Skinfaxi - 01.12.1995, Side 21
21
Grunnreglur sorphirðu (Úrvinnsla úrgangs)
Koma í veg fyrir að úrgangur myndist
Endurnota og endurnýta það sem mögulegt er
Úrgangi sem hvorki er hægt að koma í vég fyrir að myndist né endurnota eða endurnýta á einn eða annan hátt skal farga á þann veg að það skaði umhverfið sem minnst.
Mynd 2. Grunnreglur sorphirðu. Heimild: Skýrsla til umhverfisrábherra ástand, markmib og leibir, mars 1995. um
að endurnýta efnið eða hvernig úr-
ganginum er fargað.
Flestir halda drykkjarvöruumbúðum
aðskildum frá öðrum úrgangi og skila
þeim til móttökustöðva og fá skila-
gjald endurgreitt af þeim. Pappír er
hægt að endurnýta og í sveitarfélög-
unum á höfuðborgarsvæðinu svo og á
Eyjafjarðarsvæöinu er nú búið að
staðsetja söfnunargáma fyrir pappír á
ýmsum stöðum þar sem íbúar eiga
auðvelt með að nálgast þá til að skila
af sér dagblöðum og öðrum pappír.
Pappír er endurunninn hjá fyrirtæk-
inu Úrvinnslunni hf. á Akureyri, en
pappír af höfuðborgarsvæðinu er
sendur til endurvinnslu erlendis.
Garðaúrgang sem til fellur við um-
hirðu garða er auðvelt aö jarð-
gera, og er víða að finna kassa
við heimahús þar sem
hann verður að mold.
Sum sveitarfélög hafa
valið þann kost að
benda íbúum á ákveðna
staði þar sem losa má
garðaúrgang. Lífrænan
úrgang sem til fellur við
heimilishald er einnig
hægt að jarðgera, bæði í
kössum viö heimahús
undir umsjón heimaað-
ila, en slík tilraun er t.d.
nú í gangi á Hólmavík,
og einnig má jarðgera þennan úrgang
í stærri einingum og er slík tilraun í
gangi á vegum Gámaþjónustunnar
með íbúum 100 einbýlishúsa í Hafnar-
firði. Timburúrgang er auðvelt að end-
urnýta og endurvinna. Brotamálmar
eru forunnir hér á landi og síðan
sendir til endurvinnslu erlendis.
Spilliefni sem falla til á heimilum
í núgildandi mengunarvarnareglugerð
er ákvæði sem segir að þeim hluta sér-
staks úrgangs sem telst til spilliefna
megi ekki blanda
saman við annan úrgang. Spilliefnum
veröur aö skila í spilliefnamóttökur,
þar sem þau eru flokkuð og þeim
komið í þá förgun sem þau þurfa. Best
er að skila efnunum í þeim umbúðum
sem þau voru keypt í því það auðveld-
ar mjög rétta flokkun og meðhöndl-
un;
Á heimilum eru notuð mörg efni
sem eru hættuleg umhverfi okkar ef
þeim er hleypt út í náttúruna í ein-
hverju magni. Óheimilt er að hella
niður í skólpræsi afgangsmálningu,
terpentínu, bensíni, úrgangsolíum,
skordýra- og illgresiseyði, sýrum og
vítissóda svo fátt eitt sé nefnt. Þessum
efnum verður að skila á viðeigandi
móttökustaði ef þarf að farga þeim og
það sama gildir um rafhlöður, raf-
geyma, lyfjaafganga, úöabrúsa og
þrýstihylki. Á ísskápum og frysti-
kistum eru kæliefni sem verður að
losa af þeim með réttum hætti áður
en þessum tækjum er fargað.
Umbúbir og umbúbaúrgangur
Að lokum verður hér minnst á eina
tegund úrgangs sem fellur til á heimil-
um en það er umbúðaúrgangur.
Reynsla af brennslu úrgangs í sorp-
brennslustöðvum hér á landi bendir
til þess að íslenskur úrgangur sé orku-
ríkari en víða erlendis. Aðalorsök þess
er taliö meira magn umbúða í úrgangi
hér en í nágrannalöndum okkar. I dag
skortir upplýsingar um umbúðanotk-
un, en skoða þarf gaumgæfilega þátt
umbúða í úrgangi sem fellur til hér-
lehdis. Síðan þarf að beita grunnregl-
um sorphirðu sem sýndar eru á mynd
2 á umbúðaúrgang þannig að fyrst og
fremst sé stuðlað að minnkun hans og
síðan að umbúðum sé breytt á þann
hátt að auðvelt sé að endurnýta og
endurvinna þær.
Framtíbarsýn
Aukinn kostnaður af förgun, upp-
setning móttökustöðva, aukin endur-
vinnsla svo og áhugi og skilningur al-
mennings á umhverfisvernd hefur
gert þaö að verkum að nú er mun al-
gengara að heimilisúrgangur sé flokk-
aður heima fyrir en fyrir 10 árum. í
dag er erfitt að reyna að spá í hvernig
flokkun heimilisúrgangs verður háttað
hér á landi eftir 10 ár. Hugsanleg
flokkun á úrgangi fer eftir því hvað
gera á við tiltekin úrgangsefni. Á
hverju ári koma upp nýjungar varð-
andi endurnýtingu á úrgangi og því
getur eitthvað efni sem sent er til
förgunar í dag verið orðiö að efni sem
hægt er að endurnýta eða endurvinna
á morgun.
Guðrúti S. Hilmisdóttir
verkfrœðittgur
Sambands íslenskra
sveitarfélaga