Skinfaxi - 01.12.1995, Page 28
umhverfi
Líf og starf í fögru
Bcejarstjórn Akureyrar leggur áherslu á fagurt og heil-
nœmt umhverfi. Á hinum ýmsu svibum umhverfismála
er unnib samkvœmt áœtlun sem leggur grunn aö heil-
nœmu og fögru umhverfi fyrir bœjarbúa og gesti.
Ræktunarmál: Unnið er sam-
kvæmt 20 ára áætlun frá 1980.
Áætlunin miðar að fegrun opinna
svæða innan byggðarinnar, með
uppbyggingu skrúðgarða, frágangi
við umferðaræðar og gerð opinna
leiksvæða. Utan byggðarinnar er
markvisst unnið að gróðurvernd og
ræktun.
Útivistarsvæði: Kjarnaskógur,
Nausta- og Hamraborgir og Eyrar-
landsháls eru útivistarsvæði sunn-
an Glerár. í þessi svæði sunnan
Glerár hefur nú verið plantað úti-
vistarskógi á um 1000 ha svæði.
Samkvæmt áætlun er og hafin
útplöntun norðan Glerár í Rangár-
skóga, en gert er ráð fyrir að skóg-
ræktarsvæðin myndi kraga um
byggðina aldamótaárið 2000.
Beitilönd: Útleiga á beitilöndum
hefur verið endurskoðuð. Nú leigir
bærinn yfir 300 ha lands til beitar.
Beitarhólfin eru í um eins ha spild-
um, og er á áætlun að ríða um þau
skjólbelti. Unnið er að gerð reið-
leiða og göngustíga um svæðin.
Friöun: Krossanesborgir norðan
bæjarins sem eru um 60 ha hafa
verið friðaðar, svo og næsta um-
hverfi Glerár frá stíflu til fjalls. í
samvinnu við Eyjafjarðarsveit er nú
unnið að friðun á óshólmum Eyja-
fjarðarár.
Endurvinnsla: Akureyrarbær hefur
stutt stofnun fyrirtækja á sviði end-
urvinnslu. Á skipulögðu svæði fyrir
endurvinnslufyrirtæki í Réttar-
hvammi starfa nú: Gúmmívinnslan
hf. sem endurvinnur hjólbarða í
hellur, millibobbinga o.fl. Úrvinnsl-
an hf. sem endurvinnur pappír í
bretta- og arinkubba. Endurvinnslan
hf. sem tekur á móti flöskum dós-
um, rafhlöðum o.fl. og móttökustöð
fyrir spilliefni á vegum Sorpeyðing-
ar Eyjafjarðar bs.
Sorpeybing: Á þessu ári hóf starf-
semi sína Sorpeyðing Eyjafjarðar bs.
Sveitarfélögin á Eyjafjarðarsvæðinu
standa að fyrirtækinu. Urðun sorps
af svæðinu fer fram í Glerárdal fyrst
um sinn. Takmörkuð flokkun sorps
fer fram á gámasvæðum og fer nýti-
legt sorp til endurvinnslu í endur-
vinnslustöð (pappír). Sorpsamlagið
er nú að taka í notkun móttökustöð
fyrir brotajárn á Akureyri.
Fráveita: Unnið er að framkvæmd-
um við fráveitukerfi bæjarins, sam-
kvæmt framkvæmdaáætlun. Gert er
ráð fyrir að fráveitan uppfylli kröfur
í mengunarvarnareglugerð og að öllu
skólpi frá byggðinni verði dælt norð-
ur að Jötunheimum, þar sem það
verður grófhreinsað áður en því er
dælt út á tilskilið sjávardýpi. Stefnt
er að því að ljúka framkvæmdum við
fráveituna á næstu 8-10 árum.
Á þessu ári skipaði bæjarstjórn Akur-
eyrar nefnd til þess að vinna að fram-
tíðarstefnumörkun bæjarins í um-
hverfismálum undir kjörorðinu
„Græna Akureyri". Nefndinni er ætl-
að að koma með tillögur um hvernig
betur megi samræma aðgerðir stofn-
ana og deilda bæjarins til þess að ná
samhæfðari og betri árangri. Á grunni
tillagna nefndarinnar mun græni
bærinn Akureyri mæta nýrri öld.
Ami Steinar Jóhannsson
umhverfisstjóri