Skinfaxi - 01.05.1943, Blaðsíða 31
SKINFAXI
33
Daníel Ágústínusson:
Hvanneyrarmótíð 1943.
Almennt yfirlit.
Fjórða landsmót Ungmennafélags íslands var haldið að
Hvanneyri, dagana 26. og 27. júní 1943. Tvö fyrstu landsmót
U.M.F.Í. voru haldin í Reykjavík, 1911 og 1914, en það þriðja í
Haukadal 1940.
'
. " ' ■ ’ v "• .• ‘ • 4
Hvanneyri.
150 íþróttamenn sóttu Hvanneyrarmótið, 30 þeir,ra sýndu
leikfimi, en 120 kepptu i einstökum iþróttagreinum. Voru þeir
frá 11 héraðasamböndum og úr 20 sýsluin og kaupstöðum.
Mótið hófst með því, að íþróttamenn og mótsgestir söfn-
uðust saman við kirkjuna á Hvanneyri, kl. 9,45 árdegis, laug-
ardaginn 26. júní. Var þaðan farin hópganga niður á íþrótta-
völlinn, en hann var á svonefndri Fit, skammt frá bökkum
ílvítár, og er tæplega 10 mín. gangur þangað. Völlurinn var
afmarkaður fyrir mótið á eggsléttu og fögru engjalandi. Er
hann um 2 ha að stærð og var gerð 400 m. löng hlaupabraut
umhverfis hann. Þarna voru grafnar stökkgryfjur, markaðar
brautir fyrir liin ýmsu lilaup og fleiri framkvæmdir gerðar,
sem nauðsynlegar voru vegna íþróttanna. Er þetta nú einhver