Skinfaxi - 01.08.1988, Page 28
Núpur í Dýrafirði
Skólasetur og og héraðsmiðstöð
íþrótta- og félagsmála í framtíðinni?
Frá Núpi í Dýrafirði
A Núpi eru allar aðstœður til að koma á
fjölbreyttum námskeiðum, úti sem inni.
Núpur í Dýrafirði hefur í gegnum tíðina
verið eitt af höfðubólum á Vestfjörðum.
A þessari öld hefur þar verið menntasetur
og margir merkir menn setið staðinn. Má
þar nefna prófastinn séra Sigtrygg
Guðlaugsson og ekki síður Eirík J.
Eiríksson sem var formaður UMFÍ í rúm
30 ár.
Undanfarið hefur þeirri hugmynd verið
fleygt að Núpur verði nokkurs konar
miðstöð Héraðssambands V-ísfirðinga,
HVI. A Núpi hefur héraðssambandið
rekið sumarbúðir fyrir krakka og unglinga
í áraraðir. Nú hefur verið rædd sú
hugmynd að þar geti orðið grundvöllur
fyrir aðsetur starfsmanns sambandsins,
þar er góð aðstaða fyrir námskeið á vegum
þess fyrir leiðbeinendur. En
leiðbeinendur er einmitt það sem mjög
vantar víða á svæðinu. Það hefur fengist
nokkuð skýr reynsla af því undanfarin ár
víða um land að það er ekki rétta leiðin
nema til nokkurra missera að fá
utanaðkomandi þjálfara og
leiðbeinendur. Slíkt skapar yfirleitt
miklar sveiflur í félags- og íþróttalífi
Frá sumarbúðum fyrir börn og unglinga á Núpi í sumar.
viðkomandi staða. Mikilvægt er því að
fólk á svæðinu fái tækifæri til að sækja
námskeið og mennta sig til að taka sjálft
að sér þessi störf. Núpur er tilvalinn til
þessa. Staðsetningin og aðstaðan er fyrir
hendi.
IH
28
Skinfaxi