Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1934, Page 18

Skinfaxi - 01.02.1934, Page 18
18 SKINFAXI er æska þess lands, sem allar vonir cldri manna um betri og farsælli framtíð, hljóta að vera bundnar við. Allir eru sammála um það. Allir finna það og vita, að þegar árin hafa vaxið yfir æskuskeiðið, þá er fram- tíðin ckki lengur þeirra einna. Þá stefna allra vonir lil þess vaxtarmagns vits og vilja,, sem æskan ein á yfir að ráða. Allir finna það og vita, að framtíðin liggur í lönd- um liinna yngri manna og' kvenna. En liitt liafa ekki allir fundið jafn vel, að ábyrgðin um það, hvernig um framtiðina fer hjá æskunni — hún liggur eftir sem áður og alla tíð í höndum eldri mannanna, þeirra, sem ráðin hafa um landsréttinn og lögin, reynsluna um raunveruleikann og fullveldið um fjármunina. En það fer svo um æskuna, og það fer svo um fram- tíð þessa lands og þessarar þjóðar, sem að æskunni er búið af eldri mönnunum. Ef þeir mæta lienni á miðri leið — gefa ábuga Iiennar opna leið til verkefnanna, framboðinni sjálfsfórn hennar stuðning til starfsins — ]iá er líka um leið lagður vegur beina leið til bættari bugar og betri framtíðar. En ef þeir krefjast af henni, án þess að kannast við skyldu sjálfra sín á móti ■—- þá verða enn langir og kaldir vctur og gróðurlítil vor i okkar þjóðfélagi. Það má því aldrci henda, að reistur sé skotmúr milli æskunnar og eldri áranna, milli æskuhugans og elli- áranna. Það má aldrei henda, að eldri mennirnir liöggvi strandhögg í því nýnumda landi, sem æskuvor og vilji leita til. Það má heldur aldrei lienda, að cldri menn- írnir ásaki æskuna fyrir misstigin spor eða marglynda báttu. Sökin er bvort sem er hjá þeim sjálfum. Sumum hvila þau álög á aldrei fögrum tóni’ að ná, þó a'ð þeir eigi enga þrá aðra en þá að syngja. Svo getur það farið Iijá einstaklingunum. Svo get-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.