Skinfaxi - 01.05.1943, Síða 47
SKINFAXI
49
um og fimleikaflokkarnir eiga að baki komu sinnar að Hvann-
ey.ri langt og óeigingjarnt íþróttastarf, sem hefir gefið þeim
svipmót sitt og glæsilegt yfirbragð, því „iþróttir efla alla dáð“,
ef skynsamlega er á haldið.
XJrsIit í íþróttakeppninni.
Hér verður skýrt frá úrslitum í einstökum iþróttagreinum,
gefið yfirlit um stig hvers keppanda, en þeir voru 51, sem stig
hlutu, og sagt frá vinningum héraðssamb. Tölurnar innan
sviga eru frá landsmóti U.M.F.Í. 1914. Er fróðlegt að sjá fram-
förina í þessum efnum síðustu 30 árin. Kemur þar glöggt í
Ijós, hversu bætt aðstaða og aukið íþróttastarf hefur fleygt
árangrinum fram í flestum íþróttagreinum. Þar með er ekki
sagt, að íþrótlamennirnir frá 1914 stæðu neitt að baki, ef þeir
hefðu notið þeirrar kennslu og annarra aðstæðna, sem íþrótta-
menn njóta nú. En liitl ber að virða, að æskan hefir vaxið
með möguleikunum. Eftir er svo að vita, hvort þróunin verð-
ur hin s'ama næstu 30 árin, og hvernig samanburðurinn verður
á Hvanneyrarmótinu og landsmóti haldið eftir 1970.
Þessi héraðasambönd tóku þátt í landsmótinu:
1. Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands = A.
2. Héraðssambandið Skarpliéðinn = S.
3. Ungmennasamband Kjalarnesþings = K.
4. —--- Borgarfjarðar = B.
5. ---- Snæf. og Hnappadalssýslu = SH.
6. -— Dalamanna = D.
7. ---- N.-Breiðfirðinga = NB.
8. ---- V.-Húnavatnssýslu = VH.
9. ---- Skagafjarðar = SK.
10. ---- Eyjafjarðar = E.
11. —— S.-Þingeyinga (Þingeyingur) = Þ.
Úrslit í einstökum íþróttagreinum.
H 1 a u p:
100 m. hlaup: Guttormur Þormar (A) 11,7 sek. Haraldur Sig-
urðsson (E) 11,9 sek. Björn Jónsson (A) 11,9 sek. Janus Ei-
ríksson (K) 11,9 sek. (Guðm. Kr. Guðmundsson, Rvík 12,4 sek.).
200 m. hlaup: Guttormur Þormar (A) 25,4 sek. Janus Eiríks-
son (K) 26,4 sek. Ilaraldur Sigurðsson (E) 26,7 sek. Björn
Jónsson (A) 26,8 sek. (Guðm. Kr. Guðmundsson, Rvík 26,9 sek.).
400 m. hlaup: Guttormur Þormar (A)- 54,8 sek. Þórður Þor-
geirsson (S) 57,2 sek. Hákon Sigtryggsson (Þ) 58,5 sek. Þor-
kell Gunnarsson (SH) 61,2 sek.