Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Blaðsíða 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Blaðsíða 33
Ur skýrslu Sjómanna- og STARFSTÍMI Sjómanna- og gestaheimili Sigluf jarðar hóf starf- semi sína að þessu sinni fimmtudaginn 1. júlí, en um það leyti voru skip byrjuð að koma hingað til síldveiða, en lauk störfum 30. sept., er flest eða öll síldveiðiskip voru farin héðan, og fólk það, er hér stundaði sumarvinnu. Heimilið starfaði því alls í 3 mánuði, og er það nokkuð lengri tími en verið hefur áður. Húsakynni heimilisins voru hin sömu og áður, og höfðu smávegis lagfæringar verið gerðar innan húss, til þess að allt mætti verða sem vistlegast. Dagleg störf á heimilinu önnuðust þær frú Lára Jóhannsdóttir og frú Guðlaug Steingrímsdóttir, en þær störfuðu einnig við heimilið sumarið áður. Hr. Friðrik Hjartar, skólastjóri, starfaði einnig við heimilið um 6 vikna skeið. Sjálfboðaliðar frá stúk- unni Framsókn réttu oft hjálparhönd, þegar mikið var að gera. STARFIÐ Starfið á heimilinu var að þessu sinni með mjög líku sniði og undanfarin ár. Frá því í byrjun júlí- mánaðarog fram til loka mánaðarins var heimilið opnað alla daga kl. 9 f. m. og lokað kl. 22,30 að kvöldi. En vegna þess, að raddir höfðu komið fram um það, að æskilegt væri, að opið væri lengur að kvöldinu, var tímanum breytt þannig, að opnað var kl. 10 f. m. og opið til kl. 23,30 að kvöldi. Var byrjað á þessu 30. júlí, og var almenn ánægja yfir þessari breytingu. Öllum var frjáls aðgangur að heimilinu, er fylgdu settum reglum um umgengni. Gátu menn komið og farið, er þeir vildu, og dvalið þar lengur eða skemur eftir því, sem þeir óskuðu. Flest blöð og tímarit lágu frammi á lesstofu heimilisins til afnota fyrir gestina. Pappír og ritföng gátu menn fengið eftir þörfum og þurftu ekki að greiða fyrir það, frekar en þeir óskuðu. Bækur gátu menn einnig fengið lánaðar, bæði á lestrarsal og í skipin, en um fyrirkomulag þeirra útlána verður nánar getið síðar í skýrslunni. Á veitingasal voru veitingar framreiddar alla daga, þó voru ekki tök á því að hafa heitan mat á boðstólum. Þá var annazt um móttöku og sendingu bréfa, peninga og símskeyta fyrir þá, sem þess óskuðu. Margs konar leiðbeiningar og upplýsingar voru veittar þeim, sem þess óskuðu. Föt og munir voru geymdir fyrir allmarga sjómenn á síldarskipum, og einnig var sérstakt herbergi, þar sem menn gátu haft fataskipti og snyrt sig. Útvarp var jafnan í gangi á útvarpstíma, og orgel og píanó voru í veitingasal, og var gestum frjálst að leika á þau, ef þeir óskuðu. AÐSÓKN Undanfarin ár hefur það verið venja að láta gesti skrifa daglega nöfn sín í gestabók heimilisins. Jafnan reyndist erfitt að fá gesti til að skrifa nöfn sín daglega, ag gaf því gestabókin ekki rétta hug- mynd um heildarsóknina. Var því gerð sú breyting, að starfsfólk heimilisins áætlaði tölu gesta eftir því sem næst var komizt hvern dag, og skrifaði þá tölu í dagbókina. Aðsókn að heimilinu hefur aldrei verið meiri, síðan það tók til starfa. Alls komu á heimilið um 6080 gestir yfir starfstímann samkvæmt dagbók heimilisins. Flestir gestir voru' á einum degi um 300, en þá var landlegudagur og mörg skip inni. Um 668 bréf voru skrifuð og þeim nær öllum komið í póst. Teknir voru til geymslu og sendingar pen- ingar að upphæð kr. 14606.00. Landssímasamtöl og símskeyti voru afgreidd fyrir mjög margt fólk, einkum eftir lokunartíma bæjarsímans, og kom það sér oft mjög vel fyrir sjómenn, er höfðu takmarkaðan tíma í landi. Meginþorri þeirra gesta, er á Sjómannaheimilið koma, eru sjómenn af síldarskipunum, en auk þess eru margir gestanna aðkomufólk, er vinnur hér í landi og hefur oft ekki önnur heimili en vinnuskála (brakka). Þykir mörgu af þessu fólki gott að koma á sjómannaheimilið og sitja þar við lestur blaða og hlusta á útvarp. Margir bæjarbúar á Siglufirði koma þangað einnig í sömu erindum. Umgengni og prúðmennska gestanna hefur verið eins og áður hin prýðilegasta, eða svo að á betra verður ekki kosið, og eiga sjómenn og aðrir gestir heimilisins þakkir skilið fyrir það, því að slík fram- koma ber órækan vott um velvild og virðingu í garð starfseminnar og sýnir auk þess, hve bindindis- starfsemi og reglusemi má miklu góðu til vegar koma. SAMKOMUR Undanfarin sumur hafa allmargar samkomur verið haldnar á heimilinu og erindi flutt og skemmti atriði höfð. Þetta fórst að mestu fyrir s. 1. sumar. VÍKINGUR 33

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.