Skinfaxi - 01.12.1995, Blaðsíða 13
UMFI
m
'&m
hefur fengist dýrmæt reynsla af
gangagerö sem hefur leitt til þess aö
rannsóknir á framtíöarvirkjunarkost-
um hafa beinst í þá átt aö göng komi
í staö opinna veituskuröa og dregur
þaö verulega úr öllu raski og áhrifum
á yfirboröi jaröar. Gróöur þakti stóran
hluta þess lands sem fór undir miöl-
unarlón og inntakslón Blönduvirkj-
unar. Svo var um samiö viö heima-
menn aö Landsvirkjun bætti gróöur-
tapiö meö uppgræöslu örfoka lands á
heiöunum beggja vegna Blöndu.
Landsvirkjun hefur ræktaö upp 2400
hektara lands frá árinu 1981. Eru þetta
mestu uppgræösluaögeröir sem ráöist
hefur veriö í á hálendinu. í tengslum
viö þetta mikla átak hefur Landsvirkj-
un m.a. kostaö rannsóknir á jarövegi
og grasstofnum og samanburö á beit-
arþoli og fóörunargildi gróöurs á upp-
græddu og náttúrulegu beitilandi. Allt
eru þetta liöir í heildarathugun á upp-
græöslu örfoka lands á hálendinu. Eru
þetta fjölþættustu og ítarlegustu rann-
sóknir sem geröar hafa veriö á árangri
uppgræöslu hér á landi og áhrifum
hennar á vistkerfi öræfanna. Sú vitn-
eskja sem þannig hefur veriö aflaö
gerir uppgræösluaögeröir alls staöar á
hálendinu markvissari en áöur.
Viö allar stöövar Landsvirkjunar er
markvisst unniö aö því aö auka gróö-
ur í nánasta umhverfi virkjana til
hagsbóta fyrir þá sem búa og starfa á
svæðinu en einnig er þetta mikilvægt
til þess aö hefta sandblástur sem getur
skemmt viðkvæman búnaö stööv-
anna. Ef til vill er Þjórsárdalurinn og
nánasta umhverfi Búrfellsstöðvar skýr-
asta dæmið um árangur af þessari
starfsemi Landsvirkjunar. Þrátt fyrir
tíö Heklugos hefur tekist aö breyta þar
svartri öskuauön í gróðurvin.
Fræbsla um umhverfismál
Landsvirkjun rekur sumarvinnuflokka
skólafólks á hverju ári, alls rúmlega
200 manns, og eru þeir flestir staðsett-
ir í stöövum fyrirtækisins og sinna
ræktun, viöhaldi og frágangi í ná-
grenni stöðvanna. Landslagsarkitektar
og aðrir hæfir menn hafa verið fengn-
ir til aö gera áætlanir um verkefni
þessarar starfsemi nokkur ár fram í
tímann þannig aö starfið verði unnið
eftir markvissu skipulagi á umhverfi
stöövanna. Þá hefur fræöslustarf, m.a.
um umhverfismál, jarðfræöi og líf-
fræði, veriö fellt inn í vinnu sumar-
fólksins þannig að mannrækt eigi sér
stað samhliöa öörum ræktunarstörf-
um.
Fræðslustarfið hefur veriö nefnt
Starfsmenntaskóli Landsvirkjunar.
Vonast er til aö nemendur Starfs-
menntaskólans fái jákvæða mynd af
starfsemi Landsvirkjunar, öölist dýpri
skilning á náttúru íslands og því
hvernig nýta má auðlindir þess í sátt
viö umhverfiö á hverjum staö.
Þorsteinn Hilmarsson
upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar