Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Side 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1945, Side 40
Nokkrar stökur eftir Jóhann Bárðarson. um skip, sjó og sjómenn. Fyrstu 6 vísurnar eru gerðar á sjó við ýms tækifæri. Rifja sjávar regin tröll Ránar bláa teiginn. Öldur háar eins og fjöll elta smáu fleyin. Boða-riðin brotna há, bárur iða og sprikla. Hryggjarliðum Ægis á álftir viða stikla. Gnoðin mikla, liðug, létt, lagar stiklar grundir. Boðar hnykla brúnir þétt, bárur sprikla undir. Þýtt er leiði, lifnar geð, liðugt reiða-hundur sínum breiðu brjóstum með bylgjur sneiðir sundur. Sléttubönd. Togna strengir, víklcar voð, veina kengir linda. Bogna stengur, gnötrar gnoð, glottir þengill vinda. Blánar móða, geisla glóð gyllir flóðið víða, Ránar jóðin ástar óð arma bjóða þýða. Næstu 5 vísur eru um sjómenn almennt. Eru 3 þær síðustu sléttubönd og eru í bók Jóhanns ,,Áraskip“. Kappar frægir sjávar svið sigla þægilegan. Glíma Ægi ygldan við, ekki vægilegan. SJÓMANNABLAÐIÐ VlKINGUR Útgefandi: Farmanna- og fiskimannasamband Islands, Ritstj. og ábyrgðarm.: Gissur Ó. Erlingsson. Ritnefnd: Hallgrímur Jónsson, Grímur Þorkelsson, Henry Hálfdánsson, Konráð Gíslason, Þor- varður Björnsson, Snæbjörn Ólafsson. Blaðið kemur út einu sinni í mánuði, og kostar árgangurinn 20 krónur. Ritstjórn og afgreiðsla er á Bárugötu 2, Reykja- vík. Utanáskrift: „Víkingur", pósthólf 425, — Reykjavík. Sími 565S. PrentaO í tsafoldarprentsmiöju h.f. Þegar kvikur knerri á kólgu ryki skvetta, enginn hika sjómenn sá, sigla strikið rétta. Kynning drengja þægi þjóð þekkist gengi róðurs. Minning lengi geymist góð, glymji strengir hróðurs. Djarfir, knáir færðu fley, fengu smáa gjaldið. Þarfir sáu, ofbauð ei Ægis háa valdið. Öllum sendist þakkir, þjóð þeirra lending greiði. Snjöllum endist gæfa góð, Guða hendur leiði. Gamall og frækinn formaður átti sjötugsaf- mæli fyrir skömmu. Sendi Jóhann honum þá eftirfarandi vísur í heillaskeyti. í sjötíu ár á úfnum sjó afl við bárur þreyttir. Aldrei sár né þreklaus þó þóftu-klárum beittir. Sigldir skeið um svalan mar, sóttir veiði dýra. Gazt þér heiður háan þar happa leið að stýra. Verði örugg auðnu kjör, alltaf fjörugt leiði. Heill í vör úr happa för hlaðinn knörinn skeiði. 40 VlKINGVU

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.