Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.1943, Page 77

Skinfaxi - 01.05.1943, Page 77
SKINFAXI 79 Félagsmál. íþróttakennararnir. Umsóknir Umf. um íþrótíakennara liafa yerið með mesta móti í haust og er það ánægjulegt vitni um vaxandi íþrótta- áhuga þjóðarinnar. Hinsvegar hefir ekki tekizt að útvega nógu marga íþróttakennara að þessu sinni. I vetur dvelja 10 efni- legir nemendur í íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni, svo ekki ætti að þurfa að óttast skort á kennurum á næsta ári. Kennararnir í vetnr eru þessir: Bjarni Bachmann frá Borg- arnesi, er kennir á Vestfjörðum, og mun hann einnig kenna 2 félögum þar fyrir Í.S.Í. Kári Steinsson frá Neðra-Ási, er kennir í Austur-Skaptafells- sýsiu fram í janúar, en síðan í Dalasýslu og Skagafirði. Sigríður Guðjónsdóttir á Eyrarbakka, lcennir þar og á Stokks- eyri, bæði piltum og stúlkum. Guttormur Sigurbjörnsson frá Gilsár- leigi kennir hjá Ungmenna- og íþrótta- sambandi Austurlands og hefir verið ráð- inn fastur starfsmaður sambandsins. All- ir þessir kennarar liafa áður kennt hjá U.M.F.Í. Þá kennir lijá sama sambandi Haraldur Hjálmarsson íþróttakennari frá Siglufirði. Samvinna hefir orðið við Í'.S.I. um tvo kennara þess, þá Anton Björnsson og Óskar Ágústsson. Kennir Anton hjá Umf. á Snæfellsnesi frá 15. nóv. og lil ára- móta, en eftir áramót hjá Ungmennasam- bandi Eyjafjarðar og Suður-Þingeyinga. Óskar kennir hjá Umf. Baldri í Hrauh- gerðishreppi í desember, en eftir ára- mótin hjá Ungmennasambandi Vestur- Húnvetninga og Norður-Þingeyinga. Guttormur Sigur- björnsson, héraðs- kennari U.Í.A. Þórður J. Pálsson kennari í Reykjavík hefir verið ráðinn skógarvörður í Þrasta- skógi a. m. k. næstu 5 árin. Hefir hann byggt sér snotran skála inni i skóginum í samráði við stjórn U.M.F.Í. Þegar Þórður var drengur vann hann í mörg ár með Aðalsteini Sigmunds- syni að skógarvörzlu og því þaulvanur þeim störfum.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.