Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Síða 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Síða 3
hvort miðar áfram eða úr leið er undir því kom- ið, hvernig er á haldið. Það, sem menn verða að hafa í huga, þegar svona mál myndast, er þetta: Ekki má nema staðar við hverja smá torfæru, sem verður á veginum. Það verður að brúa liana. Framþróunin verður að fá notið sín, og brúin milli nútíðar og framtíðar í þessu máli er ótví- rætt þær tillögur frá F.F.S.Í., sem nú liggi" fyrir Alþingi. Þegar sett eru lög, verður að hugsa um hag fjöldans og heiður þjóðarinnar, en ekki um þá fáu, sem gjarna vilja bolast í gegn um lífið, án þess að taka fullt tillit til þeirra tíma sem þeir eru uppi á, og verða því í annarri víglínu á framfarabrautinni. í fornöld fóru íslendingar utan og voru margir þeirra fyrir sakir andlegs og líkamlegs atgervis settir hið næsta konungum. Þótti það heiður mikill. Gátu forfeðurnir sér oft í þeim förum hinn bezta orðstír. Nú eru aðrir og nýir tímar, en ennþá viljum vér mæla oss við aðrar menn- ingarþjóðir. Því er um að gera að búa þjóðina sem bezt á öllum sviðum undir þann mann- jöfnuð. Menntun og menning er lykillinn að öll- um sigrum. Að fáum árum liðnum munu allir verða þakklátir, ef Alþingi ber nú gæfu til þess að samþykkja frumvarpið eins og það liggur fyr- ir. Þá verður það öllum ljóst, að ein torfæran á framfarabrautinni hefir verið brúuð. Þess vegna á nú minna prófið að hverfa skilyrðislaust og engar ívilnanir að veita, frekari en gert er ráð fyrir í frumvarpinu, í því sambandi Við þessi merku tímamót í sögu íslands, við þessi fyrstu áramót, eftir að ísland varð á ný frjálst og fullvalda ríki, skora ég á öll sambands- félög vor að treysta enn og efla á alla lund sam- tök sín og samheldni í baráttunni fyrir rétt- mætri viðurkenningu samtakanna og hvika livergi frá settu marki, sem er barátta fyrir auk- inni me.nntun, menningu og öryggi og öðrum þeim málum, er miða stétt vorri til velfarnaðar. Eg heiti á alla meðlimi sambandsfélaganna hvern á sínum stað, að sýna og sanna, að þeir séu eins og öldur hafsins, sem þeir þekkja svo vel, ákveðnir á stefnunni, þótt stundum kunni að blása á móti, og hvika hvergi frá stefnunni, sem er vel menntuð og fullkomlega frjáls og vel siðuð sjómannastétt, sem setur heiður þjóð- arinnar ofar öllu öðru. Alþingi hlýtur samkvæmt aldagömlum átrún- aði og trausti þeirra, sem vilja frelsi og fram- þróun, en ekki helsi og fálm, að styðja okkur í þessu umrædda máli, sem og öðrum málum, sem miða til aukinnar þekkingar og öryggis. Hvar stöndum við með öll okkar óleystu við- fangsefni, sem byggja eiga upp og treysta und- irstöðuna undir hið nýstofnaða frjálsa og á- Vísitala fiskverðsins Einasta möguleg leið út úr ógöng peningamálanna. Nú er heimsstyrjöld. Á heimilum, vinnustöðv- um og vígvöllum keppast synir og dætur ófrið- arþjóðanna við að sýna takmarkalausa ætt- .jarðarást, sjálfsafneitun og drengskap á öllum sviðum. Þar hvetur hver annan. Að þessu leyti er styrjöldin dýrleg tíð, því líf, lifað í dreng- skap, fórnfýsi og ættjarðarást, er í sannleika sagt dýrlegt. Við sleppum umtali um hina svörtu hlið stríðsins. Þar á móti skulum við minnast þess, að brátt líður að því, að vér íslendingar verðum að leggja út í ofurlítið stríð fyrir lífsréttindum þjóðar vorrar, atvinnustríð, sem þjóð vor verður að heyja í harðri samkeppni við keppinauta, er að öllu samanlögðu standa oss betur að vígi. Þjóð vor verður að gæta eigna sinna og halda atvinnurekstri sínum í fullum gangi. Atvinnu- leysi má ekki skapast. í heimsstyrjöld þessari hefir þjóð vor orðið að byrga ríki, ef öll mál eiga þannig að dragast á langinn, hversu sjálfsögð, sem þau eru, ef að- eins einhver hreyfir mótmælum, hversu veik sem þau kunna að vera. Nú dugar ekki tepru- liáttur eða gælur við smámuni. Við höfum geng- ið inn á nýja braut, og nú er að halda hana beint og krókalaust til sigurs og sæmdar fyrir okkai- kæra land. Að þessu sinni verður hér staðar numið og eigi minnzt á fleiri mál, þótt þess væri þörf, en þeirra hefir að undanförnu verið getið í frásögn- um frá síðasta þingi F.F.S.í. En afgreiðsla þessa máls, sem hér hefir aðallega verið rætt og er beint framhald af byggingu hins nýja og full- komna sjómannaskóla, er sýnir sameiginlegan vilja sjómanna um aukna menntun og menn- ingu, verður prófsteinn á framsýni og þjóðar- metnað. Sameinuð og vel menntuð þjóð, þótt fámenn sé, heldur ávallt heiðri sínum meðal siðaði’a þjóða og hefir skilyrðin til þess að leysa hin vandasömustu verk. Gleðilegt nýjár! Ásg. Sigurðsson. VÍKINGUR 3

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.