Skinfaxi - 01.08.1988, Page 35
Glæsileg sundlaug á
Tálknafirði
Sundlaugin lengda á Tálknafirði. Það var verið að gera við bakkana.
Tálknfirðingareru vel settir með sundaðstöðu
þessa dagana. Fyrir rúmu ári síðan áttu þeir
tæplega 20 metra langa sundlaug, í dag er hún
25 metrar sem gerir auðvitað fyrirtaks aðstöðu
til sundæfinga. Fyrir rúmu ári síðan tóku
Tálknfirðingar sig til, einn tveir og þrír, eins og
menn segja og ruddu burt öðrum gaflinum í
lauginni með ýtu og steyptu upp fyrir 5 metrum
til viðbótar. Þetta verk tók um tvo mánuði.
Laugin var hins vegar byggð sem 20 metrar
fyrir 40 árum. Nú er sundstarfið með miklum
blóma á staðnum og má búast við að á næstu
árum geri Tálknfirðingar sig gildandi í sundinu.
Krakkar frá þeim voru á Aldursflokkamótinu í
sundi á Akranesi í síðasta mánuði og stóðu sig
vel.
íþróttahús þeirra Tálknfirðinga er ekki eins
vel á vegi statt og sundlaugin. Það hefur verið
í byggingu í mörg ár. Fyrirhugað er að í því
húsi verði megnið af aðstöðunni fyrir félagslíf
Tálknfirðinga. Síðastliðið vor lokuðu þeir
sviðinu sem er fyrir enda salarins og notuðu
það meðal annars til körfuknattleiksæfinga.
Húsið er komið upp að hálfu leyti, þ.e. þakið er
enn ókomið yfir allt húsið. Nú stendur til að
loka helmingi salarins í vetur. Það er hins
vegar umdeild ákvörðun þar sem sumir telja
ekki loku fyrir það skotið að endanlegur
frágangur hússins geti þá dregist í nokkur ár.
Nú þegar er steypan farið að leka á nokkrum
stöðum. En við þetta verða fjárvana
sveitarfélög oft að búa. IH
Skinfaxi
35