Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1988, Page 33

Skinfaxi - 01.08.1988, Page 33
Við fegrum staðinn! Á Flateyri urðu á vegi mínum tvær stúlkur sem voru að vinna í kirkjugarðinum. Þær voru að mála hliðið. Ég minntist á það við þær að staðurinn væri fallegri og snyrtilegri en margir aðrirstaðir sem ég hefði komið til á Vestfjörðum. “Það er okkar verk”, svöruðu þær snöggar upp á lagið. “Við erum í bæjarvinnunni og það er okkar hlutverk að halda bænum snyrtilegum.” María Leifsdóttir og Guðrún Jónsdóttir. Þær eru báðar í framhaldsskóla í Reykjavík á veturna eins og svo margir utan Reykjavíkur. MaríaeríMenntaskólanum við Sund og Guðrún er er í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti. María: “Við komum hins vegar alltaf heim á sumrin að vinna, fyrir skólanum næsta vetur.” -Hvað gera krakkar á ykkar aldri hérna, fara margir burt í skóla? María: “Það er dálítið misjafnt, sumir fara í skóla, aðrir eru að vinna héma og þá erþað bara fiskur. Ég skil þau ekki að gera það. Strákarnir fara líka mikið á sjóinn.” -Hafið þið hugsað ykkur að setjast hér að þegar þið ljúkið námi? Guðrún: “Það held ég ekki, það er svo lítið hér annað en fiskvinna.” -Voruð þið þessarar skoðunar þegar þið fóruð fyrst í skólann suður? María: “Ég var svo ung, 13 ára, þegar ég fór suður í skóla að ég var ekki farin að pæla í þessu. En foreldrar rnínir eiga hús hér og vinna héma. Þau myndu flytja held ég ef þau gætu selt húsið.” Guðrún: “Það er svo Iítið gert fyrir ungt fólk héma finnst mér. Og svo er atvinnulífið hér það einhæft, fiskur, fiskur, fiskur. Maður vill hafa fleiri möguleika.” -Gerið þið þá ekki eitthvað sjálf, til að hafa ofan af fyrir ykkur? María: “Jú,jú, viðförum ífjallgöngu, skokkum og ýmislegt fleira. Það er það besta við að vera hér. Það er svo stutt út í náttúruna. í Reykjavík getur maður ekki gert neitt svoleiðis nema aka bíl langar leiðir. Héma er maður í svo mikilli nálægð við náttúruna. Hérer allt svoopið. Svo eru hér auðvitað íþróttaæfingar og félagsstarf á veturna. Ég er í frjálsum hér á sumrin og Guðrún æfir fótbolta. Það er nokkuð gott sundstarf hérna, miðað við stærð staðarins. En þetta gengur svo mikið í bylgjum. Þjálfaramálin eru svo ótrygg.” IH Skinfaxi 33

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.