Skinfaxi - 01.12.1995, Blaðsíða 56
56
UMFI
Stubbastokkar náttúrunnar vegna
/ gegnum árin hafa Is-
lendingar státab sig af ab
búa vib hreinasta
loft og vatn sem
völ er á í heimi.
Umhverfismál eru
ekki gamall mála-
flokkur á íslandi.
Þab eru ekki mörg
ár síban farib var
ab fjalla um um-
hverfismál hérlend-
is fyrir alvöru.
Umhverfisráðuneyti var
stofnað um 1985. Áhugi
landans var mestur á því
hvernig bíl þáverandi ráð-
herra fékk til umráða.
Stjórn Æskulýðssambands
íslands ákvað í upphafi árs-
ins '95 að helga árið um-
hverfismálum. Sett var á
laggirnar umhverfismálan-
efnd. Nefndin hefur haldið
nokkra fundi þar sem marg-
ar góðar hugmyndir hafa
komið fram og málefnaleg
umræða skapast um umhverfismál.
Fátt er leiðinlegra þegar gengið er
um náttúru íslands en að sjá vind-
lingastubba og tyggjóklessur á víð og
dreif. Vindlingastubbar eyðast seint
úti í náttúrunni. Það tekur reyksíu í
vindlingastubb 50 ár að eyðast í nátt-
úrunni.
ÆSÍ stóð fyrir náttúruverndarátaki í
sumar undir nafninu „Stubbastokkur
náttúrunnar vegna", til verndar ís-
lenskri náttúru.
\\úr u n
veq'
Stgarettusfutabar og tygglgúmmi eiga heima I Sfubhastoklinuni
Tókum nú höndum saman og ferðumst með Stubbaslokkinn i sumar.
Göngum vel um natturuno og skilum henni hreinni til æsku landsins.
Stokkurinn er opnaður að ofan með
því að draga lokið frá. Við opið er lítil
stálfjöður sem hægt er að nota til að
drepa í vindlingnum. Síðan er vind-
lingastubbnum stungið í stokkinn og
lokið dregið fyrir aftur. Ef um tyggjó-
notanda er að ræða er hægt að snúa
lokinu við því þá er fjöðurin ekki fyr-
ir. Síðan má tæma stokkinn í næstu
ruslatunnu þegar hann er orðinn full-
ur. Þess má geta að stokkurinn er
framleiddur í plastverksmiðjunni Sig-
urplasti í Mosfellsbæ. Hann
er íslensk hugmynd og
hönnun.
íslandsbanki og Olíuversl-
un íslands gerðust styrktar-
aðilar átaksins. Stokkunum
verður dreift á afgreiðslust-
öðum íslandsbanka, Olís og
hjá langferðabílastöðvum
um land allt.
Með þessu átaki er ekki
verið að réttlæta reykingar.
En ekki má líta fram hjá því
að á meðan reykingar eru
stundaðar þá er þessi stokk-
ur þarfaþing. Skynsamlegast
er að láta af reykingum. Það
hefur orðið mikil breyting
til batnaðar. Sífellt fjölgar
þeim sem hætta reykingum.
Einnig fjölgar þeim stöðum
þar sem bannað er að
reykja. Stofnanir og fyrirtæki
hafa mörg hver algjörlega
bannað reykingar innan
dyra. Það má sjá fyrir utan
fyrirtæki og stofnanir, þar
sem reykingamenn henda
frá sér stubbunum. Stokkur-
inn getur komið til hjálpar á
slíkum stöðum. Besta er að
láta reykingar alveg vera
bæði heilsunnar og buddunnar vegna.
Þegar reykingar heyra sögunni til,
vonandi fljótlega á næstu öld, verður
stubbastokkurinn minnisvarði um
ósóma fortíðarinnar við hlið gömlu
hrákadallanna.
Gylfi Þ. Gíslason
formaður Æskulýðssambands
íslands