Skinfaxi - 01.12.1995, Blaðsíða 32
Endurvinnsla einnota
umbúba á Islandi
Meö stofnun Endurvinnslunnar hf. þann 7. júní 1989
var stigiö fyrsta skrefiö til markvissrar söfnunar og
endurvinnslu einnota umbúöa á íslandi. Alþingi sam-
þykkti í maí 1989 lög um ráöstafanir gegn umhverfis-
mengun af völdum einnota umbúöa fyrir drykkjarvör-
ur. Lögin gera ráö fyrir álagningu skilagjalds á ein-
nota umbúöir fyrir drykkjarvörur.
Skilagjald
Skilagjald er í dag 7 kr. á hverjar um-
búðir sem flokkast sem skilagjalds-
skyldar samkvæmt reglugerð. Umbúða-
tegundir sem þannig flokkast eru
skráðar í auglýsingu hér til hliðar. Við
kaup á skilagjaldsskyldum umbúðum
greiðir neytandinn skilagjald. Inn-
heimtuaðilar skilagjalds skila því í
sjóð í vörslu Ríkisbókhalds sem greiðir
innheimt skilagjald til Endurvinnsl-
unnar. Neytandinn á síðan endur-
kröfurétt á skilagjaldinu frá Endur-
vinnslunni eða umboðsaðilum fyrir-
tækisins við skil á umbúðunum.
Meðfylgjandi mynd sýnir feril umbúða
frá neytendum til Endurvinnslunnar hf.
og síðan í endurvinnslu eða endurnýt-
ingu.
Móttaka
Endurvinnslan er ábyrg fyrir móttöku
umbúða og endurgreiðslu skilagjalds
um allt land. Yfirleitt er um að ræða
umboðsmenn sem fá greitt fyrir þá
þjónustu sem þeir veita á hverjum
stað. Endurvinnslan er með eigin
móttöku á Akureyri og viö Knarrarvog
í Reykjavík. Mótteknar umbúðir eru
nánast allar fluttar til vinnslu í
Reykjavík. Eina undantekningin er að
á nokkrum stööum, þar sem hægt er
að koma því við, eru einnota gler-
flöskur brotnar og urðaðar, því ekki
borgar sig að flytja einnota glerflöskur
milli landshluta. Að Knarrarvogi 4 í
Reykjavík fer öll vinnsla umbúða
fram.
Skrapvirði
Skrapvirði, eða söluverð móttekinna
umbúða til endurvinnslu, í skila-
gjaldskerfinu er mjög mismunandi.
Hæst verð fæst fyrir áldósir en einnig
fæst gott verð fyrir plastflöskur. Stál-
skrap er nánast verðlaust og ekkert
fæst fyrir glermulning.
Við sölu á ál- og plastskrapi erlendis
skiptir verulegu máli að þjappa um-
búðunum sem best saman, þannig aö
flutningskostnaður á hverja einingu
verði sem lægstur. Einnig skiptir
flokkun umbúða mjög miklu máli og
fjarlægja verður alla aðskotahluti. Ef
flokkun er ekki nægilega góð þýöir
það verðfall á viðkomandi farmi.
Umfang
Starfsemi Endurvinnslunnar er tals-
vert umfangsmikil. Alls voru seldar