Skinfaxi - 01.12.1995, Page 42
42
UMFÍ
hverfi ókkar. Stærstur hluti þeirra eru
plastumbúöir, brúsar, flöskur, dollur
og pokar. Það er því skiljanlegt aö
margir hafi horn í síðu plastsins og
telji þaö hinn versta mengunarvald.
Þaö má hins vegar sýna fram á þaö
meö rökum, aö plastumbúðir eru í
raun mjög heppilegar til síns brúks.
Helsti ókosturinn við þær er sá hvað
þær eru áberandi ef þær eru skildar
eftir á víöavangi.
Plast er unnið úr olíu, þ.e. gróöur-
leifum, og því er uppistaöan í plasti
kolefni og vetni, sem eru sömu efni
og lífverur eru gerðar úr.
Umbúbir
umhverfi
Ahugi manna á umhverfi sínu og umhverfisvernd hef-
ur aukist mikiö á undanförnum árum. Fyrir þessu eru
ýmsar ástœbur, t.d. aukin þekking manna á umhverfi
sínu og skilningur á þeim þáttum sem skipta máli í
umhverfisvernd. Þeir sem lengst eru komnir í umhverf-
isvernd eru víösýnir menn. Þeir skoöa málin frá öllum
sjónarhornum og foröast þröngsýni og sleggjudóma.
ísland er strjálbýlt land og iðnaður og
mengun tiltölulega lítil miöaö viö
mörg önnur lönd. Allt fram á þessa
öld höfum viö fyrst og fremst stundað
landbúnað og fiskveiöar, atvinnuvegi
sem hafa fram undir þetta ekki talist
mengandi. Af þessum sökum er e.t.v.
hætta á því aö viö sofnum á verðin-
um, því mengunarvarnir viröast í
fljótu bragöi ekki vera aðkallandi. Því
er mikilvægt aö allir íslendingar vakni
og fari aö hugsa um umhverfi sitt svo
halda megi íslandi í hópi hreinustu
landa heimsins.
Öll höfum viö tekið eftir sóðaskap í
umhverfi okkar. Við sjáum hann bæöi
til sjávar og sveita, sérstaklega þar sem
fólk safnast saman, jafnvel í fjörum í
óbyggðum fjörðum. Þetta er leiðinleg
sjónmengum og í sjálfu sér ekki
hættuleg. Þaö er hins vegar ástæöa til
aö óttast þá mengun, sem maður ekki
sér. Hætta er á því aö þeir sem ganga
þannig frá skaölitlum úrgangi aö
hann berst um allar jaröir gangi einn-
ig þannig frá skaölegum úrgangi aö
hann berist um víöan völl. Því er
ástæöa til aö hvetja menn til aö ganga
vel um og farga sorpi sínu á skyn-
saman hátt.
Umbúbir eru mjög áberandi í
sóbaskapnum í umhverfi
okkar
Umbúöir, sem búiö er aö nota, eru
mjög áberandi í sóöakapnum í um-
Boriö saman vib önnur efni er
piastib umhverfisvænt
Boriö saman viö önnur efni er plastiö
umhverfisvænt í framleiðslu. Tiltölu-
lega lítla orku þarf til framleiðslu þess
og mengun viö hana er lítil. Einnig
inniheldur plastið mikla orku og er
heppilegt til brennslu í brennslu-
ofnum.
Þegar sorp er uröað er því þjappað
saman í bagga og grafið í jöröu. Urö-
unarstaöir eru valdir þurrir til aö
menga ekki grunnvatn. Aö þessum
sorphaugum kemst því lítið loft og
vatn og því er allt niöurbrot mjög
hægt. Ef grafið er ofan í sorphauga,
má þekkja hluti eins og pylsur, gul-
rætur og hvítkál jafnvel áratuga gamla
og hægt er aö lesa dagblööin, sem
hent var á sama tíma.
Niöurstaöan er því sú, aö plast er
mjög heppilegt til aö nota í hvers
konar umbúöir. Þaö er létt svo flutn-
ingskostnaöur minnkar, það ver vör-
una, sem þaö geymir vel, þaö er ódýrt
og mengunarlítiö í framleiðslu og þaö
er auðvelt í endurvinnslu.
Oddur Eiríksson
gœðastjóri Plastprents