Skinfaxi - 01.12.1995, Blaðsíða 75
Islenskt umhverfi -
heilnæmi sjávarafurha
Niöurstöbur rannsókna sýna aö íslenskur fiskur er
heilnœmur og nœringarríkur en þaö er veigamikill
þáttur í aö áfram takist aö selja kröfuhöröum kaup-
endum víöa um heim íslenskan fisk á góöu veröi.
Mikilvægur þáttur í starfsemi SH er aö
tryggja heilnæmi íslenskra sjávar-
afurða, þ.e. eðlilega hollustu þeirra, og
að þær séu lausar við alla mengun,
bæði af völdum örvera og aðskotaefna.
Heilnæmi fisks er best tryggt með
hreinu umhverfi hans í hafinu, hrein-
læti og góðri umgengni við alla með-
ferð og vinnslu og þekkingu á þeim
þáttum er geta valdið mengun hans.
SH og frystihúsin
innan samtakanna
vinna að því að
tryggja heilnæmi
fisks í vinnslu á eft-
irfarandi hátt:
a) Meö því að
skapa umhverfi
utanhúss og
innan sem er í
samræmi við
kröfur viðskipta-
vina um um-
gengni og hrein-
læti við mat-
vælavinnslu.
b) Með því að vinnslan sé í fullu sam-
ræmi viö hollustuhætti.
c) Með því að fræða starfsfólk í fisk-
vinnslu um mikilvægi hollustu-
hátta við fiskvinnslu.
d) Með því að annast eftirlit með
framleiöslunni og umhverfi hennar.
Erlendir kaupendur treysta heilnæmi
fisksins okkar, er þeir sjá vinnsluna frá
upphafi til enda. Kalt hafið, meðferð
aflans og vélvædd vinnsla tryggja líka
ferskleikann.
Innlendar rannsóknir og alþjóðlegt
samstarf miða að því að auka þekk-
ingu á og draga úr mengun hafsins.
Enn er lítið vitað hvaða áhrif mengun
hefur á vistkerfib í hafinu t.d. þá líf-
fræðilegu þætti er ráða vexti og við-
komu fiskistofna og þeirra lífvera er
fiskurinn nærist á. Aðeins fjölþjóðleg-
ar rannsóknir og forvarnir geta tryggt
ab ekki verði meb mengun unnið
óbætanlegt tjón á lífkerfi hafsins og
um leið á lífsafkomu þjóðarinnar.
Traustur gagnagrunnur og vísindaleg
færni er líka forsenda þess að íslensk-
ur sjávarútvegur geti brugðist fljótt
við mengunarslysum eða öbru frétt-
næmu ástandi er ógnað gæti ímynd
íslenskra fiskafurða.
íslandsmib eru ómenguö - niöur-
stöbur rannsókna
Viðamiklar rannsóknir hafa verið
gerðar á aðskotaefnum í íslensku sjáv-
arfangi og mengun á íslenskum haf-
svæðum. Þær eru hluti af yfirlitsverk-
efni ICES (International Council for
the Exploration of the Seas) en ýmsar
innlendar rannsóknastofnanir taka
þátt í því.
Þannig er meb skipulegum hætti
unnið að mælingum á þungmálmum,
geislavirkni og þrávirkum plágu- og
iðnaðarefnum en rannsóknirnar mið-
ast við Norður-Atlantshafið og mæl-
ingar á ýmsum lífverum, þ. á m.
nytjafiskum.
Skemmst er frá því að segja að allar
mælingar benda til að íslandsmið séu
ómenguð af iðnaðarúrgangi og er það
fyrst og fremst ab þakka legu landsins,
hafstraumum og fámenni og atvinnu-
háttum þjóðarinnar. Mengun virðir
hins vegar engin landamæri og úr-
gangsefni ibnaðarþjóba geta smám
saman stórspillt hafinu og ímynd
sjávarafurða almennt.
Rannsóknir á þungmálmum í fiski
eru stundaðar á Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins. Mest er fylgst með
kvikasilfri, kadmíni, arseni og blýi.
Þessir málmar eru hluti af náttúrulegu
umhverfi allra lífvera en eru auk þess
víða til marks um mengun. Náttúru-
legt snefilmagn í lífverum er háð eld-
virkni, gerð berggrunns og veðurfari
en mengun stafar frá ýmsum iðnabi. í
lífríki hafsins hafa þungmálmar mikið
verið rannsakaðir, sumar tegundir
safna þessum efnum í sig og til
skamms tíma var ríkjandi sá hugsun-
arháttur ab lengi tæki sjórinn við. Al-
þjóblegar stofnanir, t.d. FAO, hafa tek-
ið saman leyfileg mörk fyrir þessi efni
í matvælum. Mælingar á íslenskum
fiski sýna ótvírætt að þungmálma er
eingöngu að finna í íslenskum fiski af
náttúrulegum ástæbum og mæligildin
fyrir fiskhold eru með þeim lægstu
sem þekkjast.
Þrávirk líf-
ræn úrgangs-
efni iðnaöar
eru mjög vara-
söm í náttúr-
unni. Þekktust
eru svonefnd
PCB-efni en
þau skipta
mörgum tug-
um og er nú
alls staðar að
finna. Ströng
mörk hafa ver-
ið sett fyrir þessi efni í matvælum.
Strangastar eru reglur í Þýskalandi og
þar eru mörkin um og undir 0,1 ppm
í ferskvigt sjávarfangs. íslenskur 2-3
ára þorskur reynist hafa um 0,01 ppm
þessara efna eba um 10% af ströng-
ustu mörkum og telst það afar lítið.
Mælingar á geislavirkni sýna ótví-
rætt að enn hefur geislavirkni ekki
borist á íslandsmið.
Verndum lífríki hafsins
Niðurstöður rannsókna minna okkur
á að halda vöku okkar í umhverfis-
málum.
Allt bendir til þess að heilnæmi
matvæla verði í augum neytenda enn
mikilvægara í framtíðinni en það er
nú. íslenskar sjávarafurðir þurfa ab
halda orðspori sínu og þab þarf ab
byggjast á niðurstöðum vísindalegra
athugana og þátttöku í alþjóðlegu
vöktunarstarfi.
Dr. Alda Möller
matvœlafrœðingur
þróunarstjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna