Skinfaxi - 01.05.1943, Síða 74
76
SKINFAXI
Laugarvalnsskóli.
skólanum á Laugarvatni, en slíkt er óhugsandi til frambúðar,
enda þótt ágæt samvinna sé milli þeirra. ForráSamenn skól-
ans liafa nú valiS honum staS niSur á túninu, skammt frá
vatninu. Gert er ráS fyrir, aS fullkominn íþróttavöllur, meS
400 in. langri lilaupabraut og öSrum nauSsynlegum útbúnaSi
komi á túninu fyrir ofan. Þegar íþróttakennaraskólinn hefir
fengið sína sérstöku heimavist og skólastofur, á hann ekki
aðeins að vera fyrir kennaraefni, heldur áhugamenn í íþrótt-
um, sem dvelja þar skemmri tíma, en geta siðan orSið leið-
heinendur í iþróttum í byggðarlögum sínum. SvipuS starf-
semi hefir verið í Haukadal uin mörg u'ndanfarin ár og bor-
ið ágætan árangur. Kennurum yrði þá fjölgað, en Björn Jak-
obsson hefur haft nær alla kennslu á hendi frá því skólinn
var stofnaður fyrir rúmum 11 árum, en hann var einkaskóli
Björns Jakobssonar fyrstu 10 árin, eins og kunnugt er.
íþróttakennaraskóli Björns Jakobssonar hefur útskrifað 50
íþróttakennara, sem flestir hafa stundað íþróttakennslu lang-
ar eða skamman tíma og liefur það haft sýnileg álirif fyrir
menningarlíf þjóðarinnar. Ungmennafélögin hafa haft 10 þeirra
í þjónustu sinni síðan 1939 og hafa þeir átt verulegan þátt í
stórauknu íþróttalífi með þjóðinni, sem m. a. hefur kornið fram
i auknum héraðsmótum Umf. og hinu veglega Hvanneyrar-
móti U.M.F.Í. s.l. vor. Það er því ekkert vafamál, að efling
íþróttakennaraskólans að Laugarvatni er mikilsverð fyrir lik-
amsmennt þjóðarinnar. Beztu óskir Skinfaxa fylgja myndar-
legum áformum forráðamánnanna á Laugarvatni.