Skinfaxi - 01.05.1943, Blaðsíða 40
42
SKINFAXI
Fimleikaflokkur frá Umf. Skallagrími í Borgarnesi.
Talið frá v.: Hrafnhildur HéSinsdóttir, Elín Sólmundardóttir,
Anna Fríða Þórðardóttir, Marsibil Ólafsdóttir, Þórdís Sól-
mundardóttir, Hulda Ingvarsdóttir, Vigdís Auðunsdóttir, Ás-
laug Andrésdóttir, Inga Kristjánsdóttir, Sigríður Sigurjónsdótt-
ir, Helgi Júlíusson, íþróttakennari, Guðbj. Ásmundsd., fánaberi.
dýnu og kistu. Ætlaði lófatakinu aldrei að linna, er flokkur-
inn gekk út af vellinum. Áhorfendur höfðu skipað sér í hring
umhverfis fimleikaflokkinn og var veðrið þessa stundina það
bezta, sem það var um daginn, logn og hlýindi. 3000 m. hlaup-
ið var síðasta og 19. iþróttagrein mótsins. Þá var kl. 19 og
dáðust allir að því, hve íþróttirnar höfðu gengið liðlega. Hvert
atriðið tók við af öðru. Aldrei minnsta bið. Er það lofsverð
fyrirmynd.
Um kvöldið, kl. 20,30, söfnuðust íþróttamenn og mótsgestir
saman við tröppurnar á skólastjóraíbúðinni, en þar skyldi
úthluta verðlaunum og slíta landsmótinu. Fjórir fyrstu képþ-
endurnir í hverri íþróttagrein voru kallaðir upp á tröppurn-
ar í þeirri röð, sem þeir höfðu unnið. Þar voru þeir sæmdir
ve.rðlaunapeningum af stjórn U.M.F.Í. og formanni U.M.S.B.
Að lokum voru afhent fimm heiðursverðlaun, einn farand-
gripur og fern einstaklingsverðlaun unnin til eignar. Ung-