Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.1943, Page 32

Skinfaxi - 01.05.1943, Page 32
34 SKINFAXI Forseti U.M.F.Í. sr. Eirikur J. Eiríksson setur landsmótið. Fánaberinn er Guðmundur Ágústsson, glímukonungur. — AS- eins lítill hluti mannfjöldans sést. bezti íþróttavöllur á landinu. Áhorfendur skipuSu sér viS hann á tvo vegu, aS vestan og norSan. Þegar komið var á íþróttavöllinn, setli forseti U.M.F.Í., sr. Eiríkur J. Eiriksson, landsmótið meS snjallri ,rœðu. Bauð hann íþróttamenn og gesti velkomna og vænti þess, að mólið, í hinu fagra og sögufræga héraði, mætti verða íþróttalífi landsmanna mikil hvatning. Fórnir þær, sem íþróttamennirnir færðu, með því aS sækja landsmótið um langa vegu, á tímum dýrtíðar og mikillar atvinnu, hæri glæsilegt vitni um myndarskap og óeig- ingirni íslenzkrar æsku. Að ræðunni lokinni hófst undirbúnings íþróttakeppni i hlaupum, köstum og stökkum. Fóru venjulega tvær greinar fram samtímis. Milli kl. 12 og 13,30 var malarlilé, en að því búnu hófst iþróttakeppnin á ný og var þá keppt til úrslita í nokkrum íþróttagreinum. Lauk keppni dagsins á 6. tíman- um með sundi. Það var þreytt i 25 m. langri sundlaug, kaldri, sem hlaðin var úr snyddu næstu daga fyrir mótið við læk- inn sunnan við fimleikahús skólans. Upp af lauginni sunnan

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.