Skinfaxi - 01.12.1995, Blaðsíða 23
UMFÍ
23
Hremsum landib
✓
Samkvœmt samningi þeim sem Islendingar hafa gert
um EES, er gengist viö því aö minnka þann úrgang
sem til fellur á íslandi um allt aö 50% fyrir áriö 2000.
Til þess aö svo megi veröa þarf aö koma til sameigin-
legt átak stjórnvalda, sveitarfélaga, atvinnurekstrarins
og einstaklinga í landinu. Gera þarf einstaklingum og
fyrirtcekjum kleift aö sundurgreina hinn svokallaöa
„úrgang" sem í raun er aö stórum hluta hráefni til
endurvinnslu. Sundurgreina þarf gler, gúmmí, pappír,
plast, timbur og málma og koma í hendur endur-
vinnslufyrirtœkja.
komustöðum þess á landinu, sem síð-
an eru fluttir í vinnslustöö Hringrásar
sem er við athafnasvæði Eimskips í
Sundahöfn. Þessi samningur hefur
sýnt hagkvæmni sína, þ.e. að einfalda
vinnsluferlið og halda kostnaði í lág-
marki, á þann veg að flutningskostn-
aður sveitarfélaga frá heimahöfn á at-
hafnasvæði Hringrásar er lægri én
urðunarkostnaður fyrir hvert tonn.
Ánægjulegt er að sjá í verki hverju
samstarf Hringrásar, Eimskips og sveit-
arfélaga hefur skilað nú þegar.
Kannski er hér komin sú framtíðar-
lausn sem leitað er að og rædd hefur
verið í nefndum og ráðum en ekki
náðst samstaða um.
Endurvinnsla málma
Það er fyrst nokkru eftir seinni heims-
styrjöldina, um 1950, að skipulögð
söfnun járns og málma hefst á ís-
landi, þ.e. endurvinnsla málma. Á
ýmsu hefur gengiö til að koma þess-
um rekstri í þann farveg sem okkur
hentar, og er það fyrst nú á hinum
seinni árum að opinberir aðilar, at-
vinnureksturinn og einstaklingar hafa
gert sér fulla grein fyrir því um hve
þarft mál er aö ræða. Umhverfisyfir-
völd, samtök atvinnuveganna, sveitar-
félög, fyrirtæki og einstaklingar hafa
komið til samstarfs um lausn á söfn-
un brotajárns og málma af landinu
öllu, en í strjálbýlu landi er þetta allt-
af nokkurt vandamál.
Endurvinnsla í fimm áratugi
Hringrás hf. - endurvinnsla starfar á
grunni þess rekstrar er komið var á fót
árið 1950 af Einari Ásmundssyni og
sonum hans og hefur fyrirtækið ein-
beitt sér að söfnun og vinnslu brota-
járns og málma. Vinnslustöð Hring-
rásar er við stærstu höfn landsins í
Sundahöfn, og hefur fyrirtækið frá
upphafi haft aöstöðu á hafnarsvæði
Reykjavíkur og notið skilnings hafnar-
yfirvalda. Hringrás hefur þróað að-
ferðir sínar við söfnun á þann veg, að
það vinnur með verktökum frá hinum
ýmsu landshlutum og leggur.oft til
tæki og ráðgjöf um hvernig leysa
megi ákveðin verkefni.
Gott samstarf
Stór hluti kostnaöar viö meðhöndlun
brotamálma er flutningur. Hringrás
gerði á síðasta ári samning viö Eim-
skip um að gámar væru tiltækir til
lestunar á brotamálmum á öllum við-
Munum - það eyðist sem af er tek-
ið! Leggjum því kapp á, í umgengni
okkar við jörðina, aö nýta betur -
endurnýta og endurvinna - þau efni
jarðar sem við notum daglega.
Ásgeir Einarsson
framkvœnidastjóri
og einn afstofnendum NRF (Samtök
norrœnna endurvinnslufyrirtœkja)
og virkur félagi í BIR (Alþjóðasamtök
endurvinnslufyrirtœkja)
HREINSUM LRNDIÐ 06 MIÐIN MEÐ HRINGRRS...
Móttaka fyrir allt brotajárn
Kaupum alla málma
Útvegum hagstæða flutninga
M HRINGRAS HF.
ENDURVINNSLA
Sími: 581 4757 • Sundahöfn