Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1988, Síða 15

Skinfaxi - 01.08.1988, Síða 15
Strandhögg Polgar- systra á Austfjörðum Ungverska Polgar-skákfjölskyldan er orðin vel þekkt á Islandi eftir heimsóknir sínar hingað í ár; fyrst á opna Reykjavíkurskákmótið í febrúar og svo á Austurlandsmótið á Egilsstöðum. Þetta er heimsfræg fjölskylda. Systurnar Zsuzsa, 19 ára, Zsofia, 14 ára og Judit 11 ára vinna hvarvetna hug og hjörtu áhor- fenda. Elsta stúlkan er þegar komin í hóp snjöllustu skákkvenna heims en kannski vekur sú yngsta núorðið mesta athygli. Mörg vitnin verða forviða og spyrja í fyllstu einlægni: „Hvernig getur 11 ára stúlka teflt svona vel?” Foreldrar systranna eru sálfræðingar að mennt og hafa ekki farið hefðbundnar leiðir í uppeldi stúlknanna. Þær hafa ekki notið venjulegrar skólagöngu, heldur fengið kennslu í heimahúsi og sagan segir að í stað þess að leika sér með kubba frá blautu bamsbeini, hafi þær fengið mesta skemmtun af því að leysa skákþrautir. Þær hafa alltaf litið á skákina sem skemmtilegan leik og virðast hvergi una sér betur en við taflborðið. Þegar Judit litla var yngri kom hún gjarnan til leiks með lítið leikfangaljón og stillti því upp við borðbrúnina. Ljónið fylgdist með öllu sem fram fór og glotti meinfýsislega þegar andstæðingurinn var orðinn að sméri. Polgar-systur stóðu sig vel á Reykjavíkurskákmótinu og svo mjög hreifst fjölskyldan af landi og þjóð að þremur mánuðum síðar var hún komin aftur. Nú var haldið til Egilsstaða í júní, þar sem Austurlandsmótið var haldið í annað sinn. Egilsstaðabær stóð fyrir mótshaldinu, í samvinnu við Hótel Valaskjálf, Taflfélag Egilsstaða og Ferðamiðstöð Austurlands. Framkvæmdastjóri þess var Ottó Jónsson. Mótið fór vel fram í alla staði en eink- enndist öðru fremur af mikilli sigurgöngu ungversku systranna. Teflt var í tveimur flokkum á Austurlandsmótinu. í efri flokki tefldu 10 Skákþáttur stigahæstu menn mótsins en í neðri flokki tefldu 24 skákinenn 9 umferðir eftir Monrad-kerfi. Er skemmst frá því að segja að Polgar_systur urðu efstar í báðum flokkum! I B-flokki sigraði miðsystirin Zsofia með nokkrum yfirburðum (8,5 v. af 9 mögulegum) en í A-flokki deildu Zsuzsa og Judit sigrinum með 5,5 v. af 8 mögulegum. Hannes Hlífar Stefánsson og Karl Þorsteins komu Judit Polgar við taflborðið næstir með 5 v., síðan Þröstur Þórhallsson með 4,5 v., Björgvin Jónsson með 3,5 v., Sævar Bjamason og James Plaskett með 2,5 v., og Mark Orr hlaut 2 v. Helgi Ólafsson varð að hætta keppni eftir 4 umferðir, af persónulegum ástæðum, og þær skákir sem hann hafði teflt voru því ekki reiknaðar með. Áður en hann hætti hafði hann þó unnið það afrek að tapa fy ri r báðum Polgar- systrunum! Judit litla lék sér að því að ná áfanga að alþjóðameistaratitli karla. Er tvær umferðir voru til loka hafði hún þegar náð áfanganum og hún hafði krækt sér í stórmeistaraáfanga kvenna er fjórar Jón L. Arnason skrifar umferðir voru til stefnu. Óhætterað segja að þetta sé einstæður árangur 11 ára stúlku. Og hún tefldi skínandi vel. Hérer gott dæmi um það. Er við skoðum skák á borð við þessa komumst við ekki hjá því að endurtaka spumarorðin: „Hvemig getur 11 ára stúlka teflt svona vel?” Hvítt: Judit Polgar Svart: Hanncs Hlífar Stefánsson Skandinavíski leikurinn 1. e4 d5 2. exd5 Rf6 3. d4 Rxd5 4. c4 Skinfaxi 15

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.