Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Qupperneq 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Qupperneq 10
W. W. Jacobs Sakamáli slegið á frest Það vildi Bligh skipstjóra til happs, að fátt manna var á ferli, og eini sjónarvotturinn að því, er hann brá fæti fyrir Pilbeam yfirlögreglu- þjón, var roskinn maður með staurfót; hann tók á rás á eftir Bligh, ásamt sárgrömum lög- regluþjóninum. Skipstjórinn naut þess að hann var ungur, og er hann kom inn í þröng trjá- göngin í gamla borgarhlutanum í Voodhatch linnti hann sprettinum og lagði við hlustir. Hróp þeirra, sem eftir honum sóttu, dóu út í fjarska, og hann var farinn að ganga rólega þegar hann heyrði ákaft pjakkið í staurfætinum á aðra hlið sína, en kór háværra radda á hina. Það var greinilegt að eftirleitarmönnum hafði fjölgað. Hann stakk við fótum, og var á báðum áttum. Síðan oþnaði hann dyr, sem stóðu í hálfa gátt í steingarði einum, og gægðist inn fyrir. Hann sá lítinn skrúðgarð með gangstíg lagðan tígulstein- um; þar uxu snyrtilegar myrtusjurtir og blómg- aðar plöntur í nýlegum leirkerum, og hann smeygði sér inn og lokaði dyrunum á eftir sér. „Nú?“ sagði þurrleg rödd. „Hvað viljið þér?“ Bligh skipstjóri snerist á hæli, og sá unga stúlku standa í vígalegum stellingum í opnum dyrum hússins. „Uss!“ sagði hann og^bandaði að henni fingri. Blóðið þaut fram í vanga ungu stúlkunnar og augu hennar leiftruðu. „Hvað eruð þér að vilja inn í garðinn okkar?“ spurði hún. Það létti yfir svip skipstjórans, þegar hann heyrði raddirnar fjarlægjast. Hann sneri upp á yfirskeggið og virti stúlkuna fyrir sér með ófeilinni aðdáun. „Á flótta“ sagði hann. „Það munaði samt minnstu að þeir næðu mér“. „Þér hafið ekkert leyfi til að flýja inn í garð- inn okkar“, sagði stúlkan. „Undan hverjum er- uð þér að flýja?“ „Feitum lögregluþjóni“, sagði skipstjórinn kankvíslega og sneri upp á yfirskeggið. Ungfrú Pilbeam, einkadóttir Pilbeams yfir- lögregluþjóns, greip andann á lofti. „Hvað hafið þér gert af yður?“ spurði hún, jafnskjótt og hún hafði náð valdi á rödd sinni. „Ekkert“. sagði skipstjórinn þóttalega. „Ég var að sparka steinvölu eftir götunni og hann skipaði mér að hætta bví“. „Nú?“ sagði ungfrú Pilbeam óþolinmóð. „Við fórum að jagast", sagði skipstjórinn. ,.Ég hef skömm á lögregluþjónum — feitum lögiægluþjónum — og meðan við töluðumst við missti hann jafnvægið og steyptist á hausinn í forarleðju við vegkantinn". „Missti hann jafnvægið?" sagði ungfrú Pil- beam andaktug. Skipstjóranum bótti vænt um hve áfiáð hún var. „Þér hefðuð hlegið ef þér hefðuð séð hann“, sagði hann brosandi. „Verið þér óhrædd. Hann hefur ekki náð mér ennþá“. „Nei“, sagði stúlkan með semingi. „Ekki ennþá“. Hún starði á hann með svo hyldjúpa þrá í augum, að skipstjóranum hnykkti við, þótt sjálfstraust hans væri annars ekki skorið við nögl. „Og hann skal aldrei ná mér“, sagði hann og endurgalt augnaráð hennar. Ungfrú Pilbeam varð hugsi. Hún var kröft- uglega vaxin, en henni var ljóst að hún hafði ekkert að gera í hendurnar á þessum glæpa- manni, sem frammi fyrir henni stóð og sneri upp á skeggið og hagræddi hálsbindinu. Og faðir hennar kæmi ekki af verði fyrr en klukkan níu. „Ég býst við að yður langi til að bíða hér til myrkurs?" sagði hún eftir nokkra þögn. „Ég vildi hvergi bíða fremur en hér“, sagði skipstjórinn áfjáður, en þó virðulega. „Þér vilduð kannske koma inn fyrir og hvíla yður?“ sagði stúlkan. Bligh skipstjóri þakkaði henni gott boð, tók ofan húfuna og fylgdi á eftir stúlkunni inn í litla stofu, sem sneri að götunni. „Pabbi er ekki heima“, sagði hún og leiddi hann til sætis í hægindastól, „en ég er viss um 44 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.