Skinfaxi - 01.12.1995, Side 51
UMFÍ
WBmgfMMj
ER LÍFSNAUÐSYN
og í Reykjavík. Landgræðsluveröir
starfa auk þess víða um land. Gróður-
verndarnefndir starfa í öllum sýslum
landsins og mörgum kaupstöðum.
Fjölþætt markmiö
Gróður- og jarðvegseyðing, hvort sem
hún á sér rætur í fortíð eða nútíð, hef-
ur fjölþætt áhrif á allt umhverfið og
daglegt líf okkar allra. Hún veldur
meðal annars óhagkvæmari landbún-
aðarframleiðslu en ella, skjólleysi,
sandfoki, flóðum, skriðuföllum og
auknum skafrenningi. Verðmæti ör-
foka mela og annars illa farins lands
ér í flestum tilfellum afar lítið.
Markmið landgræðslustarfsins eru
því mörg og mun fleiri en liggja í aug-
um uppi. Hér verða aöeins nefnd örfá
af þeim mörgu sjónarmiðum sem þarf
að vega og meta í starfi okkar land-
græðslumanna að varðveislu og end-
urheimt landkosta.
Stöövun jarövegseyöingar
Stöðvun jarðvegseyðingar er mikil-
vægasta markmið Landgræðslunnar.
Rannsóknir og gerö rofkorta af öllu
landinu, sem nú er unnið að á vegum
Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
og Landgræðslunnar, sýna aö jarð-
vegseyðingin er víðtækari en áöur var
talið. Sérstaklega á það við um sand-
fok en þess má geta að íslenska mel-
gresið er eina tegundin sem unnt er
að nota við að hefta foksand.
Mat á ástandi lands
Rannsóknir staðfesta gott ástand á
mörgum svæöum, sem auöveldar
skipulag landbúnaðar með hliðsjón af
gróðurvernd. A stórum hlutum lands-
ins er útbreiösla og tegundasamsetn-
ing gróðurs hins vegar í litlu samræmi
við það sem verið gæti. Bæta þarf
ástand gróðurs og jarðvegs, öllum íbú-
um landsins til hagsbóta.
í sveitum þarf sums staðar að
byggja upp næringarríkan gróður fyrir
arðsama búfjárbeit. í þéttbýli getur
skjól, vörn fyrir skafrenningi eða
skriðuföllum o.s.frv. skipt meira máli.
Enn annars staðar geta ásýnd lands og
útivistarsjónarmið skipt meginmáli.
Áhrif gróöurs og jarövegs á vatns-
miðlun eru mikil. Eyðingin hefur
raskað vatnsbúskap þannig að víða
flæöir úrkoma og leysingavatn strax í
burtu í stáö þess að síga niður, mynda
grunnvatn og streyma fram með
jöfnu rennsli.
Ástand lands hefur mikil áhrif á allt
líf í kringum okkur, hvort heldur er
um að ræða búfé, hreindýr, refi og
fugla, lífiö í jarðveginum og jafnvel
fiskana í ám og vötnum. Við þurfum
því að vinna að því með öllum tiltæk-
um ráðum aö koma í veg fyrir enn
frekari skemmdir á landi og jafnframt
bæta landkosti.
Uppgræösla
Nýting lands hefur mikil áhrif á
ástand lands og hversu hratt land
grær upp af sjálfsdáöum. Nýtingunni
getum við stjórnað, en víða þarf að
aðstoða náttúruna við aö græða sárin
með sáningu og áburöardreifingu.
Sáning minnkar holklaka og skapar
skilyrði fyrir annan gróður sem tekur
við af sáðgresinu þegar áhrif áburöar-
gjafarinnar dvína.
Lúpínan er afkastamikil og hag-
kvæm landgræðslujurt, sem þó ber að
nota með aðgát. Á rótum hennar lifa
bakteríur sem binda köfnunarefni
(nítur) úr lofti og lúpínan er því
nokkurs konar lifandi áburöarverk-
smiðja. Gæta þarf þess að lúpínan
breiðist ekki út fyrir þau svæði sem
henni er ætlaö að græða.
Landgræðslan veitir fúslega ráðgjöf
um uppgræðslu lands og stöðvun
jarðvegseyðingar, sem og annað sem
lýtur að varðveislu og endurheimt
landkosta.
Cræöum ísland - hvaö get ég gert?
Landgræðslustarfið er í sífelldri mót-
un. í riti Landgræðslunnar, Stefnumið
í landgræðslu og gróðurvernd, kemur
m.a. fram áhersla á öflun þekkingar á
vistkerfinu, sem við erum öll hluti af,
og leiðum til að vernda það og bæta.
Fræðsla er einn af hornsteinum
landgræðslustarfsins. í því augnamiði
gefur Landgræðslan út fréttabréf,
myndbönd, bæklinga og árbækurnar
Græðum ísland, sem er fjölbreytt og
aðgengilegt rit fyrir leika sem lærða.
Fræðslufulltrúar Landgræðslunnar
heimsækja marga skóla á hverju ári.
Landgræðslan stefnir að því aö auka
enn frekar samstarf við bændur, fé-
lagasamtök og aðra áhugaaðila.
Dæmigerö verkefni felast í að bæta
landkosti bújarða, stuðla að vistvænni
landnýtingu, sá í rofabörð og önnur
jarövegssár, græða umhverfi þéttbýlis-
staða, bæta land til útivistar og vernda
náttúruperlur. Það er því margt sem þú
getur gert, og öll aðstoð við að bæta
landið okkar er fúslega þegin.
Andrés Arnalds
Landgrœðslu ríkisins
L