Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Qupperneq 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Qupperneq 36
Draumur þingmannsins, (Sjá grein á bls. 12.) Stéttvísi. Prestur, vísindamaður og lögfræðingur voru á reki á björgunarfleka í Suðurhöfum. Loks komu þeir auga á land. En vindinn lægði og gerði logn meðan þeir voru enn spölkorn frá ströndinni. Lög- lræðingurinn var sá eini þeirra, sem kunni að synda, svo hann bauðst til að synda í land með línu, og draga síðan flekann að. Presturinn lagðist á bæn og bað guð að bjarga sér. Þá stakk lögfræðingurinn sér. Félagar hans sáu svartan hákarlsugga skera vatnsflötinn og stefna að honum. Síðan hvarf hákarlinn, en kom upp hin- um megin við sundmanninn. Skömmu síðar sáu þeir annan hákarl, sýnu stærri, þjóta að honum, en hann beygði einnig úr leið á síðustu stundu. Þegar lögfræðingurinn var kominn upp í fjöru, sagði presturinn við vísindamanninn: „Þarna hef- urðu þó óræka sönnun fyrir mætti bænarinnar, trú- leysinginn þinn!“ „Mætti bænarinnar!!“ hreytti vísindamaðurinn út úr sér. „Þetta var einungis skiljanleg nærgætni við stéttarbróður.“ ★ I lífsins ólgusjó. Þegar skella skruggur á og skúra hrelling svíður, hugrór velli haltu þá, hvað sem elli líður. Út fór kall á ýsupoll, úfið vall þar straumasvall, bleytti allan brúnakoll bárufall, sem yfir skall. Ó. Th. ★ Á FRIVA 1 ástandinu? Stúlka kom til Vinnu sinnar með tvö einkennis- merki liðsforingja úr silfri næld í peysubarm sinn. Samstarfsstúlka hennar spurði: „Er hann kap- teinn?“ „Almáttugur, nei,“ svaraði hún. „Tveir lautin- antar.“ ★ Hitaveitukamar ? Guðíræðistúdent, sem átti að laysa sóknarprest- inn af hólmi um stundarsakir, kom síðla kvölds heim til meðhjálparans, þar sem hann hafði verið vistaður. Skömmu síðar kvaðst hann þurfa að bregða sér frá. Meðhjálparinn sagði: „Það er úti ■— gakktu bara slóðina í snjónum. Taktu skriðljósið að tarna. Og — ég var nærri búinn að gleyma því, hérna er setan. Við geymum hana bak við eldavélina á vet- urna til að halaa henni heitri.“ ★ Liðþjálfinn: „Hvað er það, sem hefur 24 fætur, græn augu, Ijósrauðan búk með dökkrauðum rönd- um?“ Nýliðinn: „Eg veit það ekki. Hvað er það?“ Liðþjálfinn: „Eg ekki heldur, en þú ættir að taka það af hálsinum á þér.“ ★ Tvisvar fcveir eru f jórir. Gamansamur prófessor, sem var að reyna að út- skýra atriði í rökfræði fyrir hóp af stúdentum, spurði: „Ef Grímsey er fyrir norðan land, Vest- mannaeyjar fyrir sunnan, Snæfellsjökull á Vestur- landi og Gerpir austast á landinu, hve gamall er ég þá?“ Hinir betri nemendur vissu hvorki upp né niður, en sá lakasti sagði: „Þér eruð líklega 44 ára.“ Nú var það prófessorinn, sem hvorki vissi upp né niður. „Það er hárrétt, en hvernig í ósköpunum fóruð þér að vita það?“ Stúdentinn svaraði: „Það var mjög auðvelt. Eg á bróður, sem er hálfbjáni, og hann er 22 ára.“ ★ 36 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.