Skinfaxi - 01.12.1995, Blaðsíða 71
UMFÍ
71
Þessi teikning sýnir hluta af skýringunni af hverju svo miklu minni orkueyösla og út-
blástursmengun stafar af dreifingu mjólkur í pappaumbúbum en í glerflöskum eöa
öörum margnota umbúöum. Bíllinn sem flytur mjólk í fernum er fullur af mjólk en
40% affarmi bílsins sem flytur mjólk í glerflöskum eru umbúöir.
a—
plastflöskur og plastbrúsar skilja sára-
lítið sorp eftir sig en glerbrúsar rúm 2
kg. Niðurstöðurnar í þessu fara alger-
lega eftir forsendunum um það hvað
umbúðirnar eru notaðar oft. Athugan-
ir sem gerðar hafa verið benda til þess
að margnota umbúðirnar séu ekki
notaðar eins oft og umbúðirnar þola.
Ef það er raunin, eins og ýmsar athug-
anir benda til, myndi munurinn milli
pökkunarkerfanna minnka umtals-
vert, pappaumbúðunum í hag. í ný-
legri enskri skýrslu kemur til dæmis
fram að mjólkurflöskur eru að meðal-
tali aðeins notaðar tólf sinnum en
miöað er við 30 skipti í samanburð-
arathuguninni. Ef miðað væri við þær
forsendur yrði sorpið frá hinum mis-
munandi gerðum margnota umbúða
þrisvar til fimmtán sinnum meira í út-
reikningunum hér að framan.
Heildaráhrif
fernunni í vil
En hver eru heildaráhrifin? í opinberri
sænskri úttekt sem gerð var á mis-
munandi umbúðakerfum út frá um-
hverfisverndarsjónarmiði árið 1991
var dregin sú ályktun að ekki væri
augljóst hvaða kerfi mjólkurdreifingar
væri best út frá sjónarmiðum um-
hverfisverndar. í umræddri rannsókn
fyrir Tetra Pak, þar sem reynt er að
meta heildaráhrif umbúðanna á mis-
munandi umhverfisþætti, er niður-
staðan mjólkurfernunni mjög í vil.
Samkvæmt þvi eru áhrif margnota
glerflaskna, glerbrúsa og plastbrúsa
meira en tvöfalt meiri á umhverfið en
mjólkurferna. Margnota plastflöskur
koma næstbest út. í gögnum Tetra
Pak er bent á ýmsar aðrar rannsóknir
sem styðja þessar niðurstöður.
Umhverfisstefna
Tetra Pak
Tetra Pak hefur sett sér umhverfis-
stefnu. Þar segir aö fyrirtækið vilji
hafa á boðstólum hagkvæm og hent-
ug pökkunarkerfi fyrir matvæli í fljót-
andi formi. Umbúðirnar eigi að varð-
veita vöruna sem best og hafa sem
minnst áhrif á umhverfið. Fram kem-
ur að við þróun pökkunarkerfa eigi að
hafa það að markmiði að sem minnst
sé tekið af auðlindum náttúrunnar og
sem minnst orka notuð og þau skilji
eftir sig lágmarksúrgang. Einnig að
beita skuli hreinustu og nútímaleg-
ustu tækni við að framleiða hráefnið í
umbúðirnar og að velja skuli þá hrá-
efnabirgja sem beita bestu aöferðun-
um út frá umhverfissjónarmiði.
í þessu sambandi bendir Tetra Pak á
þá staðreynd að pappaumbúðirnar eru
að 80% hluta úr pappír og 20% úr
plastefnum. Plastib er nauðsynlegt til
að fernurnar leki ekki og til að varð-
veita gæbi mjólkurinnar sem best.
Pappírinn er unninn úr skógum Sví-
þjóðar og Finnlands og bent er á að
skógarnir eru endurnýjanleg auðlind.
í þessum löndum hehir vöxtur
trjánna verið mun meiri en það sem
höggvið er. í þeim tilgangi ab minnka
sem mest áhrif pappírsframleiðslu á
umhverfið hefur Tetra Pak tekið þátt í
alþjóðlégum samtökum um að kaupa
eingöngu pappír sem framleiddur er
með bestu tækni með tilliti til um-
hverfisins.
Endurvinnsla
pappaumbúba
Frá upphafi hafa umbúðir Tetra Pak
verið hafðar eins efnislitlar og mögu-
legt er og því skilja þær eftir sig lítinn
úrgang miðað við einnota umbúbir.
Það er fyrsta stigið í að minnka sorp-
iö. Tetra Brik-umbúöirnar (til dæmis
mjólkurferna MS) eru 28 g að þyngd
en samsvarandi glerflaska 360 til 600
g Og þótt glerflaskan sé notuð oft
skilja þessar pökkunaraðferðir eftir sig
svipaðan úrgang á hvern lítra af pakk-
aðri vöru. Önnur leið til að minnka
það rusl sem fer til urðunar er að auka
endurvinnslu. Tetra Pak hefur lengi
unnið að þróun aðferða við fram-
leiðslu úr verksmiðjuúrgangi. Fyrir-
tækið hefur tekið þátt í tilraunaverk-
efni þar sem íbúar ákveðinna staða í
Svíþjób eru fengnir til að flokka sorp--
ið með tilliti til pappaumbúðanna.
Þeim er haldib sér eins og dagblöbum,
rafhlöbum, dósum og flöskum. Síban
er verið að leita ab leiðum til að end-
urvinna umbúðapappírinn. Þetta
verkefni fellur vel aö nýjum sænskum
lögum um ábyrgð framleiðenda.
Ábyrgð þeirra nær frá og með næsta
ári einnig til mengunarinnar og úr-
gangsins sem umbúðir þeirra skilja
eftir sig. Sett eru markmið um endur-
heimtur og endurvinnslu á umhverfis-
góðan hátt. Svíar brenna meira en
helming alls þess húsasorps sem til
fellur í landinu og framleiða með því
hita og rafmagn. Mjólkurumbúðirnar
eru gott eldsneyti. Tvö tonn af um-
búðapappa samsvara einu tonni af
olíu eba kolum og sýna rannsóknir að
mengun frá mjólkurfernum er svipuð
og þegar kynt er með viði.
Helgi Bjamason
blaðamaður