Skinfaxi - 01.02.1934, Page 59
SKINFAXI
59
ur. Hándavinna pilta hefir aðallega verið tækjasmíði
í sambandi við eðlisfræðina. Þessar námsgreinar kenn-
ir þýzk kennslukona, ungfrú Weinem. Sýning á vinnu
nemenda skólans í þessum greinum Iicfir verið haklin
í Reykjavík 1932 og þótli athvgliverð á ýmsan liátt.
Bar lnin þann árangur, að ungfrú Weinem var feng-
in til að kenna á kennaranámskeiði Iiér í Reykjavík
])á um haustið. Þetta eru þær námsgreinar, sem van-
rælctar liafa verið um of í íslenzkum skólum, en
áhuginn í þeim efnum er mikið að glæðast, og von-
andi verður hráðlega tekin upp handavinnukennsla
í Kennaraskólanum eða kennaraefnum séð fyrir að-
gengilcgri fræðslu á annan iiátt. Almennir skólar geta
auðvitað ekki útskrifað sérfræðinga i neinni grein.
Takmarkið í handavinnunni, sem öðru, er að nem-
andinn læri einkum það, sem liann hefir not af síð-
ar í lífinu. Auðséð var á fyrnefndri sýningu skólans,
að leitazt var við, mcð ákveðnum starfsaðferðum, að
«fla smekk og gagnrýni nemenda, mcð litasamsetn-
ingu í teikningunum og munstrum o. fl.; svo og lögð
álierzla á að hagnýta efni, t. d. ýmiskonar bæting-
ar, saumuð einföld föt o. fl.
1 skólanum hefir verið kennd „lijálp í viðlögum“.
-— Nemcndur 2. og 3. bekkjar hafa fengið 1 tíma á
viku við bókasafnsvinnu í bókasafni Ijæjarins. Þar
er þeim kennt að notfæra sér bókaskrár, leita i bóka-
safni, raða i skáp, leita heimilda og yfirleitt að hag-
nýta sér bækur.
Er þetta svo merkilegt nám, að mér finnst það ætti
að ganga næst því að læra að lesa og skrifa. Ætti
slíkt nám að vera sjálfsagður liður i starfi allra skóla.
— Skólinn hefir gengizt fyrir alþýðufræðslu. Flutt
hafa verið erindi um bókmenntir, uppeldismál, bind-
indis- og þjóðfélagsmál o. fl. Fyrirlestrana fluttu liin-
ir liæfustu menn, við ágæta aðsókn.
Ahnennar, opinhcrar sýningar Iiafa verið haldnar