Skinfaxi - 01.02.1934, Qupperneq 8
8
SKINFAXI
því að liann var liverjuni manni hvassyrtari og rök-
fimari, er hann vildi heila því.
„Unglingafélag Eystri-Tungunnar“ starfaði tvo vet-
ur, og hætli bindindisheiti á stefnuskrá sína þegar
á öðru liausti. Fyrsta sumardag 1908 var almennur
fundur haldinn, til þess að ræða um stofnun Ung-
mennafélags, og varð þá að samkomulagi, að Ung-
lingafélagið var leyst upp, en félagar þess gengu flest-
allir í Ungmennafélag Biskupstungna, er þá var stofn-
að. Hafði Unglingafélagið verið félögum símun skóli
i félagslífi og störfum, og Þorfinnur hinn bezti kenn-
ari. Nú var hann kjörinn formaður hins nýstofnaða
Ungmennafélágs og stýrði því tvö næstu árin af mikl-
um dugnaði og áhuga.
Vorið 1909 kvæntist Þorfinnur frænku sinni, Slein-
unni Egilsdóttur frá Kjóastöðum, gáfaðri stúlku og
myndarlegri. Þau reistu hú á Spóastöðum í Biskups-
tungum, og hýr hún þar enn. Þeim var fjögra harna
auðið, og lifa 3 þeirra, öll vel gefin og mannvænleg.
Þorfinnur þótti þegar hinn mesti prýðismaður í
hændastétt. Hann var dugnaðarmaður til vinnu og
áhugamaður liinn mesti um allt, er að búskap laut.
Sat liann jörð sina prýðilega og hætti hana mjög.
Auk þess hlóðust á hann trúnaðarstörf i þarfir sveit-
arinnar. Varð liann formaður húnaðarfélags hrepps-
ins og rjómahús, kjörinn i hreppsnefnd og formað-
ur skólanefndar, og gekk að þeim störfum með sama
kappi og dug sem öðrum. Þótti hann frábærilega
vandvirkur og reglusamur við öll opinber störf. Ilann
hafði og mikinn áhuga á landsmálum, og hauð sig
fram til Alþingis siðasla árið, sem hann lifði. Ein-
ar prófessor Arnórsson varð honum hlutskarpari við
kosningarnar, og munaði þó ekki miklu á atkvæða-
f'jölda.
Þegar slörf hlóðust á Þorfinn og búskaparumsvif,
gat liann ekki sinnt Ungmennafélaginu sem liann