Skinfaxi - 01.12.1995, Page 30
Hráefníb pappír
Hin mikla umrœöa sem er í gangi núna um endur-
vinnslu pappírs leiöir vonandi til meiri skilnings á því
aö mannskepnan gangi vel um auölindir jaröar eins
og t.d. skógana. Ekki má þó rugla saman nytjaskóg-
um og náttúruskógum.
Það er þeim þjóbum til vansa sem
ganga óskipulega á náttúruskógana
einungis til aö skapa rými fyrir akvegi
eöa aöra hluti, sem hægt er aö komast
af meö annars staðar.
Mikið af þeim trjám sem felld eru t.d.
í Suður-Ameríku og í Miö-Austurlönd-
um og öðrum hitabeltissvæðum er
haröviöur, tekk, mahóní og þesshátt-
ar, sem vex hægt og er alls ekki not-
hæft til pappírsgerðar, aðeins sem
smíðaviöur.
Ef vib viljum draga úr eyðingu nátt-
úruskóga eigum við að skoða hug
okkar vel áður en við ákveðum að
setja einhvern sjaldgæfan við í þiljur
og klæðningar eins og oft er gert þeg-
ar veriö er að innrétta byggingar rík-
mannlega. Sjaldgæfur viður þýðir oft-
ast að hann er afurð af seinvöxnu tré
og jrví hæg endurnýjun skóganna.
Á Norðurlöndunum eykst skóg-
lendi, þ.e. nytjaskógar, um 2-3% á ári.
Stefna pappírsframleiðenda er að
klæða landið skógi sem allra mest.
Það er jú þeirra hráefni.
Nytjaskógar
Hér átti að fjalla um pappír og þar
komum við að nytjaskógunum. Und-
irritaður hefur sínar upplýsingar frá
Finnlandi, því þar ásamt í Noregi og
Svíþjóð er sagan í pappírsframleiðslu
nútímans, ef miöaö er við okkar
heimshluta, þar sem gerðar eru miklar
kröfur í umhverfismálum. Allt frá 16.
öld hafa Finnar nytjað sína skóga,
fyrst til útflutnings eldiviðar og síðan
frá 18. öld, þegar þeir byggðu sína
fyrstu sögunarmyllu, til timbur- og
pappírsframleiðslu. Lykilorðið er að
planta alltaf fjórum trjám fyrir hvert
eitt sem fellt er, þannig viðhalda
menn auðlindinni. Þessi regla er í
gildi hjá öllum sem vilja vibhalda
nytjaskógum. Finnar kalla sína skóga
„græna gullið" og af því má sjá hve
mikla virðingu þeir bera fyrir þessari
auðlind.
Þær þrjár viðartegundir sem mest
eru notaðar til pappírsgerðar eru fura,
birki og greni. Allt viðartegundir sem
vib þekkjum og vaxa á svipuðum stað
norðlægrar breiddar og ísland er á og
því ekkert því til fyrirstöðu að skóg-
rækt verði álitleg atvinnugrein hér,
sem og á Norðurlöndunum. Hver veit
nema Islendingar gætu farið ab flytja
út timbur til pappírsframleiðslulanda
innan skamms tíma.
Notkun pappírs
Pappír er mjög skemmtilegt og fjöl-
breytt efni ab gerð. Getur þú, lesandi
góöur, hugsað þér daglegt líf án papp-
írs? Ekkert er sjálfsagt í náttúrunni og
þess vegna eigum við að huga vel að
því hvernig við umgöngumst hana. í
þeirri prentsmiðju sem ég vinn í,
Prentsmiöjunni Odda, er lögb rík
áhersla á að allur pappír sem unnið er
með hafi viðurkenningu umhverfis-
samtaka, t.d. Hvíta svaninn. Við eig-
um að auka notkun pappírs í stað
plastefna og annarra afurða úr
olíunni.
Pappír í svokölluðum eldhúsrúllum
og annar rakadrægur pappír er t.d.
eitthvað sem eigum að minnka notk-
un á, því til að gera pappír rakadræg-
an þarf ab nota með áðurnefndum
trjátegundum, equalyptustré, sem
flokka má undir náttúruskógatré, þó
þau vaxi ekki í skógum. Þar að auki er
sannaö aö þau brotna mjög seint nið-
ur í náttúrunni og er því þannig
pappír lengi ab eyðast.
Auka ætti notkun pappírsbakka
undir ávexti, grænmeti og fleira eins
og gert er meb eggin, í stað plasts.
Pappírspokar sem umbúðir í verslun-
um eru eitt dæmi um óplægðan akur