Skinfaxi - 01.05.1943, Síða 42
44
SIÍINFAXI
menna- og íþróttasamband Austurlands, sem vann mótið með
45 stigum, hlaut farandskjöldinn, sem gefinn var 1940 og þá
unninn af U.M.S. Kjalarnesþings. Formaður U.Í.A., Skúli Þor-
teinsson skólastjóri á Eski-
firði, tók á móti skildinum,
en mannfjöldinn hyllti Aust-
firðinga fyrir sigurinn, sem
unninn var af mikilli sæmd.
Lið þeirra Austfirðinga var
fjölhæft og drengilegt, Þeir
kepptu í öllum aðal íþrótta-
greinum mótsins, nema
glímu, og hlutu stig í þeim.
Af einstökum keppendum
mótsins var Guttormur Þor-
mar frá Geitagerði i Fljóts-
dal sigursælastur. Hlaut
hann 14 stig. Var Guttormur
sæmdur tveimur heiðurs-
verðlaunum, veglegum silf-
urbikar, sem U.M.S. Borgar-
fjarðar gaf handa þeim, er
flest stig ynni á mótinu, og
skildi, gerðum af Ríkarði
Jónssyni, frá blaðinu „Timinn“ í Reykjavík, handa þeim ein-
stakling, sem flest stig lilyti i frjálsum íþróltum, en öll stig
Guttorms voru þar unnin. Sigurður Jónsson frá Yztafelli i
Suður-Þingeyjarsýslu var sæmdur silfurbikar, er Kaupfélag
Borgfirðinga gaf handa þeim, er sýndi bezt sundafrelc í mót-
inu, og Davið Guðmundsson frá Miðdal i Kjós, sigurvegarinn
i glímunni, hlaut silfurbilcar, sem fjórir góðkunnir, eldri
glímumenn ungmennafélaganna gáfu, þeir: Guðmundur Kr.
Guðmundsson skrifstofustjóri, Reykjavík, Bjarni Bjarnason
skólastjóri, Laugarvatni, Flelgi Hjörvar skrifstofustjóri,
Reykjavik og Magnús Kjaran stórkaupmaður, Reykjavík.
Þegar verðlaunum hafði verið úthlutað, flutti Þorsteinn Ein-
arsson íþróttafulltrúi snjallt ávarp til íþróttamannanna, en
þvi næst sleit forseti U.M.F.Í., sr. Eirikur J. Eiriksson, þessu
4. landsmóti ungmennafélaganna og bað mannfjöldann að
hylla iþróttamennina og var það gert rösklega.
Nú var kl. orðin 21,30 og fóru því margir að búast til
heimferðar og sumir voru raunar farnir áður, en aðrir fóru
niður á iþróttavöllinn, og þar var dansað undir berum himni