Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Page 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Page 37
KTINNI Lengi foýr að fyrstu gerð. „Þegar hann sagði, að við hefðum hann að fífli, gat ég aðeins sagt, að skaparinn hefði orðið fyrri til.“ ★ Snúið heim úr róðri: Hallast skeiðin, héðan sný, hjartað þráir friðinn. Eg hef löngum lífi í lagt á grunnu miðin. S. M. ★ 1 beituskúr. Silfurbúni baukurinn bragna lúna gleður, meðan húna hundurinn hlés í túnum veður. G. B. ★ Á heimleið. Við höfum fiskað vel í skeið, vindum segl við húna. í Herrans nafni heim á leið halda skulum núna. F. Ö. ★ Fyrsta loftárásin. Fyrstu loftárásir, sem sagan getur um, voru gerðar fyrir 95 árum, en þá gerðu Austurríkismenn ítrekaðcir sprengjuárásir úr allt að 1500 metra hæð á Feneyjaborg, sem hafði hafið uppreisn gegn stjórn Austurríkiskeisara. Verkfræðingur einn í her Austurríkismanna, Franz Uchatius að nafni, hafði gert tilraunir með belgi, sem fylltir voru lofti, hituðu með ofni, er hékk neðan í þeim. Hann lagði til, að slíkir belgir yrðu látnir berast fyrir vindi inn yfir borgina, og skyldi hver þeirra útbúinn tæki til að sleppa sprengju eftir ákveðinn tíma. Yfirherstjórnin hafnaði boðinu, en keisarinn fól honum að gera tilraun. Uchatius lét gera loftflota, sem í voru 100 belgir, en hann gat aðeins náð í ofna fyrir fimmtíu þeirra. Þegar þeir voru tilbúnir, flutti hann bækistöð sína á herskipið Volcano, vék því til unz reynslubelgir hans svifu inn yfir borgina, og þá leysti hann fyrsta sprengjubelginn. Sprengjan sprakk á miðju fjöl- förnu stræti. Fólkið varð viti sínu fjær af skelfingu við þessa óvæntu ógnun af himnum ofan. Margir tróðust undir í þyrpingunum, sem ruddust út á mjóar brýrnar yfir skurðina. Dag eftir dag sleppti Uchatius belgjum sínum. Vegna ófullkominnar smiði belgjanna urðu oft mistök, sem uku eyði- legginguna, sem af þeim hlauzt. Nokkrir þeirra of- hitnuðu, svo að kviknaði í þeim, en logandi silki, víðitágum, spítnabraki og ofnstykkjum rigndi niður, auk sprengjanna. Borgarbúum lærðist fljótt að skjóta ekki á belgina, vegna þess, að logarnir voru öllu hættulegri en sprengjurnar. Nokkur hús urðu eJdinum að bráð, áður en fólkið vann svo bug á hræðslunni, að það kæmi á fót brunaliði. Loftárás- irnar urðu aðeins fjórum mönnum að bana og særðu 2, en hin sálrænu áhrif þeirra voru ægileg. Fólkið var svo skelkað, að enginn þorði að fara úr borginni né nálgast hana. Það lá við hungursneyð í Feneyjum, vegna þess, að borgin byggði að mestu leyti á siglingum um aðdrætti alla. Borgarbúar voru komnir á fremsta hlunn að gef- ast upp, þegar loftsóknin skyndilega hætti. öfund- armenn Uchatiusar gerðu mikið úr kostnaðinum við þessar handahófslegu stríðsaðgerðir, sem þeir svo kölluðu, og þeim tókst að koma því til leiðar, að beiðni hans um fleiri ofna var synjað, en án þeirra voru honum hinir fimmtíu loftbelgir, sem hann átti ónotaða, gagnslausir. Þegar Feneyjabúar voru lausir úr álögum þessara ógna af himnum ofan, óx þeim kjarkur og þor, svo að þeim tókst að brjóta af sér umsát Austurríkis- manna. Eftirfarandi samtal fór á milli tveggja fyllirafta, sem slöguðu í armlögum eftir götunni: — Veiztu að ég var bara há-hikk-hálft annaíS pund þegar ég fœdd-hist. Rvei mér þa-há! — pú seir’ þa’ ekki. Lifðiröu1? — Li-Lifði ég! Maður lifandi! Þú ættir að sjaliá mig núna! VIKINGXJR 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.