Skinfaxi - 01.12.1995, Qupperneq 44
UMFÍ
■■■■■
Mat á umhverfis-
áhrifum framkvæmda
/ fjölmiölum er nœr daglega greint frá ýmsum meiri-
háttar framkvœmdum sem eru í undirbúningi eða
lengra komnar. Má þar nefna til dœmis nýju Höföa-
bakkabrúna í Reykjavík, áform um stœkkun álversins í
Straumsvík og lagningu háspennulínu frá fyrirhugaöri
Fljótsdalsvirkjun.
Ábur en framkvæmdir af þessu tagi geta
hafist er fjallað 'um þær af ýmsum opin-
bemm aðilum svo sem viökomandi
sveitarstjórnum, Hollustuvemd ríkisins,
Náttúruvemdarráði og Skipulagi ríkisins.
Til þess að þessir aðilar geti tekið afstöbu
til áhrifa framkvæmdar þarf fram-
kvæmdaraðili að afla ýmissa gagna á
undirbúningsstigi og geta þau haft áhrif
á endanlega gerð mannvirkis eða t.d.
hvaða leið er valin fyrir veg.
Lög um mat á umhverfisáhrifum
komu til framkvæmda 1. maí 1994.
Lögin eiga að tryggja að framkvæmdir
séu hannaðar með tilliti til umhverfis-
ins eöa með öðrum orðum eiga hönn-
uðir að finna þá leið sem hefur minnst
umhverfisáhrif.
Meö lögunum voru stigin tvö stór
skref í framangreindri undirbúnings-
vinnu og gagnasöfnun.
1. Annars vegar þarf framkvæmdar-
aðili að skrifa svokallaöa mats-
skýrslu. Þar er safnað á einn stað
öllum niburstöðum kannana sem
gerðar eru í hverju tilviki svo
áhrif á umhverfið séu ljós. Bornir
eru saman kostir, metið hvort
áhrif á umhverfið eru viðunandi
og ákveðið hvaða ráðstafanir
þurfi að gera til að draga úr nei-
kvæðum áhrifum.
2. Hins vegar varöandi þátttöku al-
mennings við mat á umhverfis-
áhrifum og ákvaröanatöku um
framkvæmdir. Lögin tryggja rétt
almennings til þátttöku með því
að matsskýrsla er gerð aðgengileg
í því sveitarfélagi þar sem fram-
kvæmd á sér stað. Auglýst er
hvar hún liggur frammi og hve-
nær (fimm vikur) og að innan
tilskilins frests geti hver sem er
sent athugasemdir sínar til
Skipulags ríkisins.
í stuttu máli eru allar vegafram-
kvæmdir matsskyldar samkvæmt lög-
unum, og hið sama gildir um virkjan-
ir, stærri háspennulínur, námur yfir
tiltekinni stærð, þjónustumiðstöðvar
fyrir ferðamenn utan byggða, sorp-
förgunarstöðvar og förgunarstöövar
fyrir eitraðan og hættulegan úrgang,
ýmsar verksmiðjur, hafnir og flug-
velli. Auk þess getur umhverfisráð-
herra úrskurðað aö aðrar fram-
kvæmdir skuli fara í mat á umhverfis-
áhrifum og hefur hver sem er
heimild til þess ab koma ábendingum
um slíkt til hans.
Skipulag ríkisins hefur umsjón meö
framkvæmd þessara laga. Fram-
kvæmdaraðilinn sjálfur metur áhrif
framkvæmdar, eða fær ráðgjafa til
þess og leggur matsskýrsluna fram
hjá Skipulagi ríkisins. Þá er fram-
kvæmd kynnt eins og nefnt er hér ab
framan. Áð kynningartíma liðnum
metur skipulagsstjóri þær athuga-
semdir sem borist hafa og umsagnir
sem hann hefur leitað eftir og kveður
upp úrskurb um hvort heimila eigi
framkvæmdina, með eða án skilyrða,
eða að fram þurfi að fara frekara mat.
Úrskurð sinn verður
skipulagsstjóri að
kveða upp innan
átta vikna frá því að
framkvæmd er
auglýst.
Mikilvægt er að al-
menningur fylgist
vel með auglýsing-
um og fréttum um
fyrirhugaðar fram-
kvæmdir, athugi
hvort um fram-
kvæmd er að ræða
sem varðar viðkom-
andi, kynni sér mats-
skýrslur og komi
sjónarmiðum sínum
á framfæri sem fyrst.
Skipulag ríkisins
veitir allar nánari
upplýsingar og hvet-
ur til þess að þjón-
usta þess sé nýtt.
Þóroddur
Þóroddsson
Skipulagi ríkisins
Hveravellir- Mat á umhverfisáhrifum vegna deiliskipulags á vœntanlegri þjónustumiöstöö fyrir feröa-
menn.