Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.1943, Page 63

Skinfaxi - 01.05.1943, Page 63
SKINFAXI 65 Þskj. XII. „14. þing U.M.F.Í. ... sltorar á Alþingi og ríkisstj. að láta fullgera þjóðleikhúsið, svo að það geti hafið starfsemi sína sein fyrst. Telur samb.þ. eðlilegt, að kvikmyndastarfsemi þess verði rekin i náinni samvinnu við kvikmyndastarfsemina viðs- vegar um landið, og til stuðnings henni. Óskar samb.þingið eflir, að samvinna geti tekizt milli ungm.fél. og þjóðleikhúss- ins um þessi mál, svo að tryggt sé, að kvikmyndirnar geti orðið almennt menningartæki með þjóðinni.“ Þskj. XIII. „14. þing U.M.F.Í. ... felur samb.stj. að skrifa félögunum og fá þau til að hefjast handa um söfnun örnefna og sagna í sambandi við þau.“ Þskj. XIV. „14. þing U.M.F.Í. harmar þá ákvöðun Útvarpsráðs að neita að útvarpa minningarathöfn Aðalsteins Sigmundssonar, er á svo sviplegan hátt varð harmdauði íslenzku þjóðarinnar.“ Þskj. XV. „14. þing U.M.F.Í. ... lelur brýna nauðsyn að skógræktar- málum verði meir sinnt framvegis en nú er, og beinir þvi fyrst og fremst til héraðssambanda og einstakra félaga, að leit- ast við að vekja á þyí sviði áhuga til átaka og afreka.. Þingið álitur, að fyrst og fremst beri að bjarga þeim skógarleifum, sem lil eru víða á landinu, án friðunar. Leiti félögin samstarfs um þetta við skógræktarfélög héraðanna þar sem þau eru, skóg- ræktarstjóra og skógræktar ríkisins og notfæri sér þann stuðn- ing sem bezt. í öðru lagi skorar þingið á allar deildir sínar og félaga að vinna af alefli að aukinni skógrækt, hver i sínu umhverfi, t. d. með fræsáningu eða gróðursetningu trjá- plantna við bæi og í trjáreitum einstaklinga og félaga og sinna aí alúð því, sem til er af þessu tagi. Þingið væntir þess, að hreppsnefndir og aðrir, sem svipaðan hlut eiga að máli, styðji viðleitni þessa með því að veita ungmennafél. aðgang að eða eignarrétt á heppiíégu landi lil skógræktar, þar, sem þvi verður við komið. Þá bendir jiingið á mikilvægi þess, að vekja áhuga og vilja barnanna — verðandi æsku landsins — til þess að starfa að þessum málum og beinir þeirri áskorun til fræðslu- málastjórnar, að hún láti athuga og skipuleggja, ef fært þyk- ir, skógrækt í sambandi við> barnaskólana, t. d. samhliða sund- námi barnanna, cða með sérstökum skógræktardögum i reit

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.