Skinfaxi - 01.12.1995, Side 6
UMFÍ
Stefna Ungmennafélags
íslands í umhverfismálum
Hvers konar umhverfismál
hafa átt síauknu fylgi aö
fagna og ungmennafé-
lagshreyfingin hefur nýtt
sér þaö meö nokkrum
átaksverkefnum á síöari
árum, en frá stofnun
Ungmennafélags Islands
hafa umhverfismál skipaö
veglegan sess í stefnu
hreyfingarinnar, saman-
ber kjöroröiö „Rœktun
lýös og lands".
í upphafi var þaö stefna ungmennafé-
lagshreyfingarinnar aö klæöa landiö
skógi aö nýju, og skila því til baka
sem kynslóöirnar hafa tekiö frá land-
inu.
í málgagni Ungmennafélags íslands,
Skinfaxa, mátti lesa áriö 1909:
„Sambandsstjórn vill styöja aö því
af mætti, að sterkur áhugi og starfsþrá
vakni hjá æskulýð vorum í skóg-
ræktarmálinu. Þaö er eitt hinna feg-
urstu verkefna, er æskulýður vor getur
tekist á hendur. ísland skógi vaxiö á
ný er svo fögur hugsjón, aö hún ætti
að brenna dáö og dug til framkvæmda
inn í æskulýðinn. Verkin veröa aö
bera þess merkin, að vér viljum ÍS-
LANDI ALLT. Annars verður þaö glam-
uryrði eitt og oss til dómsfellis."
Áriö 1912 gaf UMFÍ út rit um skóg-
rækt sem Guðmundur Davíðsson
haföi samið. Var ritið sent öllum
skuldlausum áskrifendum Skinfaxa, og
einnig selt í lausasölu. Þótti ritið kær-
komið leiðbeiningarrit, og var m.a.
notaö viö kennslu í bændaskólanum á
Hvanneyri. Af þessu má sjá að rækt-
unarmál hafa verið ofarlega í hugum
aldamótakynslóðarinnar.
Á seinni árum hafa augu ung-
mennafélagshreyfingarinnar beinst í
auknum mæli að umgengni um land-
ið, sem því miður hefur alls ekki verið
viðunandi.
Við búum í neysluþjóðfélagi í dag
og því fylgir mikið af umbúðum sem
margar hverjar eru ekki umhverfis-
Háifoss í Þjórsárdal.
vænar, þessum umbúöum var oft og
einatt hent út um bílglugga eða fyrir
borð á fiskiskipum, ekið í sjóinn, hent
í ána eða bæjarlækinn, sagt var að
lengi tæki sjórinn við, í dag segjum
við: „Sjórinn tekur ekki lengur við."
Þó að umgengni um landið hafi
verið ofarlega á baugi hjá Ungmenna-
félagi íslands á undangengnum árum,
og það sé stefna okkar samtaka að
bæta umgengni um landið, þá skipar
skógrækt enn sem fyrr drjúgan sess í
starfsemi ungmennafélaganna.
Það er stefna Ungmennafélags ís-
lands að bæta og fegra umhverfi okk-
ar með snyrilegri umgengni um land-
ið, sem og klæða landið skógi sem
gerir það mun byggilegra.
Nú í ár höfum við beitt kröftum
okkar að vatninu sem er einhver dýr-
mætasta
eign þjóðar-
innar, og
við skulum
gæta vel að
þessari auð-
lind, og
nýta þann
meðbyr
sem nátt-
úruvernd
hefur í dag.
Náttúra
íslands og
vatnið er mesta auðlind sem íslenska
þjóðin á, og við verðum að gæta þess-
arar auðlindar fyrir komandi kym
slóðir.
Þórir fónsson formaður
Ungmennafélags íslands