Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Síða 1
SJÓMANNABLAÐIÐ
UIKIH6UR
ÚTGEFANDl: FARMANNA- OG FISKIMANNASAMBAND ÍSLANDS
VII. árg. 1.-2. tbl. Reykjavik, jan.—febr. 1945
Horft fra m á vegirm
Um áramótin minnumst við sjómennirnir
þeirra úr stétt okkar og annarra, sem látið hafa
lífið á liðna árinu í baráttunni við æstar öldur
hafsins eða hina klettóttu strönd lands vors, og
þeirra, sem hafa orðið hamförum ófriðarins að
bráð á hafinu. Við minnumst landa okkar, er
þannig hafa látið lífið, með þakklæti í huga fyrir
störf þeirra í þágu þjóðar vorrar og erum jafn-
framt stoltir af því, að þeir voru að vinna þörf
og uppbyggileg störf, er þeir voru kallaðir héð-
an og hugðu eigi á eyðileggingu, sem er þó
mjög á lofti haldið nú, heldur hið gagnstæða.
Á árinu hurfu 83 menn í hafið, karlar konur
og börn, og er það mikil blóðtaka fyrir okkar
fámennu þjóð. Að vonum er þessi stóri hópur
harmaður af ástvinum og öllum, er voru þeim
tengdir á einn eða annan hátt, en þjóð, sem
byggir líf sitt að miklu á hafinu, getur ávallt
átt von á hættu, að slys beri að og mannskaði
verði, jafnvel á tímum friðar og stjórnmála-
öryggis.
Okkar þjóð verður því að bera höfuðið hátt
og starfa og stríða, ef hún vill velli halda, og
þeir, sem eiga um sárt að binda, láta huggast
og horfa fram til bjartari og betri tíma.
Eigi verður svo minnzt á nokkra þætti úr
lífi þjóðarinnar á síðasta ári, að ekki gnæfi þar
hæst hinn mikli viðburður og aðdragandi þess,
er lýðveldi var stofnað á íslandi 17. júní síðast
liðinn. Þrátt fyrir allt er saga síðustu ára á fs-
landi svo merkileg fyrir undirbúninginn undir
þessi sögulegu tímamót, að margt, sem miður
hefir farið, hefir gleymzt fyrir þann stóra sigur,
enda þótt þar með sé ekki öll sagan sögð.
Margt er enn óleyst í sambandi við þau tíma-
VlKlNGUR
mót í sögu fslands, meðal annars, að ganga frá
fullkominni iýðveldisstjórnarskrá og byggja upp
hið raunverulega sjálfstæði eða tryggja það.
Með nýsköpun og skipulagi á sviði atvinnulífs-
ins, stóraukinni tækni og rannsóknum og nýt-
ingu gæða landsins og hafsins, er umlykur það,
verður slíkt að gerast. Eftir nærri 7 alda þoku
og hafvillur á sviði þjóðmálanna hefir íslenzka
þjóðin nú loks fundið svo sjálfa sig, að hún telur
sig þess umkomna að taka öll sín mál í eigin
hendur, og var það ekki vonum fyrr.
íslenzka þjóðin stendur nú á hinum einstæð-
ustu tímamótum til þess að sýna, hvað í henni
býr. Þrátt fyrir margra alda áþján hefir frelsið
og framfaraþráin lifað og orðið að þeim stríða
straumi, sem svalg alla andúð og efasemdir svo
eftirminnilega, að nú stöndum vér sem frjálsir
menn meðal þjóðanna, viðurkenndir af hinum
beztu þjóðum heims. Nú er það okkar að sýna,
að við séum hinir sönnu afkomendur þeirra
ágætismanna, er námu ísland, skópu sögu þess
og viturlega stjórn í upphafi. Og þeirra er
drengilegast hafa barizt fyrir rétti þjóðarinnar
á liðnum öldum með beittum brandi sögulegra
sanninda og stæltum og ákveðnum vilja til þess
að leiða þjóð vora á rétta leið til sigurs í frelsis-
baráttu hennar. Þeim öllum sé þökk og heiður
fyrir drengilegt og gott starf.
íslenzka þjóðin sýndi ákveðið, hve sigur vilj-
ans og samtakanna getur verið glæsilegur, við
atkvæðagreiðsluna í lýðveldismálinu, svo að
slíks eru víst engin dæmi í sögu frjálsra þjóða.
Þess vegna er enn meira í húfi, og því frekar
þarf að vaka á verðinum í framtíðinni.
Nú er hið fyrsta þing háð eftir lýðveldisstofn-
unina. Nú liggur fyrir Alþingi meðal margra
mála merkilegt mál, sem snertir sjómenn og
1
LAiJUSBQKASAFN
Aí159090
ÍS. I.AL' 'Ts