Skinfaxi - 01.04.1961, Qupperneq 5
Hér eru lífsmöguleikar fyrir milljónaþjóð
Lítum glaðir til framtíðarinnar
Ræða Ingólfs Jónssonar landbúnaðarraðherra
ó landsmófi ungmennafélaganna að Laugum
Heiðruðu ungmennafélagar og aðrir til-
heyrendur!
Hér er fjölmenni, sem verðugt er, á
11. landsmóti ungmennafélaganna. Um
meira en hálfrar aldar skeið hafa ung-
mennafélögin verið starfandi í landinu.
Einn þáttur í starfseminni hefur verið
íþróttamót og samkomur heima í hér-
uðum, og einnig landsmót, þar sem ungir
menn. konur og karlar, hafa keppt í
íþróttum. En samkomur þessar hafa einn-
ig og ekki síður verið til kynningar og
til þess að glæða baráttuþrek þeirra, sem
starfandi eru í ungmennafélagshreyfing-
unni og væntanlega fleirum, þótt ekki séu
þeir virkir félagar í ungmennafélagi.
Á margvíslegan hátt hefur verið reynt
að glæða þann eld, sem kveiktur var með
tilkomu ungmennafélaganna og þeirra
hugsjóna, sem er samfara ungmennafé-
lagshreyfingunni. Ungmennafélögin hafa
vakið áhuga fyrir margs konar umbót-
um í landinu. Með tilkomu þeirra var
vakin frelsishreyfing. sem fékk orku og
menn af frumherjum héraðSins í hvers
konar afburöum og snilli. Þar búa hlið
við hlið Bólu-Hjálmar og Einar Benedikts-
son, Guðmundur á Sandi, Jón Trausti,
Þorgils Gjallandi, Benedikt á Auðnum og
þremenningai’nir frumherjar K.Þ. og SlS,
Yztafelli. I þá minningahöll munu kom-
Jón í Múla, Pétur Gauti og Sigurður í
andi kynslóðir leggja til mikinn efnivið
um sögu héraðsins og landsins.
Nú buðu Þingeyingar öllum landslýð til
móts í sínum nýja höfuðstað. Mikill und-
irbúningur, gott mannval og viðunandi
veðurfar hafa gert mótið í Laugaskóla eft-
irminnilegan atburð í sögu vökullar æsku.
Onnur héruð eiga líka sín stórheimili þar
sem hliðstæð mót verða haldin um ókonm-
ar aldir. Hallir aldamótaæskunnar í byggð-
um og bæjum munu lengi standa sem
minniömerki um stórhuga og skapandi
öld. Stórbyggingar þessa tímabils, sem
helgaó er íþróttum, andlegum og líkam-
legum, verða dýrmætur arfur líkt og þús-
undir gotneskra bygginga frá fyrri öld-
um, sem bera boð horfins tíma á tignu
máli listarinnar til niðja, sem finna í
„ljósum köldum línum“ skyldleika við
liðna afburðamenn.
Laugamótið var eins og Alþingishátíð-
in á Þingvöllum heræfing ungra íslend-
inga á bjartri frelsis- og menningaröld.
s K I N F A X I
5