Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Síða 19
Frá Gramlandi. Iiúsin í Norðmannahöfn.
þvotta. Var þar við síðuna látinn liggja annar
léttbáturinn, og haft í honum vatn í segli, sem
svo var dælt nmð handafli eftir þörfum bvotta-
kvennanna og einnig á vatnsgeyma skipsins,
til að spara ferðir inn á hafnirnar eftir vatni.
Eini frjálsi gangurinn um skipið var bví
stjórnborðsmegin frá svelg og aftur lír, og þó
raðað þar tunnum og ýmsu dóti líka.
Trillumennirnir unnu sjálfstætt við sína at-
vinnu. Höfðu 1 mann af bát um borð við beit-
ingu mcðan hinir voru á sjónum og lögðu afl-
ann inn oftast hausaðan og slægðan. En svo
sá skipshöfn Súðarinnar, karlar og lconur, um
verkun hans að öðru leyti.
Sú trillan, sem gerði bað bezt, var „Leifur
heppni“ frá Akranesi. Voru á henni harðdug-
legir menn og samhentir og sjáanlega vanir að
heirnta auð úr Ægisdjúpi, enda útbúnaður
allur hjá þeim svo sem til fyrirmyndar mátti
vera. Þcir fiskuðu yfir tírnann 75 tonn af
hausuðum og slægðum þorski. Nokkuð fisk-
aðist einnig af smálúðu líka.
Það mátti segja, að fiskurinn til að byrja
með væri afskaplega horaður. Sögðu trillu-
mennirnir, að maginn í honum væri alveg
tómur. Hef ég sjálfur ekki séð horaðri fisk
við Island, nema sumt af göngufiski, er kemur
inn í Breiðafjörð snemma á vorin, en hlut-
föllin af magni þess horaða miklu minni. En
svo begar komið va" ’ endi ágúsV' ínaðar og
byrjun september, var fiskurinn '"'hn prvði-
lega feitur og sá horaði næstnm. h^’finn.
Það mætti segja frá mörgu sk^mmtilegu af
lífinu um borð, en hér er ekki rúm til þess
og verð ég því að lofa lesanda '.um að æfa
eigið hugmyndaflug um hið persóimlega sam-
spil og samkomulag einstaklinganna í sam-
bandi við dagleg störf og hagnýtingu hvíldar-
tíma. Fer svo jafnan þar sem margt fólk er
saman komið víðs vegar að, að mörg verða til-
brigði gamans og gleði, kunnáttu og leikni.
Má maður þá ckki gleyma þeim aðstæðum um-
hverfisins, er skapast af breytileik veðurfars-
ins, • birtu dags og blárökkri nætur, og bessu
öllu, sem stuðlar að því að skipta huganum
milli rómantíkur og raunsæis.
En svo var vinnutíma okkar háttað sam-
kvæmt samningi, að við áttum að vinna 8 tíma
á sólarhring. einhvern tíma á tímabilinu 00.00
til 24.00, en ef maður vann lengur, þá reikn-
aðist það se.m eftirvinna næstu 3 tímarnir og
síðan næturvinna og var það stýrimannsins
v i K i N G u R
53