Skinfaxi - 01.05.1943, Síða 64
66
SKINFAXI
skólafélags eða héraðsins. Skógrækt ríkisins gefur kost á plönt-
um til gróðursetningar. Þingið beinir því til réttra aðila, að
sú afgreiðsla verði enn bætt frá því, sem er, svo að treysta •
megi að jafnaði, að félög fái pantanir sínar afgreiddar fljótt
og eftir því, sem óskað er.“
Þskj. XVI.
„Samb.þingið felur stj. að athuga möguleika á að koma upp
uppeidisstöð trjáplantna í Þrastaskógi, til þess að frekar sé
hægt að fullnægja þörfum ungmennafélaga í þessu efni.“
Þskj. XVII.
„Samb.þ. skorar á ungm.fél. að vinna markvisst að útrým-
ingu áfengisnautnar og annarra skaðnaulna og efla það al-
menningsálit, að slíkar nautnir séu ósamboðnar hverjum ung-
mennafélaga. Þingið felur stj. að leita samvinnu við aðra
aðila, sem starfa að bindindismálunum og beita síauknum á-
róðri gegn áfengisnautn og halda uppi fræðslu um skaðsemi
hennar.“
Þskj. XVIII.
„14. þing U.M.F.Í. gerir þessar ályktanir í sjálfstæðismálinu.
1) Þingið skorar á Alþingi og ríkisstj., að halda fast við þær
ákvarðanir, sem þegar hafa verið teknar varðandi sjálfstæðis-
málið, og vinna hiklaust að því að ísland verði sjálfstætt
lýðveldi eigi síðar en 17. júní 1944 og vísar í því sambandi
til ályktunar síðasta þings U.M.F.Í. að Ilaukadal 1940 um
þetta mál. 2) Sambandsþingið beinir því til ungmennafé-
laga um land allt, að glæða skilning og áhuga þjóðarinn-
ar í sjálfstæðismálinu, svo að hún standi einhuga, þegar
það verður lagt fyrir hana með almennri atkvæðagreiðslu.
3) Þingið bendir á það sem höfuðatriði í þessu sambandi,
að því aðeins geli á íslandi lifað og þroskazt frjáls þjóð og
raunverulegt lýðveldi, að ungm.fél. og alþjóð gæti ætíð, og
ekki sízt á þessum tímum, sinna þjóðlegu verðmæta: sögu,
bókmennta og tungu, sem og fjárhagslegs sjálfstæðis. 4) Sam-
b.þingið beinir því til stjórnarvalda landsins, að vera á verði
um það, að haldin verði í hvívetna þau atriði, er sett voru
í samningana við Bandaríkjastjórn árið 1941 um burlför setu-
liðsins að styrjaldarlokum. Jafnframt sé þess vandlega gætt,
að engri erlendri þjóð verði leyft að skapa sér aðstöðu til
íhlutunar um málefni íslendinga.“