Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Side 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1950, Side 40
Itfflinnmcjsirorð: JÓHANN JÓIMSSOIM VÉLSTJÓRI Jóhann Jónsson, vélstjóri, var einn af fimm, er fórust við hið hörmulega slys, er togarinn „Vörður" frá Patreksfirði sökk í hafið að kvöldi þess 29. janúar s.l. Jóhann var 2. vél- stjóri á skipinu, reyndur maður í sínu starfi, hafði marga svaðilför farið á undanförnum ár- um. Sigldi á Patreksfjarðartogurunum öll styrj- aldarárin, svo að engin ferð féll úr, oftast sem 1. vélstjóri. Ungur byrjaði hann sjósókn, aðeins 14 ára, sem hjálparmatsveinn á gamla „Nirði“. Árið 1916 réðist hann kyndari á „Eggert Ólafs- son“ á síldveiðar, og svo til náms um haustið, sem járniðnaðarnemi. Hugurinn stefndi þá til þess, sem síðar varð, að verða vélstjóri. Hann var strax ötull og kappsamur og stefndi ákveð- inn að vissu marki. Vélstjói'aprófi lauk hann við véiskólann 1925, og vann þá upp frá því, sem undirvélstjóri á skipum úr Reykjavík. Ár- ið 1935 flutti hann vestur á Patreksfjörð og var á togurum þaðan til síðustu stundar, að undanteknum nokkrum mánuðum, sem hann var 1. vélstjóri á togaranum „Elliðaey" frá Vestmannaeyjum á síðastliðnu ári. Jóhann var prýðilega liðinn, jafnt af undirmönnum sem yfirmönnum sínum. Hann var vel fær í sínu starfi, duglegur og kjarkmikill, lyndisgóður og félagslyndur. Jóhann fæddist 30. maí 1901 í Reykjavík. Foreldrar hans voru hjónin Jóhanna Arnbjarn- ai'dóttir og Jón Jónsson sjómaður. Þau eignuð- ust sex börn, sem öll eru á lífi nema Jóhann, en hann var næst elztur sinna systkina. Móðir hans dó 1916. En faðir hans er á lífi mjög ern, 77 ára gamall. Jón kvæntist í annað sinn Lilju Sigurjónsdóttur, og eiga þau fjögur börn. Lilja reyndist stjúpbörnum sínum sem bezta móðir, og skoðaði Jóhann hana sem aðra móður sína, mat hana og virti til hinztu stundar. Kona Jóhanns er Lára Sigfúsdóttir, ættuð frá Siglu- firði. Þau eignuðust sjö börn og eru tvö þeirra innan fermingar. Áður en samvistir þeirra tók- ust, eignaðist Jóhann son, sem býr hér í bæn- um og stundar rafvirkjanám. Jóhann bjó á Vatneyri á Patreksfirði frá því hann réðist á skip þaðan; átti þar ágætt hús og heimili og myndarleg börn. Þar undi hann bezt hag sínum og þangað var hann flutt- ur til hinztu hvíldar, að afstaðinni minningar- athöfn hér í Reykjavík. Jarðarför hans verður um leið minningarathöfn hinna fjögurra félaga hans, sem hlutu hvílustað úti í miðju Atlants- hafi við hið hörmulega slys. Slíkir atburðir sem þessi, vekja harm og trega í brjóstum margra, og íbúar Eyrakaup- túns munu allir drjúpa höfði með trega í brjósti yfir missi ágætra manna. Sárastur er söknuð- urinn hjá börnunum sjö og móður þeirra, öldr- uðum föður, stjúpmóður og hinum mörgu syst- kinum, er öil sakna vinar í stað, er féll sem hetja, við skyldustörf sín á hafinu, svo skyndi- lega í blóma lífsins. S. Á. Ö. Sjóslysíð við Veslmanna- eyjar 7. janúar 1950 Enn hefur þjóSin mín orðið að sjá af ötulum, daöríkum sonum, viö skyldur á hafinu féllu þeir frá foreldrum, börnum og konum. í sorginni þjóð mín í einingu er, þá ástljúfu drengina góðu með kærleik og lotningu kveður hún hér, sem hvarvetna hugdjarfir stóðu. Maður, hvar lítur þú fegurri fórn en farmannsins störfin á ægi? Það reynir á vizku og valmennsku í stjórn við válynda bylgjunnar slagi. Hetjunnar þorið í hjartanu býr þá haföldur ógnandi nsa og stormurinn háværu strengina knýr og strandljósin ná ekhi að lýsa. Hver getur meira en lífið sitt lagt í lífsstarfi sínu að veði? Um sjómannsins afrek ei orð geta sagt, hann ódeigur vinnur með gleði. Hver ætti fremur en hetjan um haf heiðursins orður að bera, sem þrek sitt í fórn fyrir þjóð sína gaf ? en þannig á sonur að vera. Hetjurnar tíu, sem hnigu í val á hyldjúpu bárunnar vengi, þær áttu þann manndóm, sem myrkvast ei skal, en minningar geyma svo lengi, Hafið, það syngur þeim sorgþrungið Ijóð á sævarins voldugu strengi. 74 VÍKIN □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.