Vísindin segja að ég hafi verið hérna megin þegar ég sá þessar sýn- ir en einhverjir myndu halda því fram að ég hafi séð yfir línuna.“ Hvað heldur þú sjálfur? „Ég hef ekki trú á því að það sé neitt fyrir handan og þessi upplifun hefur engu breytt um það. Ég hef ekki ennþá beðið Guð að hjálpa mér og hafði í raun miklu meiri trú á þessu ótrúlega duglega starfsfólki spítalans sem vakti yfir mér dag og nótt. Þar á ég sér- staklega við hjúkrunarkon- urnar. Það er undur hvernig þær geta unnið við þessi skilyrði.“ Skáldaður fylgdarsveinn Fylgdarsveinn fer með Helga gegnum bókina og höfundurinn staðfestir að hann sé skálduð per- sóna. Sitthvað fleira eigi sér heldur ekki stoð í veruleikanum. „Það breytir þó ekki því að ég kom út úr þessu með þennan fylgdarsvein í huganum og gat því strax farið að skrifa. Ég byrjaði á sögunni haustið 2001 en réð ekkert við þetta þá. At- burðirnir stóðu mér of nærri, ég var alltof reiður og sorgmæddur. Ég tók upp þráðinn fyrir tæpu ári og þá gekk þetta miklu betur.“ Erfitt er fyrir þá sem ekki hafa reynt að setja sig í spor Helga. Hann segir það hafa verið gríðarlega erfitt að geta hvorki tjáð sig né hrært og hlýða á fólk í kringum sig velta því fyrir sér hvort hann myndi lifa þetta af. Eftir að hann komst til vitundar segir hann þrautirnar á löngum köfl- um hafa verið óbærilegar. „Þar sem ég lá í rúminu sá ég á klukkuna …“ Moggaklukkuna. „Já, helvítis Moggaklukkuna,“ segir Helgi hlæjandi. „Mér varð starsýnt á sekúnduvís- inn og tilhugsunin um að hann ætti eftir að snúast heilan hring var óbærileg. Svo voru hinir vísarnir eft- ir. Þetta gekk svo langt að ég bað um að tækin yrðu tekin úr sambandi. Ég tal- aði um það við konuna mína en sem betur fer fór hún ekki lengra með þá beiðni. Menn missa alla eðlilega dómgreind þeg- ar þeir eru svona kvaldir.“ Engin beiskja Helgi kveðst ekki vera beiskur eftir þessa nöt- urlegu reynslu. „Ég kenni engum um þetta. Þetta var ekki viljaverk, langt því frá. Þegar málið var gert upp lækn- isfræðilega kom fram hjá landlækni að ákveðinn maður hefði brugðist rangt við en ég hugsa ekki um það í dag. Þvert á móti geri ég gys að mér í bókinni og spauga við lækna og hjúkrunarfólk í sögunni. Það er eng- in uppgerð, um leið og ég komst til vitundar byrjaði ég að spauga. En svo missti ég málið og allan mátt úr líkamanum um tíma. Sem betur fer lagaðist það enda fór mátturinn vegna hreyfingarleysis en ekki vegna skemmda í vöðvum.“ Helgi hefur náð sæmilegri heilsu en er eigi að síður öryrki. Hann var það raunar af öðrum ástæðum fyrir en svo bættist þetta við. Í dag leggur hann stund á sagnfræðinám, auk þess að fást við skriftir. „Ég hef ver- ið dreginn í hlé, eins og ég segi.“ Hvenær er maður dauður? Helgi Guðmundsson segir átakanlega sjúkrasögu sína í sannsögulegri skáldsögu Til baka - Helgi Guðmundsson Helgi Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.