Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1934, Side 19

Skinfaxi - 01.02.1934, Side 19
SIÍINFAXI 19 ur það kannske farið lijá hcilli kynslóð. En sökin er þar líka hjá eldri mönnunum — þeim, sem betur mega. Þeir hafa örlög æskunnar i hendi sér. En vegna livers er von lil þess, að belur færi um íramtíðina, ef æskan hefði meira en tillögurétt til mál- anna ? Vegna hvers er vissa um staðfaslara gæfugengi mannkynsins, ef hún ætti þar líka rétt til ákvörðunar og úrlausnar? Það liggur nokkuð ljóst fyrir. Það er nú einu sinni svo, að maðurinn lifir ekki á einu saman brauði, og raunar ekki lieldur á orðum ritningarinnar. Auðurinn er afl þeirra hluta, sem gera skal. Og æskan á yfir þeim auði að ráða, sem einn getur í raun og veru full- nægt framþróunarþrá mannsins — þeim auði liugsjóna og kröfulausra kosta fórnfýsinnar, sem áreiðanlega verður fyr eða síðar hagnýttur til liamingjubóta lífsins. Nú er öld efunar og efnishyggju. Nú er efazt um guðdótn Ivrists og kosti kærleikans. Efazt í rauninni um allt, nema almætti peninganna; og vald þeirra hef- ir fyllt mannkynið friðlausri tortryggni um allt annað. Nú er alll metið til fjár; allt miðað við hina mótuðu mynt. Náttúruafbrigðin: fossar og fjöll, vötn og vellir, láð og lögur, allt er þetta verðsett og selt. Sannfæring- in gengur kaupum og sölum, og ckki ætíð í háu vcrði. Lífið er reiknað til gjalds — skrásett í verðlagsskýrslu, eins og hver önnur gjaldeyrisvara. Ef bóndinn missir sauð í haganum, þá er það tjón talið í krónutali. Það er ofureinfalt mat og einliliða, því að svo hefði sauð- urinn lagt sig á blóðvelli. Ef maður deyr fyrir ár fram, þá er það tjón líka talið í tölum, eftir því, sem matið stendur í verðlagsskrá lífsins að þvi sinni. Lifið er orð- ið, að þessu lcyti, sífelldur markaðsdagur, þar scm alll má selja og allt fæst keypt, ef peningar koma á móti. Allt er talið lil peninganna og frá þeim. Eins og kall- að er, að jörðin snúist um möndul sinn, eins mætti b*

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.